Ferill 740. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1399  —  740. mál.




Svar


matvælaráðherra við fyrirspurn frá Valgerði Árnadóttur um loðdýrarækt.


     1.      Hvað eru mörg loðdýrabú starfrækt á Íslandi?
    Sex.

     2.      Hversu mörg loðdýr eru ræktuð í þeim búum?
    Um það bil 7.600 minkar. Önnur loðdýr eru ekki ræktuð á Íslandi í atvinnuskyni. Fjöldatölurnar eru frá árslokum 2023 og fengnar frá Matvælastofnun.

     3.      Mun ráðherra beita sér fyrir því að banna loðdýrarækt á Íslandi vegna dýravelferðarsjónarmiða og í ljósi þess að 25 ríki í Evrópu hafa bannað loðdýrarækt af þeim sökum og sífellt fleiri bætast við?
    Mikilvægt er að gæta að velferð dýra í hvívetna, þar á meðal loðdýra. Markmið laga um velferð dýra er að stuðla að því að dýr séu laus við vanlíðan, hungur og þorsta, ótta og þjáningu, sársauka, meiðsli og sjúkdóma í ljósi þess að dýr eru skyni gæddar verur. Enn fremur er það markmið laganna að dýr geti sýnt sitt eðlilega atferli eins og frekast er unnt.
    Samkvæmt 75. gr. stjórnarskrárinnar er öllum frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa. Þessu frelsi má þó setja skorður með lögum, enda krefjist almannahagsmunir þess. Því er ljóst að ef banna skal ákveðna tegund búfjárhalds þarf Alþingi að setja lög þess efnis. Ekki stendur til að svo stöddu að leggja fram frumvarp á Alþingi um bann við loðdýrarækt. Ráðuneytið fylgist náið með þróun málaflokksins innan EES og á alþjóðavettvangi og hefur til hliðsjónar við vinnu sína.