Ferill 612. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1645 — 612. mál.
Svar
félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lífeyri almannatrygginga.
1. Ber ráðherra ábyrgð á að framfylgja 62. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, og breyta upphæðum lífeyris almannatrygginga í fjárlögum hvers árs?
Félags- og vinnumarkaðsráðherra fer með framkvæmd almannatryggingalaga, samanber forsetaúrskurð um skiptingu starfa ráðherra og um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Í 62. gr. laganna er kveðið á um breytingar á greiðslum almannatrygginga, svo og greiðslum skv. 42. gr. og fjárhæð skv. 28. gr., og segir þar að greiðslurnar skuli breytast árlega í samræmi við fjárlög hverju sinni. Skal ákvörðun fjárhæða taka mið af launaþróun, þó þannig að fjárhæðir hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs.
Samkvæmt þessu helgast breytingar á fjárhæðum í lífeyristryggingum almannatrygginga af fjárlögum hverju sinni. Um forræði á fjárlagagerðinni fer samkvæmt lögum um opinber fjármál og venjum um afgreiðslu fjárlaga og fjáraukalaga ár hvert. Fram kemur í tilvitnuðum forsetaúrskurði að fjármála- og efnahagsráðuneyti fari með mál er varða forsvar og gerð frumvarps til fjárlaga, fjáraukalaga og frumvarps um staðfestingu ríkisreiknings. Félags- og vinnumarkaðsráðherra ber að sjá til þess að upphæðir lífeyrisgreiðslna almannatrygginga séu í samræmi við fjárlög hverju sinni og gefur ráðherra árlega út reglugerð þar sem fjárhæðirnar eru birtar, sbr. nú reglugerð nr. 1411/2023, um fjárhæðir bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2024.
2. Hvers vegna er launavísitala ekki notuð sem viðmið um launaþróun þegar lífeyrir almannatrygginga er hækkaður í fjárlögum á hverju ári?
Eins og áður segir eru breytingar á fjárhæðum í lífeyristryggingum almannatrygginga ákveðnar í fjárlögum hverju sinni. Þar sem fjármála- og efnahagsráðuneyti fer með mál er varða forsvar og gerð frumvarps til fjárlaga er það ekki á verksviði félags- og vinnumarkaðsráðherra að svara því hvers vegna launavísitala er ekki notuð sem viðmið um launaþróun þegar lífeyrir almannatrygginga er hækkaður í fjárlögum á hverju ári.