Ferill 1060. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1676 — 1060. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Indriða Inga Stefánssyni um ávinning sjálfvirknivæðingar og gervigreindar.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hefur farið fram vinna í ráðuneytinu til að tryggja að eðlilegur hluti þess ávinnings sem verður af fyrirséðu hagræði vegna gervigreindar annars vegar og sjálfvirknivæðingar hins vegar skili sér til almennings? Ef svo er ekki, stendur það til?
Ekki hefur verið gerð formleg úttekt á með hvaða hætti er hægt að hagnýta gervigreind og sjálfvirkni í lögbundnum verkefnum utanríkisráðuneytisins. Þar af leiðandi hefur ekki heldur farið fram vinna við að meta ávinning af fyrirséðu hagræði vegna gervigreindar eða sjálfvirknivæðingar.
Notkun gervigreindar í starfsemi ráðuneytisins er mjög takmörkuð og hefur einskorðast við notkun þýðingarmiðstöðvar ráðuneytisins á skimun á vænlegum íðorðum úr lagatextum sem berast frá Evrópusambandinu.
Ráðuneytið telur að töluverð tækifæri geti falist í sjálfvirknivæðingu og notkun gervigreindar í verkefnum ráðuneytisins, m.a. tengt úrvinnslu efnis og greiningu upplýsinga og í vöktun tölvukerfa.
Rétt er þó að nefna að ýmsar áskoranir eru fólgnar í notkun sjálfvirkni og gervigreindar. Allar ákvarðanir um hagnýtingu gervigreindar og sjálfvirkni þarf að skoða út frá lögum og reglum sem gilda hér á landi, sem og alþjóðlegum skuldbindingum sem Ísland hefur gengist undir. Þá þarf að rýna og gera úttekt á notkun gervigreindar og sjálfvirkni vegna öryggissjónarmiða.
Komi til þess að ráðuneytið geri formlega úttekt á með hvaða hætti er hægt að hagnýta gervigreind og sjálfvirkni í verkefnum ráðuneytisins yrði einnig litið til þess ávinnings og hagræðis sem slíkt kann að hafa í för með sér fyrir almenning.
Alls fór ein vinnustund í að taka svarið saman.