Ferill 952. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1413  —  952. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um nýja geðdeild Landspítala.

Frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur.


     1.      Hvað líður uppbyggingu nýrrar geðdeildar Landspítala? Hvar verður hún staðsett, hvers konar aðbúnaður verður á deildinni og hvenær verður hún opnuð?
     2.      Eru markmið um að binda enda á nauðung í geðheilbrigðisþjónustu hluti af áætlunum ráðherra í tengslum við uppbyggingu nýrrar geðdeildar?


Skriflegt svar óskast.