Ferill 1028. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1652 — 1028. mál.
Svar
matvælaráðherra við fyrirspurn frá Berglindi Ósk Guðmundsdóttur um nefndir á vegum ráðuneytisins og kostnað vegna þeirra.
1. Hverjar eru lögbundnar nefndir á vegum ráðuneytisins og hver hefur árlegur kostnaður við hverja þeirra verið frá 2021?
Í meðfylgjandi töflu má sjá þær lögbundnu nefndir sem eru starfandi á vegum ráðuneytisins í dag ásamt yfirliti yfir kostnað vegna þeirra. Matvælaráðuneytið varð til 1. febrúar 2022 og því tekur svarið mið af þeirri dagsetningu.
| Nefnd | 2022 | 2023 |
| Matsnefnd um lax- og silungsveiði 2021–2025 | - | - |
| Stjórn Bjargráðasjóðs | ||
| Stjórn Fiskeldissjóðs | 1.839.839 | 1.230.610 |
| Stjórn Matvælasjóðs | 103.918 | 1.491.630 |
| Stjórn Umhverfissjóðs sjókvíaeldis. | 852.500 | 2.249.500 |
| Stjórn Verkefnasjóðs sjávarútvegsins | - | - |
| Stjórn stofnverndarsjóðs | - | - |
| Framkvæmdanefnd búvörusamninga 2017–2026 | - | - |
| Áhættumatsnefnd á sviði matvæla, fóðurs, áburðar og sáðvöru | 5.812.010 | |
| Úttektarmenn samkvæmt ábúðarlögum 2021–2025 | - | - |
| Samstarfsráð Matvælastofnunar | - | - |
| Verðlagsnefnd búvara 2022–2024 | - | 1.265.200 |
| Samráðsnefnd um fiskeldi | - | - |
| Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna 2019–2023 | 1.950.000 | 1.225.000 |
| Fagráð um velferð dýra 2021–2024 | - | 584.010 |
| Fisksjúkdómanefnd 2021–2026 | - | - |
| Ráðgjafarnefnd Hafrannsóknastofnunar, rannsókna- og ráðgjafarstofnunar hafs og vatna 2020–2024 | 501.372 | |
| Erfðanefnd landbúnaðarins 2023–2026 | - | - |
| Yfirskiptanefnd | - | - |
| Yfirítölunefnd | - | - |
| Markanefnd 2021–2029 | - | - |
| Yfirmatsnefnd samkvæmt ábúðarlögum 2021–2025 | - | - |
2. Hvaða aðra starfshópa og nefndir hefur ráðherra sett á laggirnar og hver hefur árlegur kostnaður við hverja þeirra verið frá 2021?
2022:
| Starfshópur | Kostnaður |
| Spretthópur um alvarlega stöðu í matvælaframleiðslu | Ekki var greitt fyrir setu í starfshópnum |
| Starfshópur um tryggingavernd bænda | Ekki var greitt fyrir setu í starfshópnum |
| Auðlindin okkar – Samráðsnefnd | 1.580.700 |
| Auðlindin okkar – Samfélag | 8.381.870 |
| Auðlindin okkar – Aðgengi | 8.682.430 |
| Auðlindin okkar – Umgengni | 5.258.072 |
| Auðlindin okkar – Tækifæri | 8.761.821 |
| Starfshópur til að kanna stöðu hnúðlax | Ekki var greitt fyrir setu í starfshópnum |
| Samráðsvettvangur um loftslagsaðgerðir í landbúnaði og landnotkun | Ekki er greitt fyrir setu í starfshópnum |
| Starfshópur um strok eldislaxa | Ekki var greitt fyrir setu í starfshópnum |
2023:
| Starfshópur | Kostnaður |
| Starfshópur um leiðir til að fækka frávikum við veiðar á langreyðum | Ekki var greitt fyrir setu í starfshópnum |
| Stýrihópur um verndun hafsvæða innan íslenskrar lögsögu | Ekki var greitt fyrir setu í starfshópnum |
| Sérfræðingahópur um riðuveiki | Ekki er greitt fyrir setu í starfshópnum |
| Starfshópur um endurskoðun aflareglu ýsu | Ekki er greitt fyrir setu í starfshópnum |
2024:
| Starfshópur | Kostnaður |
| Starfshópur um lagaumgjörð hvalveiða | Enn hefur ekki fallið til kostnaður vegna starfshópsins |
| Starfshópur um innviðaleið – frumvarp til laga um sjávarútveg | Ekki er greitt fyrir setu í starfshópnum |
3. Hefur ráðherra skoðað að leggja niður nefndir? Ef svo er, hvaða nefndir?
Ráðuneytið leggur áherslu á skilvirka stjórnsýslu á málefnasviði ráðuneytisins og aukið gagnsæi við meðferð mála. Í þeim efnum er m.a. hugað að tækifærum sem felast í að fækka nefndum, einfalda utanumhald með bæði nefndum og sjóðum en ekki síst að skýra betur hlutverk þeirra, eftir því sem við á.