Ferill 1065. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1740 — 1065. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Indriða Inga Stefánssyni um ávinning sjálfvirknivæðingar og gervigreindar.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hefur farið fram vinna í ráðuneytinu til að tryggja að eðlilegur hluti þess ávinnings sem verður af fyrirséðu hagræði vegna gervigreindar annars vegar og sjálfvirknivæðingar hins vegar skili sér til almennings? Ef svo er ekki, stendur það til?
Dómsmálaráðuneytið hefur ásamt undirstofnunum lagt á undanförnum árum af stað í þá vegferð að auka sjálfvirkni í ferlum og störfum stofnana. Tilgangur og markmið slíkra verkefna eru ávallt unnin með það að leiðarljósi að einfalda líf almennings þótt vissulega sé markmiðið einnig að stuðla að hagræði í ríkisrekstri, auka öryggi og gæði.
Verkefnin eiga það sameiginlegt að unnið er að því að gera þjónustuna nútímalega og þess eðlis að hún mæti þörfum almennings. Sú aðferðafræði sem er beitt í þessum verkefnum sem og öðrum er ávallt unnin með þarfir notandans að leiðarljósi, þ.e. almennings í landinu. Helstu markmið verkefna sem snúa að sjálfvirknivæðingu eru að endurskoða ferla og tryggja að þeir verði skilvirkir og einfaldir, málsmeðferðartími styttur, biðtími eftir þjónustu styttur og að upplýsingar um stöðu mála séu sýnilegar og aðgengilegar á hverjum tíma.
Ávinningur verkefna sem þessara er yfirleitt mældur í styttri málsmeðferðartíma, fækkun á tímafrekum handtökum starfsmanna og því hægt að nýta vinnuframlag þeirra betur hverju sinni og umfram að allt almenningur getur sótt sér þá þjónustu sem hann þarf hverju sinni þegar honum hentar án þess að þurfa að fara á milli margra staða.
Væntur ávinningur getur þó verið breytilegur á milli verkefna en er þegar upp er staðið alltaf hugsaður út frá þörfum almennings og því hvernig við nýtum fé almennings í þjónustu við hann.
Fá verkefni hafa farið af stað varðandi nýtingu á gervigreind og eru þau á frumstigi og því liggur ekki fyrir mat á ávinningi af slíkum verkefnum. Þess ber þó að geta að um þau gilda sömu sjónarmið og að framan hefur verið greint þar sem litið verður til ávinnings fyrir almenning.