Ferill 1019. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1752 — 1019. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Berglindi Ósk Guðmundsdóttur um styrki til félagasamtaka.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu háa fjárhæð greiddi ráðuneytið og hver undirstofnun þess frjálsum félagasamtökum árin 2020–2023? Svar óskast sundurliðað eftir félagasamtökum og því hvort fjárhæðin var styrkveiting, kaup á þjónustu, félagsgjöld eða annað og með skýringum um hvað felst í liðnum annað auk upplýsinga um hversu hátt hlutfall hver liður er af heildargreiðslu til félagasamtakanna.
2. Eru í gildi hjá ráðuneytinu reglur um úthlutanir styrkja til félagasamtaka?
3. Fer fram mat á árangri af styrkveitingunum?
Ráðuneytið veitti enga styrki til félagasamtaka á árinu 2020. Á tímabilinu 2021–2023 hefur ráðuneytið greitt 200.000 kr. árlegan styrk til Hinsegin daga í Reykjavík. Á árinu 2021 veitti ráðuneytið einnig 350.000 kr. styrk til líknarfélagsins Vonar. Þá styrkti ráðuneytið félagasamtökin Afrekshug um 1.600.000 kr. árið 2023. Styrkirnir voru greiddir af sérstakri fjárveitingu á liðnum 09-199 Ráðstöfunarfé ráðherra í fjárlögum sem er m.a. ætlaður fyrir slíkan stuðning. Um ráðstöfunarfé ráðherra gilda ekki sérstakar reglur heldur metur ráðherra styrkbeiðnir og útgjaldatilefni hverju sinni. Almennt gefa slíkir minni háttar styrkir ekki tilefni til sérstaks árangursmats að öðru leyti en því að staðfest sé að viðkomandi starfsemi eða verkefni hafi farið fram.
Undirstofnanir ráðuneytisins, Bankasýsla ríkisins, Fjársýslan, Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir, Ríkiskaup, Skatturinn, Umbra og yfirskattanefnd, hafa ekki greitt framlög til frjálsra félagasamtaka á tímabilinu 2020–2023.