Ferill 957. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1746 — 957. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur um umsóknir um ríkisborgararétt sem Alþingi veitir með lögum.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hversu margar umsóknir um ríkisborgararétt sem Alþingi veitir með lögum bárust ráðuneytinu árin 1998–2013? Svar óskast sundurliðað eftir þeim mánuði sem viðeigandi frumvarp um veitingu ríkisborgararéttar var lagt fram á Alþingi.
Með lögum nr. 62/1998, sem tóku gildi 1. október 1998, var lögum um íslenskan ríkisborgararétt, nr. 100/1952, breytt á þá leið að dómsmálaráðherra gat veitt þeim útlendingum, sem sóttu um íslenskan ríkisborgararétt og uppfylltu nánar tiltekin skilyrði, ríkisborgararétt án þess að umsókn þyrfti að leggja fyrir Alþingi. Með þessari breytingu var ætlunin að taka kúfinn af umsóknum um ríkisborgararétt „þannig að einungis munu koma til Alþingis þær umsóknir sem ekki fullnægja [skilyrði laganna]“, líkt og greinir í skýringum við 6. gr. frumvarpsins. Með lögum nr. 145/2013, sem tóku gildi 1. febrúar 2014, var lögum um ríkisborgararétt breytt þannig að veiting ríkisborgararéttar samkvæmt lögum var færð frá ráðuneytinu til Útlendingastofnunar og ákvarðanir stofnunarinnar kæranlegar til ráðuneytisins. Að þessu virtu gerir ráðuneytið ráð fyrir að fyrirspurnin varði tímabilið frá 1. október 1998 til 1. febrúar 2014.
Samkvæmt framansögðu voru umsóknir um ríkisborgararétt á fyrrgreindu tímabili að jafnaði afgreiddar af dómsmálaráðuneytinu. Þá var Alþingi unnt að fjalla um umsóknir sem ekki fullnægðu þeim skilyrðum sem heimiluðu ráðherra að veita ríkisborgararétt. Var framkvæmdin þannig að umsækjendur sem fengu synjun á umsókn um ríkisborgararétt var leiðbeint um þann möguleika að bera umsókn sína undir Alþingi. Óskaði umsækjandi þess sendi ráðuneytið umsóknina til Alþingis til afgreiðslu.
Umsóknir um ríkisborgararétt á því tímabili sem fyrirspurnin nær til er að finna í mörgum ólíkum skjalavistunarkerfum ráðuneytisins. Þá voru rafrænir gagnagrunnar ráðuneytisins frá þessum tíma ófullkomnir auk þess sem umsóknir um ríkisborgararétt voru afgreiddar að hluta til á pappírsformi vel fram á fyrsta áratug 21. aldar. Með hliðsjón af þessu og að virtri ofangreindri framkvæmd við afgreiðslu umsókna um ríkisborgararétt þarf að opna hvert einasta mál, eftir atvikum á pappírsformi í skjalavörslu ráðuneytisins sem er ekki í núverandi húsakynnum þess, til að kanna hvort umsækjandi hafi eftir synjun ráðuneytisins óskað eftir því að umsóknin yrði borin undir Alþingi. Að mati ráðuneytisins er þessi úrvinnsla það viðamikil að ekki er unnt að svara fyrirspurninni með einföldum hætti og í stuttu máli í samræmi við 57. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991.
Að þessu sögðu bendir ráðuneytið á að í meiri hluta frumvarpa frá þessum tíma er getið um fjölda umsókna sem bárust Alþingi um ríkisborgararétt það misserið og fylgir sú tölfræði í eftirfarandi töflu. Einnig innihalda vinnuskjöl innan ráðuneytisins yfirlit umbeðinnar tölfræði yfir nokkurra ára tímabil, þ.m.t. yfirlit yfir fjölda umsókna vorin 2010 og 2011 en þær upplýsingar fylgdu ekki frumvörpunum þau ár. Þar sem um vinnuskjöl er að ræða getur ráðuneytið þó ekki staðfest þær tölur. Loks bendir ráðuneytið á að það kann að vera að Alþingi sjálft sé með skráð í sínum skjalavistunarkerfum hversu margar umsóknir um ríkisborgararétt bárust frá ráðuneytinu við afgreiðslu hvers frumvarps um veitingu ríkisborgararéttar.
| Framlagning frumvarps | Fjöldi umsókna |
| 05.03.1999 | Ekki tilgreint |
| 04.05.2000 | 26 |
| 14.05.2001 | 28 |
| 11.12.2001 | 19 |
| 17.04.2002 | 19 |
| 05.12.2002 | 20 |
| 13.03.2003 | 21 |
| 11.12.2003 | 26 |
| 25.05.2004 | 38 |
| 09.12.2004 | 26 |
| 21.03.2005 | Ekki tilgreint |
| 06.05.2005 | 54 |
| 08.12.2005 | 21 |
| 02.06.2006 | 29 |
| 29.11.2006 | 21 |
| 14.03.2007 | 36 |
| 12.12.2007 | 20 |
| 26.05.2008 | 53 |
| 18.12.2008 | Ekki tilgreint |
| 30.03.2009 | Ekki tilgreint |
| 19.12.2009 | Ekki tilgreint |
| 12.06.2010 | 381 |
| 18.12.2010 | Ekki tilgreint |
| 27.01.2011 | 12 |
| 08.06.2011 | 561 |
| 14.12.2011 | 42 |
| 11.06.2012 | 57 |
| 18.12.2012 | 73 |
| 26.02.2013 | 36 |
| 04.07.2013 | 12 |
| 18.12.2013 | 56 |
| 1 Óstaðfest tölfræði fengin úr vinnuskjölum ráðuneytisins. 2 Umsóknin var að líkindum ekki afgreidd af ráðuneytinu heldur lögð fram og afgreidd af þinginu. |
|