Ferill 912. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1675  —  912. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
    Nefndinni bárust engar umsagnir.
    Frumvarp þetta felur í sér að tekin verði upp í íslenskan rétt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1807 frá 14. nóvember 2018 um ramma um frjálst flæði ópersónulegra upplýsinga í Evrópusambandinu. Reglugerðin var tekin upp í EES-samningin með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 240/2023 frá 22. september 2023.
    Markmið frumvarpsins er að auðvelda milliríkjaviðskipti innan Evrópska efnahagssvæðisins og skapa sameiginlegan gagnamarkað í samræmi við frelsi til að veita þjónustu samkvæmt EES-samningnum. Takmarka þurfi því reglur sem feli í sér beinar eða óbeinar hindranir á flutningi ópersónulegra upplýsinga milli aðildarríkja. Opinberum aðilum beri því að rökstyðja á grundvelli almannaöryggis og gæta að meðalhófi ef setja eigi kröfur um staðsetningu þessara gagna á tilteknu landsvæði eða yfirráðasvæði.
    Meiri hlutinn leggur til tæknilegar breytingar sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif.
    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi


BREYTINGU:


     1.      Á eftir orðunum „22. september 2023“ í 2. gr. komi: sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 35 frá 2024, bls. 86.
     2.      Í stað „1. tölul. 1. mgr.“ í 1. tölul. 3. gr. komi: 2. tölul.
     3.      Í stað orðsins „reglugerðarinnar“ í 2. mgr. 5. gr. komi: reglugerðar (ESB) 2018/1807.


Alþingi, 10. maí 2024.

Teitur Björn Einarsson ,
form.
Diljá Mist Einarsdóttir, frsm. Ágúst Bjarni Garðarsson.
Guðbrandur Einarsson. Jóhann Friðrik Friðriksson. Oddný G. Harðardóttir.
Steinunn Þóra Árnadóttir.