Ferill 845. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1266 — 845. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um persónuskilríki.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
1. Hvert er verklagið þegar einstaklingur getur ekki framvísað persónuskilríkjum að kröfu lögreglu?
2. Telur ráðherra að það hafi áhrif á heimild lögreglu til að krefjast þess að einstaklingur sýni skilríki að ekki séu í boði gjaldfrjáls skilríki af hálfu hins opinbera?
3. Hvaða samráð var haft við ráðuneytið þegar ákveðið var að hefja gjaldtöku fyrir afgreiðslu nafnskírteina 1. janúar 2023, sem fyrir þann tíma voru einu gjaldfrjálsu persónuskilríkin? Hvaða samráð var haft í aðdraganda þess að gjaldið var hækkað í 9.200 kr. 1. janúar 2024?
Skriflegt svar óskast.