Ferill 983. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.

Þingskjal 1446  —  983. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um bifhjól.

Frá Gísla Rafni Ólafssyni.


     1.      Eru ákvæði í lögum eða reglugerðum sem takmarka möguleika eigenda bifhjóla á að skila inn skráningarnúmerum tímabundið og þar með fella niður skyldu um ábyrgðartryggingu ökutækis og eftir atvikum slysatryggingu?
     2.      Hversu mörg bifhjól eru skráð á landinu?
     3.      Hversu mörg bifhjól eru afskráð tímabundið á hverju ári?
     4.      Hversu margir eru með gild ökuréttindi á bifhjól, skipt eftir flokkum?


Skriflegt svar óskast.