Ferill 914. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1726  —  914. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um innviði markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti.
    Nefndinni bárust engar umsagnir.
    Með frumvarpinu er innleitt inn í íslenskan rétt ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/858 um tilraunaregluverk fyrr innviði markaða sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni og um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 600/2014 og (ESB) nr. 909/2014 og tilskipun 2014/65/ESB sem gengið hefur undir heitinu DFT-reglugerðin.
    DFT-reglugerðin gildir um fjármálaþjónustu, nánar tiltekið viðskipti með fjármálagerninga á grundvelli dreifðrar færsluskrártækni. Reglugerðin er sameiginlegt tilraunaregluverk vegna markaðsinnviða sem byggjast á umræddri tækni. Frumvarpið veitir innlendum aðilum á fjármálamarkaði sömu tækifæri og bjóðast öðrum á Evrópska efnahagssvæðinu til nýbreytni og framþróunar á sviði viðskipta með fjármálagerninga á grundvelli dreifðrar færsluskrártækni og við uppgjör slíkra viðskipta.
    Meiri hlutinn leggur til tæknilegar breytingar sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif.
    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      Á eftir orðunum „frá 5. júlí 2023“ í 1. mgr. 2. gr. komi: sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26 frá 21. mars 2024, bls. 12.
     2.      Í stað „6. mgr. 10. gr.“ í 3. tölul. 7. gr. komi: 4. mgr. 10. gr.
     3.      Við 2. tölul. 9. gr.
                  a.      Í stað „verðbréfa“ í inngangsmálslið komi: fjármálagerninga.
                  b.      B-liður orðist svo: Við 1. mgr. 3. gr. laganna bætist: með breytingum skv. 17. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/858 um tilraunaregluverk fyrir innviði markaða sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni og um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 600/2014 og (ESB) nr. 909/2014 og tilskipun 2014/65/ESB, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 92 frá 20. desember 2023, bls. 160–192.


Alþingi, 15. maí 2024.


Teitur Björn Einarsson,
form.
Jóhann Friðrik Friðriksson, frsm. Ágúst Bjarni Garðarsson.
Diljá Mist Einarsdóttir. Guðbrandur Einarsson. Oddný G. Harðardóttir.
Steinunn Þóra Árnadóttir.