Ferill 956. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1417  —  956. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um þjónustu við ungt fólk sem er ekki í vinnu, virkni eða námi.

Frá Líneik Önnu Sævarsdóttur.


     1.      Hversu margir einstaklingar á aldrinum 18–29 ára, sem falla undir NEET-skilgreiningu um að vera ekki í vinnu, virkni eða námi (e. Not in Education, Employment, or Training, NEET), njóta þjónustu á vegum stofnana ráðuneytisins eða aðila sem ráðuneytið á í samstarfi við?
     2.      Hvaða úrræði í heilbrigðiskerfinu miðast sérstaklega að þessum hópi?
     3.      Telur ráðherra þörf á breytingum á þjónustu við þennan hóp?


Skriflegt svar óskast.