Ferill 792. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1206  —  792. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um stækkun dreifingarmiðstöðvar og nýjan útsölustað ÁTVR í Mjódd.

Frá Diljá Mist Einarsdóttur.


     1.      Hvernig samrýmast áætlanir ÁTVR um stækkun dreifingarmiðstöðvar og nýjan útsölustað í Suður-Mjódd markmiðum stjórnvalda um að beita ríkisfjármálum til þess að vinna gegn verðbólgu, m.a. með því að draga úr fjárfestingarumsvifum ríkisins?
     2.      Hvernig samrýmast áætlanir ÁTVR um stækkun dreifingarmiðstöðvar þeim upplýsingum að sala ÁTVR á áfengi hafi dregist saman?


Munnlegt svar óskast.