Ferill 764. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1669  —  764. mál.




Svar


háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Ágústi Bjarna Garðarssyni um námsgögn.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvert er hlutfall námsgagnakostnaðar af heildarkostnaði við ríkisrekna og einkarekna háskóla hér á landi samanborið við sömu starfsemi annars staðar á Norðurlöndum?
     2.      Hver er meginmunur á gerð námsgagna hér á landi samanborið við það sem gengur og gerist annars staðar á Norðurlöndum?


    Ráðherra setur reglur um fjárframlög til háskóla þar sem kveðið er á um nám og rannsóknir sem fjárveitingar renna til, vægi námsgreina, umfang rannsókna og aðra þætti sem fjárveitingar skulu taka mið af, sbr. 1. mgr. 22. gr. laga um háskóla, nr. 63/2006.
    Í 1. gr. gildandi reglna um fjárveitingar til háskóla skv. 20. gr. laga nr. 136/1997, nr. 646/1999, sbr. nú 1. mgr. 22. gr. laga um háskóla, nr. 63/2006, kemur fram að ríkissjóður greiði hverjum háskóla sem fær framlag úr ríkissjóði samkvæmt samningi árlegt framlag, nemendaframlag, vegna sérhvers nemanda sem stundar nám til viðurkenndra námsloka (grunnnámsprófs, fyrsta háskólaprófs eða meistaraprófs) í samræmi við reglurnar. Þá segir að nemendaframlaginu sé ætlað að standa undir öllum venjulegum kostnaði skóla vegna kennsluþáttarins í rekstri hans, m.a. kennslu, þjónustu, húsnæði, búnaði og annarri aðstöðu sem nemendum og starfsmönnum skólans er látin í té vegna námsins og kennslunnar.
    Drög að nýjum reglum um fjárframlög til háskóla voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda 11. október 2023. Þar kemur fram í 3. gr. að fjárframlög til háskóla skuli greiðast úr ríkissjóði í samræmi við fjárheimildir í fjárlögum í málaflokki 21.10, Háskólar og rannsóknastarfsemi. Fjármögnun háskóla tekur til fjárframlaga vegna kennslu og rannsókna í háskólum og samfélagslegs hlutverks þeirra. Hlutfallsleg dreifing fjármagns milli þessara flokka er eftirfarandi:
          a.      Kennsla 60%.
          b.      Rannsóknir 15%.
          c.      Samfélagslegt hlutverk 25%.
    Sjálfstætt starfandi háskólar sem innheimta skólagjöld munu fá fjárframlag sem nemur 75% af fjárframlagi til opinberra háskóla vegna kennslu og rannsókna samkvæmt drögum að reglunum en óskert fjárframlag vegna samfélagslegs hlutverks háskóla. Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst hafa þegið boð ráðherra um óskert framlag gegn niðurfellingu skólagjalda.
    Um gjaldtökuheimildir opinberra háskóla er fjallað í 24. gr. laga um opinbera háskóla, nr. 85/2008. Þar er ekki gert ráð fyrir gjaldtöku vegna námsgagna en í c-lið 2. mgr. 24. gr. er kveðið á um gjöld fyrir þjónustu sem telst utan þeirrar þjónustu sem háskólum er skylt að veita.
    Í lögum um Félagsstofnun stúdenta við Háskóla Íslands, nr. 33/1968, er mælt fyrir um starfrækslu Félagsstofnunar stúdenta. Í 2. gr. reglugerðar fyrir Félagsstofnun stúdenta við Háskóla Íslands nr. 1590/2022 er kveðið á um að stofnunin skuli starfrækja Bóksölu stúdenta í þágu stúdenta. Þá kemur fram í 9. gr. reglugerðarinnar að Félagsstofnun stúdenta skuli heimilt að útvega samtökum nemenda á framhaldsskólastigi námsbækur, sé þess óskað.
    Námsgagnakostnaður samkvæmt framansögðu er ekki hluti af þeim rekstrarkostnaði háskóla sem greiddur er úr ríkissjóði í samræmi við gildandi og fyrirhugaðar reglur um fjárframlög til háskóla. Sambærilegar reglur gilda um úthlutun fjárframlaga til háskóla á Norðurlöndunum.
    Á vefnum haskolanam.is kemur fram að í háskólum hér á landi er boðið upp á um 925 mismunandi námsleiðir til diplóma-, bakkalár- og meistaragráðu. Um framleiðslu og útgáfu námsgagna fyrir þessar námsleiðir er það að segja að hér á landi er ekki starfrækt ríkisrekin námsbókaútgáfa fyrir háskólastig. Útgáfa námsbóka á íslensku til kennslu á háskólastigi er einkum á hendi sérhæfðra bókaútgáfa sem eru oft starfræktar í tengslum við fræðasvið og deildir háskóla. Þá annast Bóksala stúdenta pantanir á námsbókum fyrir námskeið í flestum háskólum hér á landi. Gera má ráð fyrir að námsgögn fyrir nám á háskólastigi hér á landi séu að megninu til innfluttar kennslubækur á erlendum málum og rafræn erlend gagnasöfn. Þar á meðal eru rafræn erlend tímarit og gagnasöfn í landsaðgangi hvar.is sem Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn hefur umsjón með og greitt er fyrir með framlagi úr ríkissjóði, 117 millj. kr. miðað við fjárlög 2022.
    Í erlendum samanburði má einkum nefna tvennt. Í nágrannalöndunum eru gjarnan starfrækt öflug bókaforlög sem annast útgáfu fræði- og kennslurita fyrir háskólastig og starfa sum þeirra á alþjóðlegum markaði. Vegna smæðar íslensks námsgagnamarkaðar er, sem fyrr segir, útgáfa fræði- og kennslubóka fyrir háskólastig á hendi margra smærri aðila. Algengast er að útgáfa fræðibóka og kennslurita sé undanþegin virðisaukaskatti í nágrannalöndunum en hér á landi ber slík útgáfa virðisaukaskatt. Til mótvægis hefur verið komið upp stuðningi við bókaútgefendur sem eiga þess kost að sækja um útgáfustyrki samkvæmt lögum um stuðning við útgáfu bóka á íslensku, nr. 130/2018. Við síðustu úthlutun, árið 2023, voru afgreiddar 828 umsóknir fyrir 440 millj. kr. endurgreiðslur til útgefenda. Upplýsingar liggja ekki fyrir um hve stór hluti umsókna var vegna útgáfu fræði- og kennslurita. Hagþenkir er hagsmunafélag höfunda fræði- og kennslurita, m.a. í samningsgerð við bókaforlög og útgefendur. Hagþenkir er aðili að Fjölís sem eru hagsmunasamtök rétthafa vegna ljósritunar og stafrænnar endurgerðar útgefins efnis. Í gegnum samninga sem Fjölís hefur gert við stjórnvöld um ljósritun og stafræna endurgerð útgefins efnis í háskólum geta félagsmenn Fjölís sótt um styrki til samtakanna til fræði- og ritstarfa, þ.m.t. kennslubóka á háskólastigi. Við síðustu úthlutun Hagþenkis á styrkjum til ritstarfa voru 20 millj. kr. til úthlutunar.
    Árlega er úthlutað starfslaunum til sjálfstætt starfandi fræðimanna úr sjóði með sama heiti og nemur úthlutun á árinu 2024 53 millj. kr. Starfslaunin eru ætluð til rannsókna og ritunar fræðibóka sem geta m.a. nýst til kennslu á háskólastigi. Með stuðningi við Akureyrarakademíuna og Reykjavíkurakademínuna, sem nemur samanlagt 37 millj. kr. á yfirstandandi ári, er einnig stutt við rannsóknir og ritstörf sem geta nýst til kennslu á háskólastigi.