Ferill 629. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1151  —  629. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum, nr. 80/2002 (endurgreiðslur).

Frá velferðarnefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gest frá mennta- og barnamálaráðuneyti.
    Nefndinni bárust engar umsagnir um málið.
    Frumvarpið felur í sér afmarkaðar breytingar á 15. gr. barnaverndarlaga í því skyni að skýra nánar þær reglur sem gilda um endurgreiðslur ríkissjóðs vegna barnaverndarþjónustu sem er, samkvæmt lögunum, veitt börnum sem ekki hafa fasta búsetu á Íslandi eða börnum sem eru án forsjáraðila sinna og hafa hlotið alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi hér á landi.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Hún ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
    Guðbrandur Einarsson, áheyrnarfulltrúi, er samþykkur áliti þessu.

Alþingi, 4. mars 2024.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir,
form.,
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, frsm. Jóhann Páll Jóhannsson.
Líneik Anna Sævarsdóttir. Bryndís Haraldsdóttir. Óli Björn Kárason.
Ásmundur Friðriksson. Guðmundur Ingi Kristinsson. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir.