Ferill 837. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1760 — 837. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Eyjólfi Ármannssyni um skólanámskrár, skólastarf og lestrarkennslu.
1. Hvernig er eftirliti ráðherra með innleiðingu og gerð skólanámskráa í grunn- og framhaldsskólum og samræmi þeirra við aðalnámskrá háttað, sbr. 4. gr. laga um grunnskóla, nr. 91/2008, og 3. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008?
Eftirlit ráðherra með innleiðingu og gerð skólanámskráa í grunn- og framhaldsskólum og samræmi þeirra við aðalnámskrá er einkum háttað með ytra mati, sbr. 38. gr. laga um grunnskóla, nr. 91/2008, og 42. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008.
Í ytra mati ráðuneytisins á grunnskólum er m.a. skoðað hvort skólanámskrá sé opinber á vefsíðu viðkomandi skóla, hvort útfærsla hennar sé í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla og hvort stefna aðalnámskrár og menntastefna stjórnvalda sé sýnileg í stefnu og störfum skólans.
Í ytra mati ráðuneytisins á framhaldsskólum er m.a. athugað hvort útfærsla skólanámskrár sé í samræmi við aðalnámskrá framhaldsskóla og hvort stefna í skólanámskrá endurspeglist í starfsháttum skólans.
Hver grunn- og framhaldsskóli útfærir atriði aðalnámskrár viðeigandi skólastigs nánar í skólanámskrá og tekur skólanámskrá m.a. mið af sérstöðu hvers skóla.
Að öðru leyti vísast til svars við 2. tölul. fyrirspurnar.
2. Hvernig er eftirliti ráðherra með gæðum skólastarfs háttað?
Samkvæmt lögum um leikskóla, nr. 90/2008, annast mennta- og barnamálaráðuneytið greiningu og miðlun upplýsinga um starf leikskóla á grundvelli upplýsinga frá sveitarfélögum og með sjálfstæðri gagnaöflun, sbr. 20. gr. laganna. Frá árinu 2010–2023 var að jafnaði gert ytra mat á sex leikskólum á ári og var framkvæmd matsins í höndum Menntamálastofnunar. Ytra mat nær m.a. til stjórnunar, faglegs samstarfs, leikskólaþróunar, símenntunar, skólanámskrár, uppeldis- og menntastarfs, leiks og lýðræðislegrar þátttöku barna, námssviða leikskóla, inngildingar, mats á námi og velferð barna, mannauðs, starfsanda, leikskólabrags, líðan barna, þátttöku foreldra og innra mats.
Samkvæmt lögum um grunnskóla, nr. 91/2008, annast mennta- og barnamálaráðuneytið greiningu og miðlun upplýsinga um skólahald í grunnskólum á grundvelli upplýsinga frá sveitarfélögum og með sjálfstæðri gagnaöflun, sbr. 38. gr. laganna. Á árunum 2013–2021 fór fram ytra mat á öllum grunnskólum landsins utan Reykjavíkur og var Menntamálastofnun falin framkvæmd þess. Ytra mat á grunnskólum í Reykjavík annaðist sveitarfélagið sjálft á grundvelli opinberra gæðaviðmiða sem byggð eru á lögum og reglugerðum um skólastarf og aðalnámskrám leik- og grunnskóla. Í ytra mati er sjónum m.a. beint að stjórnun og faglegri forystu, faglegu samstarfi, tengslum við foreldra, umbótum og innleiðingu breytinga, starfsmannastjórnun, skólanámskrá, námi og kennslu, árangri náms, gæðum kennslu, skipulagi náms, ábyrgð og þátttöku nemenda og innra mati. Auk þessa felst eftirlit ráðuneytisins með gæðum skólastarfs í þátttöku í alþjóðlegum mennta- og samanburðarrannsóknum eins og t.d. PISA (e. Programme for International Student Assessment). Í skoðun er innan ráðuneytisins að taka þátt í TIMSS (e. Trends in International Mathematics and Science Study) sem metur frammistöðu nemenda í 4. og 8. bekk grunnskóla í stærðfræði og náttúruvísindum.
Samkvæmt lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008, skal úttekt á framhaldsskóla fara fram eigi sjaldnar en á fimm ára fresti. Árin 2014–2023 fór í tvígang fram ytra mat á öllum framhaldsskólum landsins og var Menntamálastofnun falin framkvæmd þess. Ytra mat nær m.a. til stjórnunar og skipulags, gerð stefnu, áætlana, verkferla og verklagsreglna, innra mats, náms, kennslu og námsframboðs, kennsluaðstæðna og stuðnings við nemendur, námsmats, starfsþróunar kennara, námsgagna, skólabrags, samskipta, félagslífs nemenda, samskipta við foreldra, samstarfs, húsnæðis og aðbúnaðar og námsárangurs. Ráðuneytið kallar eftir upplýsingum um kjarnastarfsemi framhaldsskólanna í stefnumiðaðri áætlun til þriggja ára. Kjarnastarfsemi framhaldsskóla er kennsla og kallað er eftir upplýsingum um fjölda nemenda við skólann, hvernig og hvaða brautir er boðið upp á, séráherslur skólans, upplýsingar um skólanámskrá og hvenær hún var síðust endurskoðuð.
3. Hvernig er eftirliti og mati á árangri og gæðum lestrarkennslu í grunnskólum háttað?
Eftirlit og mat á árangri og gæðum lestrarkennslu í grunnskólum er einkum sinnt með ytra mati, sbr. 38. gr. laga um grunnskóla.
Hluti af ytra mati í grunnskólum er að taka til skoðunar hvort í viðkomandi skóla sé ríkjandi lestrarmenning, unnið sé markvisst að eflingu læsis í námi, unnið sé að því að efla lestrarhvöt nemenda með hliðsjón að aðgengi, aðstæðum og umræðum um námsefnið, hvernig mat á læsi fer fram og hvort unnið sé með fjölbreyttar tegundir læsis.
Í þessu sambandi er rétt að taka fram að undanfarin misseri hefur verið unnið að mótun og þróun heildstæðs námsmatskerfis í grunnskólum, svokallaðs matsferils, sem mun gera kennurum, grunnskólum og fræðsluyfirvöldum kleift að fylgjast betur og markvissar með stöðu og framvindu náms og þroska einstakra nemenda og menntakerfisins í heild, bæði í einstökum sveitarfélögum og á landsvísu. Samræmt mat á stöðu og framvindu nemenda er mikilvæg forsenda þess að hægt séð að veita nemendum nám við hæfi og viðeigandi stuðning þegar þess þarf.
Innleiðing matsferils mun í fyrstu snúa að lesskilningi og stærðfræði en fleiri námsgreinar munu fylgja í kjölfarið. Lesferill er sá hluti matsferils sem snýr að læsi og er ætlað að meta stöðu og framvindu í lesfimi, lesskilningi, ritun, orðaforða og málskilningi. Lesferill inniheldur auk þess skimunarpróf sem ætlað er að finna nemendur sem eiga á hættu að lenda í erfiðleikum með læsi síðar á skólagöngunni. Á næstu tveimur skólaárum er áætlað að innleiðing stöðu- og framvinduprófs í lesskilningi, mats- og kennsluramma í ritun og skimunarprófs fyrir seinkuðum málskilningi á leikskólaaldri verði langt komin eða lokið. Einnig mun þróun og innleiðing stöðu- og framvinduprófs í stærðfræði eiga sér stað á sama tímabili. Öllum matstækjum matsferils verður fylgt eftir með stuðningsúrræðum, bæði í formi ráðgjafar til skólasamfélagsins og útgáfu námsefnis af hálfu nýrrar Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu en miðstöðin mun gegna lykilhlutverki í miðlægri skólaþjónustu með faglegri og markvissri þjónustu, stuðningi og ráðgjöf til skólasamfélagsins.
4. Hvernig eru markmið aðalnámskrár fyrir grunn- og framhaldsskóla útfærð í skólanámskrám og hvernig er eftirliti háttað með því að skólar hafi markmið aðalnámskrár að leiðarljósi?
Sjá svar við 1. tölulið.