Ferill 318. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1667 — 318. mál.
Svar
félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um atvinnuþátttöku eldra fólks.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hefur atvinnuþátttaka eldra fólks aukist eftir að frítekjumark atvinnutekna ellilífeyrisþega var hækkað úr 100.000 kr. í 200.000 kr. á mánuði í lok árs 2021? Ef svo er, hversu mikið? Svar óskast sundurliðað eftir kyni og eftir aldri.
Leitað var svara hjá Tryggingastofnun. Fram kemur í svari stofnunarinnar að atvinnuþátttaka eldra fólks hefur aukist á því tímabili sem um ræðir, þ.e. frá október 2021 til október 2023, eins og fram kemur í eftirfarandi töflu:
| Launatekjur og reiknað endurgjald | Fjöldi ellilífeyrisþega | ||
| Krónur á mánuði á bilinu | í október 2021 | í október 2022 | í október 2023 |
| 0 til 0 | 37.059 | 38.074 | 39.550 |
| 1 til 99.999 | 2.048 | 1.982 | 1.875 |
| 100.000 til 199.999 | 931 | 983 | 1.003 |
| 200.000 og hærra | 817 | 1.257 | 1.503 |
| Samtals | 40.855 | 42.296 | 43.931 |
| Þar af með einhverjar tekjur | 3.796 (9,3%) | 4.222 (10,0%) | 4.381 (10,0%) |
Gögnin að baki töflunni byggjast á fyrirliggjandi upplýsingum úr skattframtölum ellilífeyrisþega fyrir árin 2021, 2022 og 2023.
Sé horft til hlutfalls starfandi af heildarfjölda lífeyrisþega höfðu þannig rúmlega 9% ellilífeyrisþega einhverjar launatekjur eða reiknað endurgjald árið 2021, en um 10% árin 2022 og 2023.
Atvinnuþátttaka hefur aukist bæði meðal karla og kvenna á umræddu tímabili, þó er hlutfall starfandi karla nokkuð hærra. Aukin atvinnuþátttaka skýrist að stærstum hluta af fjölgun starfandi í aldurshópnum 67–69 ára.
Sundurliðun eftir kyni:
| Launatekjur og reiknað endurgjald | Skipting kvenkyns ellilífeyrisþega | ||
| Krónur á mánuði á bilinu | í október 2021 | í október 2022 | í október 2023 |
| 0 til 0 | 94,01% | 93,59% | 93,48% |
| 1 til 99.999 | 3,52% | 3,20% | 2,98% |
| 100.000 til 199.999 | 1,28% | 1,46% | 1,52% |
| 200.000 og hærra | 1,19% | 1,75% | 2,02% |
| Breyting frá fyrra ári í prósentustigum í hópi með einhverjar launatekjur/reiknað endurgjald | 0,42% | 0,11% | |
| Launatekjur og reiknað endurgjald | Skipting karlkyns ellilífeyrisþega | ||
| Krónur á mánuði á bilinu | í október 2021 | í október 2022 | í október 2023 |
| 0 til 0 | 86,82% | 85,84% | 86,02% |
| 1 til 99.999 | 6,77% | 6,42% | 5,76% |
| 100.000 til 199.999 | 3,46% | 3,34% | 3,17% |
| 200.000 og hærra | 2,95% | 4,40% | 5,05% |
| Breyting frá fyrra ári í prósentustigum í hópi með einhverjar launatekjur/reiknað endurgjald | 0,98% | -0,18% | |
Sundurliðun eftir aldri:
| Launatekjur og reiknað endurgjald | Skipting ellilífeyrisþega á aldursbilinu 67–69 ára | ||
| Krónur á mánuði á bilinu | í október 2021 | í október 2022 | í október 2023 |
| 0 til 0 | 83,15% | 81,54% | 80,92% |
| 1 til 99.999 | 7,18% | 6,57% | 6,23% |
| 100.000 til 199.999 | 4,60% | 4,62% | 4,21% |
| 200.000 og hærra | 5,07% | 7,28% | 8,63% |
| Breyting frá fyrra ári í prósentustigum í hópi með einhverjar launatekjur/reiknað endurgjald | 1,61% | 0,61% | |
| Launatekjur og reiknað endurgjald | Skipting ellilífeyrisþega á aldursbilinu 70–79 ára | ||
| Krónur á mánuði á bilinu | í október 2021 | í október 2022 | í október 2023 |
| 0 til 0 | 90,19% | 89,46% | 89,62% |
| 1 til 99.999 | 5,65% | 5,35% | 4,80% |
| 100.000 til 199.999 | 2,35% | 2,44% | 2,49% |
| 200.000 og hærra | 1,81% | 2,75% | 3,08% |
| Breyting frá fyrra ári í prósentustigum í hópi með einhverjar launatekjur/reiknað endurgjald | 0,73% | -0,16% | |
| Launatekjur og reiknað endurgjald | Skipting ellilífeyrisþega á aldursbilinu 80 ára og eldri | ||
| Krónur á mánuði á bilinu | í október 2021 | í október 2022 | í október 2023 |
| 0 til 0 | 96,64% | 96,89% | 97,10% |
| 1 til 99.999 | 2,31% | 2,05% | 1,83% |
| 100.000 til 199.999 | 0,63% | 0,53% | 0,54% |
| 200.000 og hærra | 0,42% | 0,53% | 0,54% |
| Breyting frá fyrra ári í prósentustigum í hópi með einhverjar launatekjur/reiknað endurgjald | -0,24% | -0,21% | |
Hlutfall starfandi af hópi ellilífeyrisþega hefur vaxið lítillega frá hækkun frítekjumarksins og er um tíundi hver ellilífeyrisþegi með launatekjur á ársgrundvelli. Aukningin skýrist að stærstum hluta af fjölgun starfandi á aldursbilinu 67–69 ára.
Varðandi skýringar á þessari þróun telur Tryggingastofnun óvíst hvort meginástæðuna megi rekja til hærra frítekjumarks. Bent er á að væntanlega hafi lokin á COVID-19-faraldrinum og betri staða á vinnumarkaði haft veruleg áhrif á atvinnuþátttöku hjá þessum hópi eins og öðrum. Á hinn bóginn telur Tryggingastofnun að líklega megi draga þá ályktun að hærra frítekjumark hafi leitt til þess að algengara var að ellilífeyrisþegar væru með yfir 200.000 kr. á mánuði í atvinnutekjur í október 2022 en í október 2021. Sama gildir sé staðan í október 2023 borin saman við stöðuna í október 2022.