Ferill 774. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1172  —  774. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um hjúkrunarheimili á landsbyggðinni.

Frá Eyjólfi Ármannssyni.


     1.      Telur ráðherra að fjármögnun hjúkrunarheimila á landsbyggðinni sé viðunandi?
     2.      Hefur ráðherra athugað hvort tilefni sé til að hækka svokallað smæðarálag til minni hjúkrunarheimila?
     3.      Telur ráðherra að breyta eigi fjármögnun minni hjúkrunarheimila til að auka sveigjanleika í greiðsluþátttöku hins opinbera?


Munnlegt svar óskast.