Ferill 15. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1148 — 15. mál.
Svar
menningar- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn frá Jóhanni Páli Jóhannssyni um eftirlit með heimagistingu.
1. Hefur sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu sinnt virku frumkvæðiseftirliti með heimagistingu frá árinu 2016 þar til nú, eins og embættið kallaði eftir að komið yrði á fót í umsögn sinni um frumvarp það er varð að lögum nr. 67/2016, svo sem með því að kanna vefsíður þar sem höfð er milliganga um skammtímaleigu til erlendra ferðamanna og með því að bera saman framboð á vefsíðum og útgefin rekstrarleyfi og skráða starfsemi?
Frá því í september 2018 hefur menningar- og viðskiptaráðuneytið, áður atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, fjármagnað eftirlit sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu með skráningarskyldri heimagistingu með árlegu 50–64 m.kr. fjárframlagi. Það er samkvæmt sérstökum samningi milli ráðuneytisins og sýslumanns um svokallaða heimagistingarvakt.
Eftirlit heimagistingarvaktar hefur skilað miklum árangri frá því að samningurinn var fyrst undirritaður, en þá var áætlað að um 80% af seldri gistingu (skráningarskyldri heimagistingu og rekstrarleyfisskyldri gististarfsemi) færi fram án skráningar eða tilskilins leyfis. Frá því að samningurinn var undirritaður hafa yfir 500 eftirlitsmál verið skráð í One System hjá sýslumanni vegna frumkvæðiseftirlits og yfir 250 eftirlitsmál vegna ábendinga.
Eftirlitið hefur einnig aukið á fjölda skráninga vegna heimagistingar á hverju ári, sem og ýtt undir rétt skattskil, en sýslumaður hefur heimild til að senda upplýsingar um leigutekjur til skattyfirvalda skv. 2. mgr. 13. gr. laga nr. 85/2007. Að mati sýslumanns, sem byggist á samanburði úr þeirra kerfum við helstu bókunarsíður, fer hluti af seldri gistingu enn fram án skráningar eða tilskilinna leyfa. Til að bregðast frekar við því hefur ráðuneytið veitt sérstakt 30 m.kr. viðbótarframlag til heimagistingarvaktar til viðbótar við fyrrnefnt árlegt framlag ráðuneytisins til sýslumanns.
Í samræmi við 3. gr. fyrrnefnds samnings milli ráðuneytisins og sýslumanns, skilar sýslumaður ráðuneytinu reglulegum minnisblöðum um framkvæmd eftirlitsins. Til nánari skýringa komu eftirfarandi upplýsingar fram í nýlegu minnisblaði sýslumanns til ráðuneytisins, dags. 29. nóvember 2023, um framkvæmd eftirlitsins fyrir almanaksárið 2023:
Álagðar stjórnvaldssektir 33.568.519 kr.
– Vegna heimagistingar: 9.083.900 kr.
– Vegna rekstrarleyfisskyldrar gististarfsemi án tilskilins leyfis: 24.484.619 kr.
Fyrirhugaðar stjórnvaldssektir á almanaksárinu 2023 nema 7.732.200 kr.
– Vegna heimagistingar: 0 kr.
– Vegna rekstrarleyfisskyldrar gististarfsemi án tilskilins leyfis: 7.732.200 kr.
Það sem af er almanaksárinu 2023 eru skráðar heimagistingar 3.510 á landsvísu, eða um 2,2% af heildarfjölda skráðra íbúða samkvæmt tölum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Tæpur helmingur skráðra heimagistinga er í Reykjavík, eða 1610, sem er 2,7% af fjölda skráðra íbúða í Reykjavík.
Til samanburðar fylgja tölur yfir fjölda skráðra heimagistinga sl. ár.
– Árið 2022: 2.180
– Árið 2021: 1.082
– Árið 2020: 1.243
– Árið 2019: 2.241
2. Hversu margir starfsmenn í hversu mörgum stöðugildum hafa sinnt þessu eftirliti og öðrum verkefnum er varða heimagistingu frá árinu 2016 þar til nú?
Í september 2018 störfuðu tíu einstaklingar við framangreinda heimagistingarvakt, þar af þrír lögfræðingar (einn af þeim fagstjóri), þrír eftirlitsmenn, þrír sérfræðingar og einn skrifstofumaður. Í dag sinna allt að fjögur stöðugildi eftirlitinu samkvæmt samningi við ráðuneytið. Árleg fjárveiting frá ráðuneytinu í eftirlitið hefur verið á bilinu 50–64 m.kr., en sem fyrr segir var nýlega undirritaður samningur um 30 m.kr. viðbótarfjármagn fyrir almanaksárið 2024 til að gera sérstakt átak til að bregðast við brotum á þeim reglum sem gilda um skammtímaleigu. Lagt er upp með að átaksverkefnið sé til eins árs og felur það m.a. í sér að starfsmönnum í heimagistingarvakt verði fjölgað, aukin áhersla lögð á frumkvæðiseftirlit sem og að fylgst verði með notkun skráningarnúmera í markaðssetningu.
3. Hversu oft hefur sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu afskráð heimagistingu vegna þess að aðili varð uppvís að því að leigja út húsnæði sitt lengur en 90 daga á ári eða fyrir hærri fjárhæð en kveðið er á um í 3. tölul. 4. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt? Svar óskast sundurliðað eftir árum frá árinu 2016 þar til nú.
Eftirfarandi eru umbeðnar upplýsingar um afskráningar undanfarinna ára, miðað við skráningu í málakerfi/skráningarkerfi sýslumanna.
– Árið 2017: 9 mál
– Árið 2018: 21 mál
– Árið 2019: 13 mál
– Árið 2020: 4 mál
– Árið 2021: 0 mál
– Árið 2022: 3 mál
– Árið 2023: 1 mál
Viðurlögin sem sýslumaður beitir vegna brota á skráningarskyldri eða rekstrarleyfisskyldri gististarfsemi eru sem fyrr segir í formi stjórnvaldssekta. Til frekari upplýsinga yfir tölfræði fyrir árið 2023 vísast í svar við 1. tölul. fyrirspurnarinnar, um fyrirhugaðar og álagðar stjórnvaldssektir vegna brota á skráningarskyldri og rekstrarleyfisskyldri gististarfsemi árið 2023.
4. Hversu oft hefur sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu sent skráningaraðila tilkynningu um að afskráning sé fyrirhuguð, sbr. 2. mgr. 15. gr. a laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007? Svar óskast sundurliðað eftir árum frá 2016 þar til nú.
Samkvæmt upplýsingum frá sýslumanni er erfitt að finna umbeðnar upplýsingar, sér í lagi úr eldra skráningarkerfi sýslumanna, þar sem mál vegna brota á reglum um skráningarskylda gististarfsemi var aldrei lokið með „fyrirhuguð afskráning“, heldur annaðhvort „afskráning“ eða „önnur málalok“. Hins vegar má gera ráð fyrir að mál sem lýkur með „afskráning“ hafi áður verið með stöðuna „fyrirhuguð afskráning“, sbr. svar við 3. tölul. fyrirspurnarinnar.
5. Hversu oft hefur sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu synjað aðila um skráningu á grundvelli 3. mgr. 15. gr. a laga nr. 85/2007? Svar óskast sundurliðað eftir árum frá árinu 2016 þar til nú.
Með breytingalögum nr. 67/2016 var sýslumanni falið eftirlit með skráningarskyldri gististarfsemi. Lögin tóku gildi 1. janúar 2017. Kerfi sýslumanns bjóða ekki upp á að aðgreina synjanir eftir lagaákvæðum. Eftirfarandi tölur byggjast á synjunum á grundvelli laga nr. 85/2007, í heild.
– Árið 2017: ekkert mál
– Árið 2018: 1 mál
– Árið 2019: ekkert mál
– Árið 2020: 42 mál
– Árið 2021: 36 mál
– Árið 2022: 90 mál
– Árið 2023: 115 mál
6. Hversu marga aðila og hversu oft hefur sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu sektað fyrir að reka heimagistingu án skráningar, sbr. 2. mgr. 22. gr. laga nr. 85/2007? Svar óskast sundurliðað eftir árum frá árinu 2016 þar til nú.
Fjöldi stjórnvaldssekta, fyrir að reka heimagistingu án skráningar, og álagðar sektir eru sem hér segir frá 2018:
– Álagðar stjórnvaldssektir 2018: 27.450.000 kr. (33 stjórnvaldssektir)
– Álagðar stjórnvaldssektir 2019: 61.530.000 kr. (75 stjórnvaldssektir)
– Álagðar stjórnvaldssektir 2020: 28.739.500 kr. (38 stjórnvaldssektir)
– Álagðar stjórnvaldssektir 2021: 26.024.020 kr. (17 stjórnvaldssektir)
– Álagðar stjórnvaldssektir 2022: 5.840.000 kr. (3 stjórnvaldssektir)
– Álagðar stjórnvaldssektir 2023: 9.083.900 kr. (13 stjórnvaldssektir)
7. Hversu marga aðila og hversu oft hefur sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu sektað fyrir að stunda útleigu lengur en 90 daga á almanaksári eða fyrir hærri fjárhæð en kveðið er á um í 3. tölul. 4. gr. laga um virðisaukaskatt, nr. 50/1988? Svar óskast sundurliðað eftir árum frá árinu 2016 þar til nú.
Í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 85/2007 segir m.a. að hver sá sem hyggst bjóða upp á skráningarskylda heimagistingu í samræmi við 1. mgr. 3. gr. laganna skuli tilkynna sýslumanni það. Með slíkri tilkynningu/skráningu hjá sýslumanni staðfestir aðili að húsnæðið uppfylli kröfur í reglugerð um brunavarnir, að það hafi hlotið samþykki sem íbúðarhúsnæði, og að húsnæðið sé fullnægjandi með tilliti til hollustuhátta samkvæmt lögum um hollustuhætti og brunavarnir. Frá því að sektarheimildin tók gildi hefur sýslumaður ekki sektað aðila sem eru skráðir í samræmi við framangreint þrátt fyrir að viðkomandi hafi farið yfir 90 daga. Sýslumaður forgangsraðar verkefnum með tilliti til alvarleika brota og mikilvægis þess að aðilar sem bjóða gistingu skrái gistinguna í samræmi við lög. Hingað til hafa allar sektir beinst að óskráðum aðilum, sem í öllum tilvikum eru óskráðir og fara umfram 90 daga. Hvað varðar fjölda aðila vísast í svar við 6. tölul. fyrirspurnarinnar.
8. Hversu marga aðila og hversu oft hefur sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu sektað fyrir að nota ekki númer rekstrarleyfis eða skráningar í markaðssetningu skv. 4. mgr. 11. gr. og 3. mgr. 13. gr. laga nr. 85/2007 eða fyrir að skila ekki nýtingaryfirliti til sýslumanns skv. 2. mgr. 13. gr. sömu laga? Svar óskast sundurliðað eftir árum frá árinu 2016 þar til nú.
Sýslumaður fékk lagaheimild til að leggja stjórnvaldssektir, annars vegar á þá sem nota ekki númer rekstrarleyfis eða skráningarefni þann 1. janúar 2017, og hins vegar lagaheimild til að leggja stjórnvaldssektir á þá sem skila ekki nýtingaryfirliti til sýslumanns þann 25. júní 2019. Sýslumaður hefur ekki enn beitt umræddum sektarheimildum. Líkt og fram kemur í svari við 7. tölul. fyrirspurnarinnar má rekja það til forgangsröðunar verkefna að teknu tilliti til alvarleika brota og mikilvægis þess að aðilar sem bjóða gistingu skrái hana í samræmi við ákvæði laga nr. 85/2007. Rétt er að geta þess að allir aðilar sem hafa verið sektaðir frá því að sektarheimildin kom inn í lögin notuðu hvorki skráningarnúmer né skiluðu nýtingaryfirliti. Líkt og kemur fram í svari við 2. tölul. fyrirspurnarinnar er lagt upp með að fylgst verði sérstaklega með notkun skráningarnúmera í markaðssetningu í viðbótarsamningi við sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu.