Ferill 976. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1704  —  976. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Guðmundi Inga Kristinssyni um samráð stjórnvalda og persónuafslátt lífeyrisþega.


     1.      Hvers vegna lagði ráðherra til að fella brott persónuafslátt lífeyrisþega sem búsettir eru erlendis, sbr. a-lið 11. gr. frumvarps er varð að lögum nr. 102/2023?
    Persónuívilnanir, líkt og persónuafsláttur, eru almennt eingöngu í boði þar sem viðkomandi einstaklingur býr (búseturíkinu). Lagabreytingin fólst í því að fella brott heimild í 2. tölul. 70. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, þar sem eftirlauna- og lífeyrisþegum búsettum erlendis stóð til boða fullur persónuafsláttur, eins og þeir væru búsettir á Íslandi, til lækkunar á reiknuðum skatti af lífeyrisgreiðslum frá Íslandi. Heimildin var óháð því hverjar heildartekjur eftirlauna- og lífeyrisþegans væru erlendis, þ.e. hvort hann væri með tekjur frá öðrum ríkjum og/eða sínu búseturíki.
    Ástæðan fyrir breytingunni var fyrst og fremst sú að í tekjuskattslögunum var þegar til staðar heimild til handa eftirlauna- og lífeyrisþegum til að njóta persónuívilnana þegar 75% eða meira af heildartekjum þeirra koma frá Íslandi. Sú heimild var lögfest árið 2011 í kjölfar dóma Evrópudómstólsins þar sem því var slegið föstu að upprunaríki tekna væri skylt að veita slíkar ívilnanir þegar búseturíki væri ekki í aðstöðu til að veita þær, þ.e. í þeim tilfellum þegar allar tekjur eða yfirgnæfandi meiri hluti þeirra kemur frá einu ríki. Af þessu leiðir að þegar tekjur frá Íslandi eru undir þessum mörkum þá á það undir erlenda búseturíkið að veita persónuívilnanir. Lagabreytingin sneri þannig aðeins að því að fella brott hina almennu heimild til persónuafsláttar sem ekki tók tillit til heildartekna og líklega hefði verið rétt að afnema árið 2011 þegar hin sértæka heimild í 70. gr. a var lögfest. Með þessu er verið að færa lagaumgjörðina til samræmis við það sem gildir í öðrum löndum en persónuívilnanir eru almennt ekki í boði fyrir erlenda aðila nema 75% eða meira af heildartekjum komi frá því ríki.
    Enn fremur þótti ástæða til að leggja til breytinguna vegna þess að heimildin hefur reynst óskilvirk leið til að lækka skattbyrði þeirra eftirlauna- og lífeyrisþega sem búsettir voru erlendis því í mörgum tilvikum leiddi lækkun á íslenska skattinum til hærri skattlagningar í erlenda búseturíkinu. Afslátturinn rann þannig í ríkissjóð erlenda ríkisins en ekki til lífeyrisþegans.
    Þá þótti ástæða til að leggja til breytinguna vegna þess að þeir erlendu lífeyrisþegar sem voru eingöngu með hluta tekna sinna frá Íslandi gátu notið tvöfaldrar ívilnunar, þ.e. fengið fullan persónuafslátt á Íslandi og fullan persónuafslátt í erlenda búseturíkinu.
    Að lokum þótti ástæða til að leggja til breytinguna þar sem í óbreyttu kerfi er möguleiki á að fá persónuafsláttinn greiddan út á Íslandi án þess að telja hann fram erlendis.
    Mikilvægt er að hafa í huga að samkvæmt flestum tvísköttunarsamningum Íslands er eingöngu búseturíkinu heimilt að skattleggja lífeyri. Ísland hefur þannig ekki skattlagningarrétt í flestum tilvikum og við þær aðstæður kemur persónuafsláttur ekki til álita enda er enginn skattstofn á Íslandi. Þau tilfelli þar sem Ísland er með skattlagningarrétt eru aðallega ef lífeyrir kemur frá lífeyrissjóðum opinberra starfsmanna og lífeyrisþegi er ekki ríkisborgari í búseturíki.
    Þær greiðsluáætlanir sem Tryggingastofnun sendi út fyrir mistök fyrir áramót tóku ekki tillit til framangreindra heimilda, þ.e. persónuafsláttar skv. 70. gr. a tekjuskattslaga eða skattleysis samkvæmt tvísköttunarsamningi sem flestum, ef ekki öllum, stóð til boða. Yfirgnæfandi meiri hluti þeirra sem taka eftirlaun og lífeyri eru búsettir á EES-svæðinu, flestir á Norðurlöndunum eða á Spáni. Ekki verður séð að breytingin hafi áhrif á þessa hópa.

     2.      Hvers vegna var umrædd breyting ekki meðal þeirra sem fjallað var um í þeim skjölum sem birt voru í samráðsgátt stjórnvalda vegna fyrirhugaðs frumvarps, þ.e. í máli S-172/2023?
    Þegar áform um lagasetningu voru birt í samráðsgátt stjórnvalda 25. september 2023 var umrædd breyting enn til skoðunar og ekki búið að taka endanlega ákvörðun um að gera þá breytingu á lögunum. Eins og fram kemur í svari við 1. lið fyrirspurnarinnar snýr breytingin að fámennum hópi sé tekið tillit til heimilda í 70. gr. a tekjuskattslaga og ákvæða tvísköttunarsamninga.

     3.      Hafði ráðuneytið samráð við félags- og vinnumarkaðsráðuneyti um framangreinda frumvarpsgrein og hugsanleg áhrif hennar, yrði hún að lögum?
    Ekki var haft samráð við félags- og vinnumarkaðsráðuneyti enda snýr breytingin fyrst og fremst að því að koma í veg fyrir að afslátturinn renni í erlenda ríkissjóði, eða að hann sé misnotaður eða nýttur tvöfalt, í þeim afmörkuðu tilvikum þegar skattlagningarréttur er á Íslandi.

     4.      Hafði ráðuneytið samráð við helstu hagsmunasamtök lífeyrisþega, öryrkja og eldri borgara vegna framangreindrar frumvarpsgreinar í aðdraganda framlagningar frumvarpsins?
    Með vísan til svars við 3. lið fyrirspurnarinnar var ekki haft samráð við þessi hagsmunasamtök vegna frumvarpsgreinarinnar.