Ferill 491. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1146  —  491. mál.




Svar


umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um verndar- og orkunýtingaráætlun.


     1.      Stendur yfir endurskoðun á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011, að hluta eða í heild, í samræmi við ábendingu meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar, sbr. nefndarálit meiri hlutans á þingskjali 1210 í 332. máli 152. löggjafarþings?
    Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að sérstök lög verði sett um nýtingu vindorku með það að markmiði að einfalda uppbyggingu vindorkuvera til framleiðslu á grænni orku. Áhersla verði lögð á að vindorkuver byggist upp á afmörkuðum svæðum nærri tengivirkjum og flutningslínum þar sem unnt verður að tryggja afhendingaröryggi. Tekið er fram að mikilvægt sé að breið sátt ríki um uppbyggingu slíkra vindorkuvera og tillit sé tekið til sjónrænna áhrifa, dýralífs og náttúru. Starfshópur á vegum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins hefur unnið drög að frumvarpi til laga um vindorku til að ná fram þessu markmiði stjórnarsáttmála. Frumvarpið hefur þegar verið kynnt á samráðsgátt stjórnvalda og mun verða lagt fram á Alþingi þegar unnið hefur verið úr umsögnum.
    Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er einnig kveðið á um að lög um verndar- og orkunýtingaráætlun verða endurskoðuð frá grunni til að tryggja ábyrga og skynsamlega nýtingu og vernd landsvæða á Íslandi. Á undanförnum árum hefur komið fram talsverð gagnrýni á ferli rammaáætlunar, sérstaklega þann langa tíma sem liðið hefur þar til ljóst sé hver verði niðurstaða áætlunarinnar. Nú er einnig svo komið að orkuskortur er í landinu sem gæti orðið viðvarandi, sérstaklega ef horft er til þess að ná opinberum markmiðum í loftslagsmálum og kolefnishlutleysi landsins. Til að bregðast við framangreindum áskorunum hefur verið kallað eftir því að fram fari endurmat og endurskoðun á þeim lagaramma sem gildir um orkuöflun landsins.
    Í samræmi við framangreint hefur umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra skipað starfshóp til að gera tillögur til ráðuneytisins um endurskoðun laga 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun. Í erindisbréfi starfshópsins er auk tilvísunar til stjórnarsáttmála mælt fyrir um að lögð verði sérstök áhersla á að auka skilvirkni í kerfinu í heild og einföldun regluverks. Þá skal hópurinn taka mið af þeim sjónarmiðum sem fram komu í nefndaráliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar og vísað er til í fyrirspurninni. Í umræddu nefndaráliti kemur m.a. fram að skapa þurfi traust á því ferli sem rammaáætlun er, útrýma tortryggni og auka sátt um einstaka virkjunarkosti og forsendur fyrir því að ráðist verði í nýtingu og/eða vernd þeirra. Ekki sé síður mikilvægt að endurskoðað ferli stuðli að markmiðum um orkuöryggi, orkusjálfstæði og sjálfbærni í takt við orkustefnu Íslands.
    Starfshópurinn er þannig skipaður:
    Hilmar Gunnlaugsson hrl., formaður,
    Björt Ólafsdóttir, fyrrv. ráðherra umhverfis- og auðlindamála,
    Kolbeinn Óttarsson Proppé, fyrrv. alþingismaður.
    Á starfstíma hópsins er gert ráð fyrir ítarlegu samráði við fyrirtæki, stofnanir og samtök sem hafa með málefni orkunýtingar og náttúruverndar að gera, auk samtaka sveitarfélaga. Vakin er athygli á því að um er að ræða sömu einstaklinga og voru skipaðir í starfshóp til að skoða og gera tillögur til ráðuneytisins varðandi nýtingu vindorku en gert er ráð fyrir að reynslan af þeirri vinnu nýtist vel í þessu verkefni.

     2.      Hvenær áformar ráðherra að þeirri vinnu ljúki?
    Vonast er til þess að niðurstöður starfshópsins liggi fyrir síðar á þessu ári þannig að hægt verði að leggja fram frumvarp um málið á næsta löggjafarþingi.