Ferill 975. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1703  —  975. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Óla Birni Kárasyni um fæðingarorlofsgreiðslur.


    Ráðuneytið leitaði til Skattsins eftir upplýsingum um fæðingarorlofsgreiðslur til að geta svarað fyrirspurninni. Fæðingarorlofsgreiðslur á tekjuárinu 2023 liggja ekki fyrir fyrr en við álagningu í maí 2024 og miðast svarið því við tekjuárin 2019 til 2022. Upplýsingarnar voru paraðar saman við frumálagningargögn Skattsins fyrir sama tímabil. Við mat á áhrifum fæðingarorlofsgreiðslna á tekjuskatt og bótakerfi er litið á fæðingarorlofsgreiðslur sem laun. Til að meta áhrif fæðingarorlofsgreiðslna á tekjuskatt og bótakerfi endurreiknaði ráðuneytið tekjuskattinn og bótakerfin eftir að hafa dregið fæðingarorlofsgreiðslur frá tekjustofni til útreiknings vaxtabóta, barnabóta og tekjuskatts.

     1.      Hvaða áhrif hefði það haft á ríkissjóð ef fæðingarorlofsgreiðslur á árunum 2020–2023 hefðu ekki myndað stofn til tekjuskatts, sundurliðað eftir árum?
    Tafla 1 sýnir áhrif þess ef fæðingarorlofsgreiðslur hefðu ekki myndað stofn til tekjuskatts. Gera má ráð fyrir, að því gefnu að skattleysi orlofsgreiðslnanna hefði ekki haft áhrif á fjölda orlofsþega, að á tímabilinu hefði tekjuskattur til ríkissjóðs verið á bilinu þremur til fjórum milljörðum kr. lægri en hann var í raun fyrir tekjuárin 2019 til 2022.

     2.      Hvaða áhrif hefði það haft á tekjutengd stuðningsúrræði hins opinbera, t.d. barnabætur, húsnæðisbætur og vaxtabætur, sundurliðað eftir árum og stuðningsúrræðum?
    Tafla 1 sýnir áhrif þess ef fæðingarorlof hefði ekki myndað skattstofn eða talist með í tekjustofni til útreiknings barnabóta og vaxtabóta á tekjuárunum 2019 til 2022 og að því gefnu að skattleysi orlofsgreiðslnanna hefði ekki haft áhrif á fjölda orlofsþega. Á tekjuárinu 2020 var greiddur út sérstakur barnabótaauki að upphæð 30.000 kr. til þeirra sem fengu ekki greiddar barnabætur vegna tekjuskerðingar. Af því leiðir að minni áhrifa gætir á barnabætur á árinu 2020 ef fæðingarorlof hefði ekki talist með í tekjustofni. Á tekjuárunum 2021 og 2022 var barnabótaauki aðeins greiddur til þeirra sem höfðu reiknast tekjutengdar barnabætur.
    Niðurstaða Skattsins í tekjuskattsálagningu einstaklinga myndar rétt til barnabóta og vaxtabóta. Réttur til húsnæðisbóta verður hins vegar ekki til í gegnum tekjuskattskerfið. Útreikningur þeirra er ekki hluti af álagningargögnum Skattsins og þótt telja eigi fram fjárhæð fenginna húsnæðisbóta eru þær ekki sérgreindar frá öðrum félagslegum stuðningi. Húsnæðisstuðningur er á forsjá innviðaráðuneytisins og sér Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um framkvæmdina. Ráðuneytið býr því ekki yfir upplýsingum til að meta áhrif breytts tekjuskattsstofns á húsnæðisbætur.

Tafla 1: Áhrif ef fæðingarorlof teldist ekki til tekjustofns (í milljónum króna)

Tekjuár Áhrif á vaxtabætur Áhrif á barnabætur Áhrif á tekjuskatt
2022 213 970 -3.991
2021 213 972 -3.655
2020 198 430 -3.069
2019 220 861 -2.817