Ferill 984. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1656  —  984. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um hafnarframkvæmdir í Keflavík vestan Þorlákshafnar.


     1.      Hefur verið rætt um mögulega aðkomu ríkissjóðs að uppbyggingu á nýrri höfn í Keflavík vestan Þorlákshafnar sem kynnt var sem hluti af umhverfismatsáætlun mölunarverksmiðju í Þorlákshöfn?
    Möguleiki á aðkomu ríkissjóðs að uppbyggingu á nýrri höfn í Keflavík hefur ekki verið ræddur.

     2.      Telur ráðherra þessar hafnarframkvæmdir vera raunhæfar, m.a. í ljósi þess að Vegagerðin hefur bent á að aðstæður fyrir höfn í Keflavík eru mjög varasamar?
    Ráðherra tekur ekki afstöðu til tiltekinna framkvæmda enda tæknilegt úrlausnarefni sem fjallað er um á vettvangi viðeigandi stjórnvalda.
    Skipulagsvald hafnarinnar liggur hjá sveitarfélaginu Ölfusi og þar með liggur ákvörðunin um hvort farið verði í uppbyggingu hafnar í Keflavík hjá framangreindu sveitarfélagi.