Ferill 1099. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1634 — 1099. mál.
Skýrsla
utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál.
Árleg skýrsla utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál er enn á ný lögð fyrir þingið á meðan hryllilegt innrásarstríð Rússlands geisar í Úkraínu. Fyrir botni Miðjarðarhafs hefur ófriðarbál kviknað með blóðugum átökum og ómældum hörmungum sem haft hafa víðtæk samfélagsleg áhrif og kynt undir sundrungu meðal þjóða. Í Súdan, á Haítí og í Mjanmar þjást óbreyttir borgarar sem ekkert hafa til sakar unnið í þeirri skálmöld sem þar ríkir. Vaxandi skautun og verndarhyggja, afturför lýðræðis og mannréttinda, að ógleymdri loftslagsvánni, eru allt alvarlegar áskoranir sem alþjóðasamfélagið stendur frammi fyrir. Fyrir litla þjóð sem byggir velsæld sína og sjálfstæði á öflugu alþjóðakerfi, opnum heimsviðskiptum og virðingu fyrir alþjóðalögum er ekki valkostur að sitja hjá.
Á víðsjárverðum tímum er enn brýnna að vel sé hlúð að víðtækum hagsmunum Íslands á alþjóðavettvangi. Utanríkisþjónustan er framvörður þjóðarinnar í margbreyttri hagsmunagæslu sem lýtur að varðveislu alþjóðakerfisins og grunngildanna sem það byggir á, vörnum og öryggi landsins, markaðsaðgangi fyrir íslensk fyrirtæki og varðstöðu um það ferða- og athafnafrelsi sem við Íslendingar njótum á alþjóðavettvangi, auk aðstoðar við Íslendinga og íslensk fyrirtæki erlendis þar sem sendiskrifstofur Íslands víða um heim gegna lykilhlutverki. Um störf hennar á árinu 2023 er fjallað í sérstakri skýrslu sem fylgir þingskjali þessu.
Allt frá fyrstu árum lýðveldisins hefur Ísland skipað sér í lið með vestrænum þjóðum sem staðið hafa vörð um framþróun lýðræðis og mannréttinda og virðingu fyrir alþjóðalögum. Utanríkisstefnan hverfist um þessi gildi sem eru meitluð í stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þau eru undirstaða málflutnings okkar á vettvangi alþjóðastofnana, liggja til grundvallar öryggis- og varnarmálasamstarfs, frjálsum milliríkjaviðskiptum, þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar.
Utanríkisstefnan hvílir sömuleiðis á traustum stoðum samninga og samstarfs við aðrar þjóðir. Á þeim grundvelli hefur okkur auðnast að tryggja öryggi lands og þjóðar og skapa lífskjör og tækifæri sem eru óvíða betri. Aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamningurinn við Bandaríkin eru grunnstoðir öryggis og varna Íslands. Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið er mikilvægasti og víðfeðmasti viðskiptasamningur Íslands og aðild Íslands að Fríverslunarsamtökum Evrópu veitir okkur greiðan aðgang að mörkuðum utan Evrópu. Þá er norrænt samstarf lykilþáttur í framkvæmd og stefnumótun á öllum sviðum utanríkismála. Á síðasta ári gegndi Ísland formennsku í því samstarfi sem felur í sér umfangsmikla samræmingu á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar, eins og gerð er grein fyrir í sérstakri skýrslu samstarfsráðherra Norðurlanda.
Ábyrgðarstörf í þágu lýðræðis, mannréttinda og réttarríkisins.
Framlag Íslands getur oft á tíðum verið veigameira en smæð okkar segir til um. Við leitum í sífellu leiða til að stuðla að láta gott af okkur leiða, einmitt í krafti smæðarinnar, og það er metnaðarmál að við sinnum því vel sem okkur er treyst fyrir.
Sögulegur leiðtogafundur Evrópuráðsins sem haldinn var í Reykjavík fyrir ári við góðan orðstír var áþreifanlegt framlag Íslands til að treysta í sessi grunngildi ráðsins; lýðræði, mannréttindi og réttarríkið. Þetta endurspeglast í Reykjavíkuryfirlýsingunni, lokaniðurstöðum fundarins, og þeim meginreglum um lýðræði sem leiðtogarnir samþykktu að fylkja sér um og kenndar eru við Reykjavik (e. Reykjavík Principles of Democracy).
Þótt fundurinn hafi verið hátíðlegur og vel af öllu skipulagi og umgjörð látið, mátti glöggt merkja að hann var haldinn í skugga innrásar Rússlands í Úkraínu. Stuðningur aðildarríkjanna við baráttu Úkraínumanna fyrir landi sínu og frelsi var þungamiðjan í umræðum og niðurstöðum fundarins. Leiðtogarnir ályktuðu í þágu brottnuminna úkraínskra barna og með stofnsetningu alþjóðlegrar tjónaskrár fyrir Úkraínu var stigið mikilvægt skref í átt að uppgjöri á þeim skaða sem Rússland veldur með ógeðfelldu framferði sínu.
Fundurinn var lokastefið í hálfsárslangri formennsku Íslands í Evrópuráðinu. Auk grunngildanna var lögð áhersla á málefni barna, kynjajafnrétti og réttindi hinsegin fólks, og tengsl umhverfis og mannréttinda. Þessar sömu áherslur eru í fyrirrúmi í stjórnarstörfum Íslands í Mennta- og menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) og grundvallaratriði í störfum okkar á vettvangi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna 2025–2027, nái Ísland kjöri.
Okkur hefur einnig verið falin ábyrgðarstörf sem varða sjálfbæra nýtingu auðlinda. Ísland var nýverið kjörið til stjórnarsetu hjá Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO), og á vettvangi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) hefur Ísland verið í forystuhlutverki í samningaviðræðum um afnám ríkisstyrkja í sjávarútvegi á heimsvísu.
Verðugur bandamaður.
Í 75 ár hefur Ísland tryggt öryggi sitt með þátttöku í sterkasta varnarbandalagi sögunnar og með tvíhliða varnarsamningi við öflugasta herveldi heims. Nú þegar alþjóðakerfið á undir högg að sækja og Evrópa stendur frammi fyrir stærstu öryggisógn frá lokum síðari heimsstyrjaldar er nauðsynlegt að Ísland vinni að sameiginlegum öryggishagsmunum sem verðugur bandamaður og standi vörð um alþjóðalög og rétt.
Áframhaldandi stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu er mikilvægasta framlag lýðræðisríkja til að tryggja eigið öryggi og varnir. Samtímis glíma þau við fjölþáttaógnir, hættu á hryðjuverkum, og áskoranir sem fylgja hraðri tækniþróun og örum breytingum í alþjóðasamfélaginu. Vegna þessa gerbreytta öryggislandslags hafa ríki Evrópu snúið við blaðinu og hækkað framlög sín til varnarmála svo um munar. Er svo komið að meirihluti bandalagsríkja mun standa við skuldbindingar sínar innan Atlantshafsbandalagsins um að verja að minnsta kosti tveimur prósentum af vergri landsframleiðslu til varnarmála.
Á vettvangi Atlantshafsbandalagsins hafa stefnur og áætlanir verið uppfærðar með áherslu á nærvarnir og fælingu. Á leiðtogafundi bandalagsins í Vilníus í júlí 2023 samþykktu leiðtogarnir nýjar svæðisbundnar varnaráætlanir sem fela í sér mestu breytingar í sögu bandalagsins frá lokum kalda stríðsins. Aðild Finnlands og Svíþjóðar styrkir svo öryggi Norðurlandanna og eflir til muna fælingar- og varnarmátt bandalagsins alls.
Hér á landi hefur verið brugðist við með því að uppfæra viðbragðsáætlanir í takt við áætlanir bandalagsins og setja aukinn kraft í alþjóðlegt samstarf á sviði varnarmála. Samhliða auknu samstarfi á vettvangi Atlantshafsbandalagsins hefur svæðisbundinni varnarsamvinnu vaxið fiskur um hrygg innan ramma Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (JEF), norræns varnarsamstarfs (NORDEFCO) og meðal norðurskautsríkjanna að frátöldu Rússlandi. Sameiginleg verkefni Bandaríkjanna og Íslands, á grundvelli gagnkvæmra varnarskuldbindinga, hafa einnig vaxið að umfangi vegna aðgerða og innviðauppbyggingar á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli, ekki síst í tengslum við kafbátaeftirlit og fælingaraðgerðir á Norður-Atlantshafi. Þannig höfum við markvisst lagt meira af mörkum til sameiginlegra öryggishagsmuna og eflt öryggi Norður-Atlantshafssvæðisins.
Innanlands miðar aukið samráð á sviði öryggis- og varnarmála að því að styrkja álags- og áfallaþol innviða, stjórnkerfis og samfélagsins alls vegna þeirra ólíku öryggisógna sem við stöndum frammi fyrir. Fjárframlög til varnarmála hérlendis hafa aukist jafnt og þétt að undanförnu, innlent samráð verið styrkt og upplýsingaskipti um öryggis- og varnarmál verið efld. Áfram verður unnið að því að styrkja álags- og áfallaþol innviða, stjórnkerfis og samfélagsins alls vegna þeirra ólíku öryggisógna sem við stöndum frammi fyrir.
Þótt staða Íslands sé um margt ólík stöðu annarra bandalagsríkja í ljósi herleysis vinna íslensk stjórnvöld að því að auka framlög til varnarmála enn frekar til þess að geta talist trúverðugur aðili að þessu öfluga varnarsamstarfi þar sem Ísland hefur undirgengist skyldu til að leggja sitt af mörkum til sameiginlegra varna. Það má þó aldrei gleymast að slíkt framlag er fyrst og fremst í okkar eigin þágu. Ísland þarf að fjárfesta í eigin getu og viðbúnaði til að tryggja eigin öryggishagsmuni sem jafnframt eykur öryggi annarra bandalagsríkja. Í þeim efnum eru mörg tækifæri til þess að gera betur.
Viðsjárverðir tímar.
Í rúm tvö ár hafa Úkraínumenn varist ólöglegri og grimmilegri allsherjarinnrás Rússlands, fært með því ómældar fórnir og sýnt meira hugrekki og kænsku en nokkur bjóst við. En þjóð getur ekki varið sig með hugrekkinu einu saman. Undanfarna mánuði hefur Úkraína kallað eftir því að Vesturlönd veiti þeim enn meiri og tímanlegri stuðning því það er sannarlega við ramman reip að draga í þessu stríði.
Það er nú deginum ljósara að Rússar svífast einskis og virða alþjóðalög og -samninga að vettugi þegar heimsvaldastefna þeirra er annars vegar. Rússland hefur umbreytt efnahag sínum og bætt hernaðarframleiðslugetu sína með aðstoð vafasamra bandamanna. Innrásin er skýr atlaga að alþjóðakerfinu sem byggist á virðingu fyrir alþjóðalögum, friðhelgi landamæra og landhelgi ríkja. Í ljósi þessa gjörbreytta öryggislandslags í Evrópu sáu Finnland og Svíþjóð þann kost vænstan að láta af langvarandi stefnu um að standa utan varnarbandalaga og ganga til liðs við Atlantshafsbandalagið.
Það er því um fleira að tefla en landsvæði og sjálfstæði Úkraínu. Alþjóðakerfið, virðing fyrir alþjóðalögum og friðhelgi landamæra, ásamt öryggi og frelsi Evrópubúa, eru að veði. Væri framganga Rússa látin óátalin fæli það í sér umbreytingu á leikreglum alþjóðasamfélagsins í þá veru að breyta megi landamærum og uppræta fullveldi í skjóli vopnavalds. Því er nauðsynlegt að Ísland taki þátt í samstilltu átaki vestrænna lýðræðisþjóða um að standa þétt við bakið á Úkraínu í varnarstríði sínu svo lengi sem þörf er á.
Í þessu augnamiði samþykkti Alþingi nýlega mikilvæga ályktun um langtímastuðning Íslands við Úkraínu og á næstunni munu stjórnvöld skrifa undir tvíhliða samning við Úkraínu þar að lútandi. Til stendur að styrkja tvíhliða samskipti við Úkraínu, tala áfram fyrir ábyrgðarskyldu og réttlátum friði á alþjóðavettvangi, veita mannúðaraðstoð og efnahagslega aðstoð til að styrkja innviði í Úkraínu. Minnug þess varnarstuðnings sem við sjálf njótum, getum við ekki veigrað okkur við því að styðja með beinum hætti við varnir Úkraínu til að svara brýnni þörf á vígvellinum. Án vopna og varna verður innrás Rússlands ekki hrundið, mannúðarkrísan dýpkar og stuðningur við framþróun og lýðræðislegar umbætur verður til einskis. Með því að svara kalli Úkraínu verjum við beina öryggishagsmuni Íslands og stöndum vörð um það alþjóðakerfi sem fullveldi Íslands byggist á. Þess vegna er ekki valkostur að sitja hjá.
Það sama gildir um nágrannaríki Úkraínu og á nærsvæðum á Balkanskaga og í Suður-Kákasus þar sem spenna kraumar undir og áhrif Rússa ógna stöðugleika og framförum. Það er mikilvægt að lýðræðisþjóðir leggi sig fram við að aðstoða þessi ríki við að feta veg lýðræðis, frelsis og mannréttinda.
Sjónir heimsbyggðarinnar hafa að undanförnu beinst að þeim harmleik sem á sér stað fyrir botni Miðjarðarhafs. Skelfileg hryðjuverkaárás Hamas í Ísrael 7. október 2023, sem Ísland fordæmdi harðlega, var mannskæðasta árás á gyðinga frá helförinni. Ísland er meðal þeirra ríkja sem studdu rétt Ísraels til að verja sig gegn slíkri ógn en gerði jafnframt frá upphafi skýra kröfu um að stjórnvöld færu að alþjóðalögum í varnarbaráttu sinni. Alþingi áréttaði ákall Íslands um að hryðjuverk skuli fordæma, alþjóðalög skuli standa og grunnreglum um vernd borgara og aðgengi fyrir mannúðaraðstoð eigi aldrei að fórna. Skýr afstaða Alþingis í þessum efnum hefur verið leiðarljós í öllum málflutningi Íslands á alþjóðavettvangi.
Sterku ákalli Íslands og alþjóðasamfélagsins um vopnahlé hefur þó, þegar þetta er ritað, enn ekki verið svarað. Þúsundir óbreyttra borgara og barna liggja í valnum, neyðaraðstoð sætir enn óásættanlegum hindrunum og hungursneyð vofir yfir. Fjöldi gísla eru enn í haldi Hamasliða. Ályktanir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og ákvörðun Alþjóðadómstólsins í Haag um bráðabirgðaráðstafanir hafa litlu breytt um þann harmleik sem heimsbyggðin fylgist með í nær beinni útsendingu.
Átökin hafa haft áþreifanleg áhrif á öryggi á svæðinu öllu og áfram er hætta á útbreiðslu þeirra. Íran grefur undan stöðugleika með stuðningi við hryðjuverkasamtök á svæðinu, nú síðast með beinni árás sinni á Ísrael sem Ísland fordæmdi harkalega. Öryggi á Vesturbakkanum hefur farið þverrandi og samstaða hefur náðst innan ESB um þvingunaraðgerðir gegn herskáum landnemum á Vesturbakkanum, sem Ísland hyggst innleiða. Það er því grundvallaratriði að varanleg lausn finnist sem allra fyrst á langvarandi deilu Ísraels og Palestínu, tveggja ríkja lausn sem krefst bæði hugrekkis og fórna.
Átök og óstöðugleiki valda víðar þjáningu. Ekkert lát virðist á ofbeldisfullri borgarastyrjöld í Súdan sem hrakið hefur milljónir á flótta og valdið alvarlegri mannúðarkrísu. Ástandið á Haítí hefur farið hríðversnandi með yfirtöku glæpagengja og tilheyrandi ofbeldi og óstöðugleika sem bitnar ekki síst á almennum borgurum. Í Afganistan fer vægast sagt bágri stöðu og réttindum kvenna sífellt aftur og hætta er á stigmögnun átaka í Mjanmar þar sem mannúðarástandið er afar slæmt. Svo mætti lengi telja.
Aukið framlag til þróunarsamvinnu.
Það er því ekkert lát á þeim málefnum sem alþjóðakerfið þarf að leita lausna á og mun Ísland halda áfram tala fyrir friðsamlegum lausnum byggðum á alþjóðalögum og mannúðarsjónarmiðum. Ísland hefur ríkum skyldum að gegna í alþjóðlegri þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð. Með markvissu framlagi til þróunarsamvinnu getum við stuðlað að aukinni velsæld, sjálfbærni, jöfnuði og stöðugleika. Alþjóðleg þróunarsamvinna verður þannig áfram ein af meginstoðum íslenskrar utanríkisstefnu og lykilframlag okkar til framfylgdar heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.
Það skipti okkur máli að niðurstöður jafningjarýni Þróunarsamvinnunefndar OECD (DAC) á þróunarsamvinnu Íslands, sem kynntar voru um mitt síðasta ár, skyldu staðfesta að framlag íslenskra stjórnvalda hafi skilað umtalsverðum árangri þrátt fyrir að vera tiltöluleg lítil í samanburði við önnur framlagsríki. Skýrist það ekki síst af skilvirkri nálgun íslenskra stjórnvalda sem áfram verður unnið eftir samkvæmt ályktun Alþingis frá því í desember sl. um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands fyrir árin 2024–2028. Í ályktuninni er stefnt að því að undir lok gildistímans nemi framlög Íslands til þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar 0,46% af vergum þjóðartekjum sem væri veruleg aukning frá því sem nú er.
Stefnan tekur mið af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, sameiginlegum vegvísi þjóða heims í átt að farsæld og friði. Ýmis áföll hafa dunið á heimsbyggðinni frá því að þau voru sett og því er mikilvægt að ríki heims taki höndum saman um að snúa vörn í sókn í átt að settum markmiðum til að tryggja velsæld til framtíðar og skapa um leið meiri sátt um alþjóðakerfið.
Með öflugu samstarfi við alþjóðastofnanir getur Ísland stutt með árangursríkum hætti við þau ríki sem helst þurfa á stuðningi að halda. Nýlega hafa rammasamningar við sjö stofnanir Sameinuðu þjóðanna á sviði mannúðar- og þróunarsamvinnu verið endurnýjaðir til þriggja ára sem veitir þeim mikilvægan fyrirsjáanleika og stuðlar að markvissari ráðstöfun fjármagns til þeirra sem mest þurfa á að halda. Í gegnum samstarfið við Alþjóðabankann leggur Ísland sitt af mörkum til sjálfbærrar uppbyggingar innviða og efnahags þróunarríkja, sérstaklega allra fátækustu ríkjanna. Í öllu samstarfi leggja íslensk stjórnvöld áherslu á mannréttindi, kynjajafnrétti, sjálfbæra nýtingu sjávar- og orkuauðlinda.
Íslendingar hafa náð markverðum árangri til bættra lífskjara og aukinnar velferðar í tvíhliða samstarfsríkjum í þróunarsamvinnu. Á þeim 35 árum sem liðin eru frá því að Ísland hóf þróunarsamvinnu í Malaví höfum við stuðlað að bættum aðgangi að hreinu vatni fyrir 400 þúsund manns, námsumhverfi 100 þúsund barna verið bætt og 250 þúsund konum og börnum verið tryggður aðgangur að bættri heilbrigðisþjónustu.
Eitt allra fátækasta ríki heims, Síerra Leóne, er nýtt samstarfsríki Íslands. Sendiráð Íslands tók til starfa á liðnu hausti og var formlega opnað 2. maí sl. Þar er Ísland eitt fárra samstarfsríkja með viðveru í landinu og tækifærin til góðra verka óteljandi. Stefnt er að því að útrýma fæðingarfistli, sjá 30 þúsund börnum fyrir heimaræktuðum skólamáltíðum og bæta aðgang að neysluvatni og hreinlæti. Ísland hefur einnig átt í farsælu samstarfi við héraðsyfirvöld í Úganda. Þróun mannréttinda hinsegin fólks í landinu veldur hins vegar verulegum áhyggjum. Samkynhneigð getur nú varðað dauðarefsingu eftir að stjórnlagadómsstóll lét nýlega löggjöf þar að lútandi standa nær óbreytta.
Breytt loftslag og neikvæðar afleiðingar þess eru stöðugt í brennidepli og juku íslensk stjórnvöld stuðning bæði við alþjóðastofnanir og verkefni þar að lútandi í tvíhliða samstarfslöndum, Malaví, Síerra Leóne og Úganda. Á ríkjaráðstefnu Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna í Dúbaí í desember var Ísland meðal ríkja sem fyrst tilkynntu fjárhagsstuðningi við sjóð sem var stofnsettur til að mæta loftslagshamförum sem þróunarríkin glíma við sem afleiðingar loftslagsbreytinga.
Viðskiptafrelsi.
Frjáls og óheft alþjóðaviðskipti hafa um langt skeið verið drifkraftur framfara og velsældar en að undanförnu hafa átök og skautun á alþjóðavettangi haft margvísleg neikvæð áhrif á samofið efnahagslíf heimsins. Vart hefur orðið við vaxandi einangrunar- og verndarhyggju í alþjóðaviðskiptum, bæði í aðgerðum einstakra ríkja og innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar sem áfram gegnir þó veigamiklu hlutverki. Ríki huga nú þegar að hagvörnum sínum, svo sem öryggi aðfangakeðja, og eru í auknum mæli meðvituð um hættuna af því að frjáls milliríkjaviðskipti umbreytist í pólitískt vogarafl. Þar eru samstarfsþjóðir okkar á Evrópska efnahagssvæðinu engin undantekning.
Ísland leggur áherslu á góða framkvæmd EES-samningsins, mikilvægasta viðskiptasamnings Íslands, sem tók gildi fyrir þremur áratugum síðan og hefur óumdeilt fært almenningi og atvinnulífi margvíslegan ávinning. Aðgangur að innri markaði Evrópusambandsins gegnum EES-samninginn og net viðskiptasamninga, bæði hvað varðar aðföng og útflutning, hefur reynst traust fótfesta í þessu breytta landslagi. Þátttaka í innri markaðnum og styrk staða hans er þannig mikilvægur liður í hagvörnum okkar Íslendinga. Stjórnvöld vinna nú að því að þátttöku Íslands í samstarfsáætlun um að koma á öruggum fjarskiptum um gervihnött. Þá er einnig unnið að því að tryggja aðgang að heilbrigðissamstarfi ESB á breiðari grunni til að styrkja stöðu okkar gegn heilsuvá framtíðarinnar. Hvort tveggja eru þættir sem munu stuðla að almannaöryggi. Nánar er fjallað um framkvæmd EES-samningsins í árlegri skýrslu sem lögð er fyrir Alþingi.
Stjórnvöld beita sér einnig fyrir því að koma á fullu tollfrelsi í viðskiptum með sjávarafurðir inn á markað ESB. Mikilvægt skref í þeirri vinnu var sameiginleg yfirlýsing um endurskoðun markaðsaðgangs fyrir vörur, sem samþykkt var sem hluti af niðurstöðum viðræðna um nýtt tímabil Uppbyggingarsjóð EES, sem var lokið í nóvember á síðasta ári. Það er út af fyrir sig óásættanlegt að ESB haldi tollum á sjávarafurðir í viðskiptum við Ísland -náið samstarfsríki, þegar fyrir liggur að sambandið fellir slíka tolla niður í fríverslunarsamningum sem sambandið gerir gagnvart öðrum ríkjum.
Ísland hefur í áranna rás gert fjölda viðskiptasamninga til að tryggja aðgang okkar að erlendum mörkuðum og gera íslenskan útflutning samkeppnishæfari, meðal annars í gegnum aðild okkar að Fríverslunarsamtökum Evrópu (EFTA). Fríverslunarsamningur EFTA-ríkjanna og Indlands, sem undirritaður var í Nýju-Delí í mars síðastliðnum, var sá fyrsti sem Indverjar gera við Evrópuríki. Samningurinn er þýðingarmikill fyrir viðskipta- og efnahagssamband Íslands við Asíu og felur í sér fjölmörg tækifæri fyrir íslenskt atvinnulíf með stórbættum markaðskjörum fyrir allar helstu útflutningsvörur landsins. Samningurinn styrkir einnig pólitísk samskipti við þetta fjölmennasta lýðræðisríki heims og fimmta stærsta hagkerfið á heimsvísu sem er í stöðugum vexti. Til að setja stærðina í samhengi búa álíka margir á Indlandi eins og í Bandaríkjunum, Kanada, Mexíkó, Evrópusambandinu, Rússlandi, Bretlandi, Tyrklandi, Japan, Tælandi og Noregi samanlagt.
Áframhaldandi hagsmunagæsla nauðsynleg.
Víða eru blikur á lofti. Heimsbyggðin stendur frammi fyrir óteljandi úrlausnarefnum og virðist langt í frá einhuga um hvernig beri að takast á við þau. Á vettvangi Sameinuðu þjóðanna vinna aðildarríkin nú að svokölluðum framtíðarsamningi sem leggja á fyrir leiðtogafund allsherjarþingsins í september. Verður þar leitast við að bregðast við fjölþættum áskorunum og tækifærum tengdum tækniframþróun, sjálfbærri þróun, frið og öryggi, alþjóðasamstarfi og velsæld í þágu framtíðarkynslóða.
Fyrir lítið, herlaust land eins og Ísland eru það grundvallarhagsmunir að sátt skapist um alþjóðakerfið sem byggst hefur upp frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Án virðingar fyrir alþjóðalögum og friðhelgi landamæra verður sjálfstæði Íslands ekki tryggt. Við viljum vera þjóð meðal þjóða og því fylgja skyldur jafnt og réttindi. Íslensk stjórnvöld munu því leggja sitt af mörkum með virkri hagsmunagæslu og framlagi til framgangs þessara gilda. Framlag okkar skiptir máli, hvort sem litið er til varna, viðskipta, þróunarsamvinnu eða forystu okkar í ýmsum jafnréttis- og mannréttindamálum. Það sama gildir um framlag okkar til Úkraínu. Þegar fram líða stundir viljum við geta litið til baka fullviss um að við höfum gert allt sem í okkar valdi stóð til að tryggja sjálfstæði og framtíð Úkraínu í samfélagi lýðræðisríkja Evrópu - og um leið staðið vörð um okkar eigið öryggi og hagsmuni.
Í skýrslu þeirri sem kemur út samhliða þessu þingskjali kemur glögglega fram hversu fjölbreyttum og mikilvægum verkefnum utanríkisþjónustan sinnir. Sama hvernig blæs í samskiptum þjóða þarf Ísland alltaf að geta treyst á að hagsmunagæsla utanríkisþjónustunnar fyrir hönd lands og þjóðar á erlendum vettvangi fari fram af öryggi og festu. Utanríkismál varða okkur öll og því er það mér kappsmál að þeim sé sinnt af alúð og ábyrgð. Þannig tryggjum við stoðir fullveldisins og að við getum ávallt borið höfuðið hátt í samfélagi þjóðanna.
Fylgiskjal.
Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál 2023.
www.althingi.is/altext/pdf/154/fylgiskjol/s1634-f_I.pdf