Ferill 486. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1198  —  486. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á kvikmyndalögum, nr. 137/2001 (framleiðslustyrkur til lokafjármögnunar).

Frá allsherjar- og menntamálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá menningar- og viðskiptaráðuneyti, Sambandi íslenskra kvikmyndaframleiðenda, Samtökum iðnaðarins, Kvikmyndasafni Íslands og Kvikmyndamiðstöð Íslands.
    Nefndinni bárust tvær umsagnir sem eru aðgengilegar á síðu málsins á vef Alþingis, auk minnisblaðs frá menningar- og viðskiptaráðuneyti. Málið var áður lagt fram á 153. löggjafarþingi ( 899. mál) og hafði nefndin einnig hliðsjón af umsögnum sem bárust þá.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á kvikmyndalögum, nr. 137/2001, til samræmis við kvikmyndastefnu til ársins 2030 og í ljósi reynslu af framkvæmd laganna. Þá er mælt fyrir um nýjan styrkjaflokk Kvikmyndasjóðs sem ætlað er að styrkja gerð viðamikilla leikinna sjónvarpsþáttaraða og fela styrkirnir í sér kröfu um endurheimt verði tilteknum tekjuviðmiðum verkefnis náð.

Umfjöllun nefndarinnar.
Styrkir til leikinna sjónvarpsþáttaraða með skilyrði um endurheimt.
    Líkt og rakið er í greinargerð með frumvarpinu er markmið frumvarpsins einkum að styðja við framleiðslu, sölu og dreifingu leikinna sjónvarpsþáttaraða með vísan til aðgerðar í kvikmyndastefnu til ársins 2030 sem kveður á um nýjan fjárfestingarsjóð sjónvarpsefnis þar sem gert er ráð fyrir að hluti hagnaðar af sölu og dreifingu renni til baka til Kvikmyndasjóðs, sem lagt er til að verði falin umsýsla með sjóðnum. Með vísan til kvikmyndastefnu er með frumvarpinu lögð til útfærsla á aðgerðinni og mælt fyrir um nýjan styrkjaflokk Kvikmyndasjóðs sem er ætlað að auka tækifæri til framleiðslu nýs sjónvarpsefnis. Í kvikmyndalögum er ekki gert ráð fyrir að styrkir séu veittir með skilyrði um endurheimt hluta tekna og er því með frumvarpinu lögð til sú breyting að Kvikmyndasjóði verði heimilt að veita styrki með svipuðum skilyrðum um endurheimt og Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn setur.
    Nefndin tekur undir það sem fram kemur um markmið kvikmyndastefnu hvað auðuga kvikmyndamenningu snertir og vísað er til í greinargerð. Markmiðið miðar að því að stuðla að fjölbreyttri kvikmyndamenningu sem styrki sjálfsmynd þjóðarinnar og efli íslenska tungu. Til að íslensk kvikmynda- og sjónvarpsþáttagerð geti staðið jafnfætis erlendri framleiðslu þarf að búa íslenskri kvikmyndagerð góð vaxtarskilyrði.
    Í umsögn frá Sambandi íslenskra kvikmyndaframleiðenda segir að það sé jákvætt skref að kveða á um nýjan styrkjaflokk sem taki mið af þörfum innan greinarinnar. Þó er mikilvægi þess ítrekað að nýjum styrkjaflokki fylgi fjárframlög svo að hann gangi ekki á önnur verkefni innan sjóðsins. Nefndin tekur undir það og beinir því til ráðuneytisins að leitast verði við að nýr styrkjaflokkur komi ekki niður á öðrum verkefnum. Í minnisblaði menningar- og viðskiptaráðuneytis, dags. 25. janúar 2024, er bent á að fjárveitingar til Kvikmyndasjóðs koma fram í fjárlögum hvers árs og skiptast fjárframlög eftir tegundum verkefna. Nýr styrkjaflokkur verður fjármagnaður í samræmi við skiptingu sem ákvörðuð er af forstöðumanni í samráði við ráðuneytið og kvikmyndaráð. Þá munu endurgreiðslur renna óskiptar í Kvikmyndasjóð og efla sjóðinn. Verði frumvarpið að lögum verða gerðar breytingar á reglugerð um Kvikmyndasjóð, nr. 229/2003, þar sem bætt verður við reglugerðina kafla með útfærslu nýs styrkjaflokks en drög að breytingu á reglugerðinni liggja fyrir í samráðsgátt stjórnvalda.

Skil á kvikmyndum til Kvikmyndasafns Íslands.
    Í umsögn Kvikmyndasafns Íslands er lagt til að lokastyrkur verkefna sem studd eru af Kvikmyndamiðstöð Íslands verði bundinn við skil á styrktri kvikmynd til Kvikmyndasafns Íslands. Kvikmyndasafn Íslands hefur gert samning við Kvikmyndamiðstöð um að lokastyrkur sé ekki afhentur framleiðendum fyrr en mynd hafi verið skilað til Kvikmyndasafnsins en til framtíðar litið væri æskilegt að slíkt skilyrði yrði lögbundið. Samkvæmt 8. gr. kvikmyndalaga, nr. 137/2001, er hlutverk Kvikmyndasafns Íslands að safna, skrásetja og varðveita íslenskar kvikmyndir, þ.m.t. að varðveita skilaskylt efni samkvæmt lögum um skylduskil til safna, nr. 20/2002.
    Í minnisblaði menningar- og viðskiptaráðuneytis til nefndarinnar, dags. 25. janúar 2024, kemur fram að í kvikmyndalögum sé kveðið á um almennan ramma þar sem ekki er vísað til styrkjaflokka, úthlutunarreglna eða framkvæmdar styrkveitingar. Slík atriði séu útfærð í reglugerð og svo í úthlutunarsamningum miðstöðvarinnar við styrkþega. Að mati ráðuneytisins og Kvikmyndamiðstöðvar Íslands er ekki endilega þörf á að setja skilyrði um skil til safnsins inn í lögin. Þá má benda á að í lögum um skylduskil til safna, nr. 20/2002, fjalli 11. gr. laganna um kvikmyndir og í 10. mgr. 11. gr. segi að skilaskylda íslenskrar kvikmyndar hvíli á framleiðanda hennar og skilaskylda erlendrar kvikmyndar hvíli á dreifingaraðila hér á landi. Nefndin tekur undir mikilvægi þess að kvikmyndir skili sér án undantekninga til Kvikmyndasafns Íslands og telur jákvætt að fyrir liggi samningur þess efnis við Kvikmyndamiðstöð Íslands og að það sé skilyrði fyrir lokastyrk. Nefndin áréttar að í lögum um skylduskil til safna er kveðið á um skilaskyldu kvikmynda og jafnframt um heimild fyrir móttökusafn til að leggja á dagsektir skv. 21. gr. ef skilaskyldur aðili afhendir ekki verk.

Aðrar breytingar á kvikmyndalögum.
    Með frumvarpinu eru jafnframt lagðar til aðrar breytingar á kvikmyndalögum í ljósi reynslu af framkvæmd laganna og kvikmyndastefnu til ársins 2030. Lagt er til að kveðið verði á um varðveislu kvikmyndaarfs á Íslandi með áherslu á varðveislu, miðlun og aukið aðgengi að kvikmyndaarfinum. Þá er lagt til að Kvikmyndamiðstöð Íslands efli kvikmyndafræðslu og þrói m.a. námsefni fyrir öll skólastig í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Þá er kveðið á um hámarksskipunartíma forstöðumanns Kvikmyndasafns Íslands, til samræmis við skipunartíma forstöðumanna annarra opinberra stofnana á sviði lista, t.d. Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, þjóðleikhússtjóra og safnstjóra Listasafns Íslands. Loks eru gjaldskrárheimildir Kvikmyndasafns uppfærðar með tilliti til tæknibreytinga síðastliðin ár sem kalla á breytta nálgun í þjónustu safnsins. Nefndin telur framangreindar breytingar á lögunum til bóta.

    Að framangreindu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Bergþór Ólason og Dagbjört Hákonardóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Halldóra Mogensen ritar undir álit þetta með fyrirvara um að fjármagn fylgi nýjum styrkjaflokki hjá Kvikmyndasjóði.

Alþingi, 7. mars 2024.

Bryndís Haraldsdóttir,
form.
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir,
frsm.
Eyjólfur Ármannsson.
Berglind Ósk Guðmundsdóttir. Halldóra Mogensen. Líneik Anna Sævarsdóttir.
Brynhildur Björnsdóttir.