Ferill 812. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1467 — 812. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um gjaldfrjálsar tíðavörur í framhaldsskólum.
1. Hvaða framhaldsskólar buðu upp á gjaldfrjálsar tíðavörur við upphaf yfirstandandi skólaárs og hverjir ekki?
Ráðuneytið sendi fyrirspurnina til þeirra framhaldsskóla sem tilgreindir eru í meðfylgjandi töflu, alls 32, og óskaði eftir svörum við 1. og 2. tölul. fyrirspurnarinnar. Svör bárust frá öllum skólunum. Samkvæmt svörum skólanna buðu þrjátíu framhaldsskólar upp á gjaldfrjálsar tíðavörur við upphaf yfirstandandi skólaárs en tveir þeirra ekki, sbr. töflu.
2. Var aðgengi takmarkað að gjaldfrjálsum tíðavörum, þar sem þær voru í boði, með því að það þurfti t.d. að nálgast þær á skrifstofu skólans eða var þeim komið fyrir á öllum salernum skólans?
Í tuttugu og fjórum framhaldsskólum telst ótakmarkað aðgengi að tíðavörum á salernum. Í sex skólum eru tíðavörur aðgengilegar á skrifstofum, í almenningsrýmum eða á hluta salerna. Í eftirfarandi töflu eru svör skólanna sundurliðuð í samræmi við 1. og 2. tölul. fyrirspurnarinnar.
| Skóli | Voru tíðavörur aðgengilegar við upphaf skólaárs? | Er aðgangur að tíðavörum takmarkaður? |
| Borgarholtsskóli | Já | Nei. Gott aðgengi er að gjaldfrjálsum tíðavörum á nemendasalernum. |
| Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra | Já | Nei. Gjaldfrjálsar tíðavörur eru á öllum salernum. |
| Fjölbrautaskóli Snæfellinga | Nei | |
| Fjölbrautaskóli Suðurlands | Já | Tíðavörur eru aðgengilegar á skrifstofu skólans. |
| Fjölbrautaskóli Suðurnesja | Já | Tíðavörur eru aðgengilegar á skrifstofu skólans. |
| Fjölbrautaskóli Vesturlands | Já | Nei. Tíðavörur eru aðgengilegar á öllum salernum skólans. |
| Fjölbrautaskólinn í Ármúla | Já | Tíðavörur eru aðgengilegar á skrifstofu skólans. |
| Fjölbrautaskólinn í Breiðholti | Já | Þær eru í boði á þremur salernum, tveimur í aðalbyggingu skólans og í verknámsbyggingu. Einnig eru tíðavörur aðgengilegar á bókasafni skólans. |
| Fjölbrautaskólinn í Garðabæ | Já | Tíðavörur eru aðgengilegar á borði fyrir framan skrifstofu náms- og starfsráðgjafa og á borði í bókasafni skólans. |
| Flensborgarskólinn í Hafnarfirði | Já | Nei. Tíðavörur eru aðgengilegar á salernum skólans. |
| Framhaldsskólinn á Húsavík | Já | Nei. Tíðavörur eru aðgengilegar bæði á salerni og á skrifstofu skólans. |
| Framhaldsskólinn á Laugum | Nei | |
| Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu | Já | Nei. Tíðavörur eru aðgengilegar á kvennasalernum skólans. |
| Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ | Já | Nei. Tíðavörur eru aðgengilegar á salernum skólans. |
| Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum | Já | Nei. |
| Kvennaskólinn í Reykjavík | Já | Nei. Aðgengi er ekki takmarkað. Gjaldfrjálsar tíðavörur eru í boði á öllum salernum skólans. |
| Menntaskóli Borgarfjarðar | Já | Nei. Tíðavörur eru aðgengilegar á salerni skólans. |
| Menntaskóli í tónlist | Já | Nei. Tíðavörur eru aðgengilegar á salernum skólans. |
| Menntaskólinn að Laugarvatni | Já | Nei. Tíðavörur eru í boði á salernum skólans. |
| Menntaskólinn á Akureyri | Já | Nei. Þær eru í boði á snyrtingum. |
| Menntaskólinn á Ísafirði | Já | Nei. Tíðavörur eru í boði á salernum. |
| Menntaskólinn á Tröllaskaga | Já | Nei. Er í boði við öll salerni skólans. |
| Menntaskólinn á Egilsstöðum | Já | Nei. Þeim er komið fyrir á flestum salernum skólans sem eru ókyngreind og á kvennasalernum. |
| Menntaskólinn í Kópavogi | Já | Nei. Hægt er að nálgast tíðavörur gjaldfrjálst á nokkrum kvennaklósettum í tveimur álmum skólans sem og á skrifstofu skólans. |
| Menntaskólinn í Reykjavík | Já | Nei. Aðgengi er ótakmarkað, þ.e. þeim er dreift á salerni skólans, í íþrótthús og hjá hjúkrunarfræðingi. |
| Menntaskólinn við Hamrahlíð | Já | Nei. Þær eru í boði í körfum í opnu rými fyrir framan almenningssalerni. |
| Menntaskólinn við Sund | Já | Þær eru í boði á skrifstofu og nokkrum salernum til þess að minnka sóun. |
| Myndlistaskólinn í Reykjavík | Já | Nei. Tíðavörur eru aðgengilegar á öllum salernum. |
| Tækniskólinn | Já | Nei. Það eru gjaldfrjálsar tíðavörur á öllum kvennasalernum og flestöllum ókynjaskiptum. |
| Verkmenntaskóli Austurlands | Já | Nei. Tíðavörur eru aðgengilegar á salernum skólans. |
| Verkmenntaskólinn á Akureyri | Já | Nei. Tíðavörur eru aðgengilegar á snyrtingum kvenna. |
| Verzlunarskóli Íslands | Já | Nei. Tíðavörurnar eru á nokkrum salernum í skólanum þannig að aðgengi er gott. |