Ferill 932. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1379 — 932. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um gerð viðauka við almenna eigendastefnu fyrir öll fyrirtæki í eigu ríkisins.
Flm.: Björn Leví Gunnarsson, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Gísli Rafn Ólafsson, Andrés Ingi Jónsson, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir.
Alþingi ályktar að fela fjármála- og efnahagsráðherra og öðrum ráðherrum sem eru í forsvari fyrir fyrirtæki í eigu ríkisins að semja viðauka við almenna eigendastefnu fyrir hvert fyrirtæki sem er í meirihlutaeigu ríkisins. Viðaukarnir skulu m.a. fjalla um grundvöll eignarhalds ríkisins á viðkomandi fyrirtæki, markmið með eignarhaldi, hlutverk fyrirtækisins, takmarkanir á hlutverki fyrirtækisins, arðgreiðslustefnu, skipulag eigendahlutverksins, meginreglur eigendastefnu, stjórnarhætti, kröfur og árangursviðmið.
Fjármála- og efnahagsráðherra skal vinna viðauka við almenna eigendastefnu í samráði við aðra hlutaðeigandi ráðherra og stjórnir ríkisfyrirtækja. Vinnu við viðaukana skal lokið fyrir aðalfund hvers félags á árinu 2025.
Greinargerð.
Þingsályktunartillögu þessari er ætlað að gera fjármála- og efnahagsráðherra, eða þeim ráðherra sem fer með forsvar fyrir hönd ríkisins, skylt að hefja sem fyrst vinnu við viðauka við almenna eigendastefnu fyrir hvert félag í eigu ríkisins, sem fjalla á ítarlegan máta um atriði sem ekki eiga heima í almennri eigendastefnu. Meðal þess sem viðauki við almenna eigendastefnu myndi skýra væri ástæða eignarhalds ríkisins á viðkomandi fyrirtæki og markmið með eignarhaldinu, hvert hlutverk viðkomandi fyrirtækis er og ekki síður hvaða hlutverki viðkomandi fyrirtæki á ekki að gegna.
Með samningu viðauka við almenna eigendastefnu fá stjórnendur ríkisfyrirtækjanna skýran ramma utan um starfsemina og skýrari og opinskárri samskipti við eigendur fyrirtækjanna. Í rekstri fyrirtækja þurfa ákveðin atriði að njóta leyndar, einnig í rekstri ríkisfyrirtækja, en viðauki við almenna eigendastefnu mun auka gagnsæi í rekstri þeirra eftir fremsta megni, fjölmiðlum, öðrum fyrirtækjum og almenningi til heilla.
Fyrirtæki í eigu ríkisins að meiri hluta eða öllu leyti.
Samkvæmt ársskýrslu ríkisfyrirtækja 2022 myndi þingsályktunartillaga þessi ná til eftirfarandi fyrirtækja:
| Ríkisfyrirtækin | Eignarhlutur | Fyrirsvar |
| Auðkenni ehf. | 100% | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
| Betri samgöngur ohf. | 100% | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
| Farice ehf. | 100% | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
| Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús ohf. | 54% | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
| I ohf. | 100% | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
| Ríkisútvarpið ohf. | 100% | Menningar- og viðskiptaráðuneytið |
| Vaðlaheiðargöng hf. | 93% | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
| Landsnet hf. | 93% | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
| Landsvirkjun | 100% | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
| Orkubú Vestfjarða ohf. | 100% | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
| Rarik ohf. | 100% | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
| Landsbankinn hf. | 98% | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
| Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins | 100% | Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið |
| Sparisjóður Austurlands hf. | 50% | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
| Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins | 100% | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
| Happdrætti Háskóla Íslands | 100% | Háskóli Íslands |
| Íslandspóstur ohf. | 100% | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
| Íslenskar orkurannsóknir | 100% | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið |
| Landskerfi bókasafna hf. | 51% | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
| Matís ohf. | 100% | Matvælaráðuneytið |
| Neyðarlínan ohf. | 100% | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
| Öryggisfjarskipti ehf. | 75% | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
| Vigdísarholt ehf. | 100% | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
| Eignarhlutir ehf. | 100% | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
| Fasteignir Háskóla Íslands ehf. | 100% | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
| Leigufélagið Bríet | 100% | Húsnæðis- og mannvirkjastofnun |
| Lindarhvoll ehf. | 100% | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
| Nýr Landspítali ohf. | 100% | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
| Sítus ehf. | 54% | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
| Tæknigarður ehf. | 100% | Háskóli Íslands |
| Vísindagarðar Háskóla Íslands | 95% | Háskóli Íslands |
| Vísindagarðurinn ehf. | 52% | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
| Icelandic Trademark Holding ehf. | 100% | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
| Keilir Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs | 51% | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
| Rannsókna- og háskólanet Íslands hf. | 86% | Háskóli Íslands |
| Tæknisetur | 100% | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |
| Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf. | 100% | Fjármála- og efnahagsráðuneytið |