Ferill 596. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1202  —  596. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um styrki og samstarfssamninga.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvaða fyrirtæki og félagasamtök hafa notið styrks frá ráðuneytinu, undirstofnunum þess eða sjóðum á vegum ráðuneytisins eða undirstofnana þess eða gert samstarfssamning við þessa aðila frá 1. janúar 2017 þar til nú, þar sem samanlögð upphæð styrks eða fjárhæð í samstarfssamningi var 10 millj. kr. eða hærri? Svar óskast sundurliðað eftir árum, eftir því hvers eðlis styrkur eða samstarfssamningur var og eftir því hversu oft styrkur eða samstarfssamningur var endurnýjaður.

    Eftirfarandi yfirlit sýnir styrki og samstarfssamninga ráðuneytisins til fyrirtækja og félagasamtaka á tímabilinu 2017–2023, þar sem samanlögð fjárhæð styrks er 10 millj. kr. eða hærri. Engin af undirstofnunum ráðuneytisins hefur veitt styrki eða gert samstarfssamninga, þar sem samanlögð upphæð var yfir 10 millj. kr., á umræddu tímabili og því eru hér einungis samningar sem ráðuneytið hefur gert.

Verkefni 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023
Íslensk ættleiðing Rekstrarstyrkur 34,0 34,0 34,0 34,0 34,0 34,0 31,5
Mannréttindaskrifstofa Íslands Rekstrarstyrkur endurnýjaður 12,0 12,0 13,0 26,0 26,5 – –
Rauði krossinn á Íslandi Rekstrarstyrkur samþykktur á fjárlögum v/COV-19 – – – – 107,0 – –
Slysavarnafélagið Landsbjörg Rekstrarstyrkur samþykktur á fjárlögum v/COV-19 – – 15,0 – 100,0 – –
Vernd Rekstrarstyrkur samþykktur á fjárlögum v/COV-19 – – – – 14,0 – –
Slysavarnafélagið Landsbjörg Þjónustusamningur og viðhald björgunarskipa 244,2 179,7 186,3 188,8 193,6 191,9 196,8
Neyðarlínan Rekstrarsamningur 410,0 422,5 468,0 577,7 691,5 594,2 678,3
Neyðarlínan Tilkynningarskylda íslenskra skipa 40,5 40,5 42,5 44,3 44,3 45,5 49,7
Slysavarnafélagið Landsbjörg Nýtt björgunarskip – – – – 150,0 265,0 150,0
Háskóli Íslands Rekstrarstyrkur v/rannsóknarmiðstöðvar HÍ í jarðskjálftaverkfræði 11,9 11,9 11,9 11,9 11,9 11,9 11,9