Ferill 947. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1774  —  947. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Gísla Rafni Ólafssyni um ástandsskoðun húseigna.


     1.      Hvaða verkferlar eru skilgreindir hjá Náttúruhamfaratryggingu Íslands fyrir ástandsskoðun húseigna sem hafa orðið fyrir skemmdum af völdum náttúruhamfara?
    Á grundvelli 12. gr. laga um Náttúruhamfaratryggingu Íslands, nr. 55/1992, skal vátryggður sem telur sig hafa orðið fyrir tjóni af völdum náttúruhamfara tilkynna það þegar í stað til NTÍ eða þess vátryggingafélags sem seldi honum vátrygginguna. Í 12. gr. laganna kemur jafnframt fram að þegar stofnunin fær vitneskju um tjón sem ætla má að náttúruhamfaratryggingin taki til, skal svo fljótt sem unnt er gera ráðstafanir til að fá úr því skorið hvort bæta skuli tjónið og eftir atvikum láta meta það. NTÍ fær utanaðkomandi matsmenn til að leggja mat á tjónið og þess er gætt að þeir séu hæfir og óvilhallir. Almennt er vátryggður eða fulltrúi hans viðstaddur skoðun og fær viðkomandi tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri, sbr. 10. gr. reglugerðar um Náttúruhamfaratryggingu Íslands, nr. 770/2023. Í gildi er rammasamningur um tjónamat á milli NTÍ og fjögurra matsaðila, þ.e. verkfræðistofanna Eflu, Verkís, VSÓ og Cowi (áður Mannvit). Einnig eru í gildi samningar við þrjá matsmenn sem taka að sér sérhæfðari matsstörf fyrir stofnunina.
    Samkvæmt upplýsingum frá NTÍ er Handbók tjónamats (LBN-0515) hluti af gæðakerfi stofnunarinnar. Í handbókinni eru ítarlegar leiðbeiningar fyrir matsmenn sem taka að sér að meta tjón fyrir stofnunina, en í 6. kafla er fjallað um tjónaskoðun matsmanna (ástandsskoðun), sjá fylgiskjal II.
    Samkvæmt upplýsingum frá NTÍ lagði stofnunin í upphafi tjónamats vegna yfirstandandi jarðhræringa í Grindavík áherslu á að láta skoða fyrst þær eignir sem taldar voru mest skemmdar. Fyrstu u.þ.b. 150 tjónaskoðanir á húseignum í Grindavík tóku um 60 mínútur hver. Eftir að skoðaðar höfðu verið þær eignir sem talið var að hefðu orðið fyrir altjóni eða meiri háttar tjóni var það mat matsmanna í samráði við sviðsstjóra vátryggingasviðs NTÍ að rétt væri að stytta tjónaskoðanir í 45 mínútur, bæði til þess að nýta tíma matsmanna betur en einnig til þess að auka afköst, enda lögðu margir tjónþolar mikla áherslu á að eignir þeirra yrðu skoðaðar sem allra fyrst. Samkvæmt upplýsingum frá matsmönnum hefur ofangreindur tími við tjónaskoðun í flestum tilvikum verið nægjanlegur til að skoða og meta það tjón sem rekja má til jarðhræringanna í Grindavík. Í þeim tilvikum þar sem tími til tjónaskoðunar hefur ekki dugað, að mati matsmanna, hafa eignir verið skoðaðar aftur. Það er mat stofnunarinnar að ef tími í hverja tjónaskoðun hefði verið lengri hefðu afköst við tjónamatið í heild minnkað til muna. Mun skilvirkara sé að skoða aftur þær eignir þar sem 60 eða 45 mínútur við fyrstu skoðun duga ekki, enda eru þær eignir hlutfallslega fáar. Kaflar 6.3 og 6.4 í Handbók tjónamats fjalla um framkvæmd tjónaskoðunar og hvaða gagna skuli að lágmarki aflað í tengslum við hana, sjá fylgiskjal II.
    Samkvæmt upplýsingum frá NTÍ óskaði stofnunin við upphaf tjónamats vegna jarðhræringanna í Grindavík eftir því að gerð yrði hæðarmæling með lasertækjum á öllum húseignum sem skoðaðar voru og upplýsingar um niðurstöðu skyldu vistaðar í tjónaskrá NTÍ. Stofnunin hefur sérstaklega áréttað að upplýsingar um niðurstöðu hæðarmælinga komi fram í skriflegum matsgerðum. Þá hafa fráveitulagnir húseigna í Grindavík verið myndaðar ef einhver grunur hefur verið um skemmdir á þeim. Einnig hefur verið grafið niður með sökklum nokkurra húseigna þar sem tilefni hefur þótt til til að rannsaka hvort grundun (malarfylling) hafi skemmst eða raskast við jarðhræringarnar. Um sérstakar rannsóknir sem þessar er fjallað í kafla 6.5 í Handbók tjónamats, sjá fylgiskjal II.
    NTÍ lét útbúa sérstök leiðbeiningarit (bæklinga) fyrir tjónþola í Grindavík, á íslensku, ensku og pólsku, sem matsmenn afhentu við upphaf tjónaskoðunar, sbr. kafla 6.7 í Handbók tjónamats, sjá fylgiskjal II.
    Þegar matsmenn hafa skilað skriflegri matsgerð til NTÍ er hún kynnt tjónþolum með sérstöku kynningarbréfi þar sem tjónþola er gefinn kostur á að koma á framfæri sjónarmiðum sínum vegna málsins. Í bréfinu kemur sérstaklega fram að hafi orðið frekara tjón á eigninni eftir að hún var skoðuð af matsmönnum, eða að á henni sé tjón sem ekki er fjallað um í matsgerð, geti tjónþolar tilkynnt það til NTÍ. Stofnunin hefur í slíkum tilvikum óskað eftir því við matsmenn að eignin verði skoðuð aftur og farið verði sérstaklega yfir þau atriði sem tjónþoli bendir á eða hefur athugasemdir við. Samkvæmt verklagi skulu matsmenn taka rökstudda afstöðu til athugasemda tjónþola og skila NTÍ skriflegri niðurstöðu. Samkvæmt upplýsingum frá NTÍ hafa viðbótarskoðanir vegna tjóns í Grindavík því bæði verið vegna þess að matsmenn hafa talið sig þurfa frekari tíma til að skoða tjón en einnig hafa farið fram skoðanir í kjölfar athugasemda frá tjónþolum. Umfjöllun um viðbótarskoðanir er í kafla 6.8 í Handbók tjónamats, sjá fylgiskjal II.

     2.      Hvaða þjálfun í að fylgja þessum verkferlum og menntun hafa þeir sem gera ástandsskoðun fyrir hönd Náttúruhamfaratryggingar Íslands hlotið?
    Samkvæmt upplýsingum frá NTÍ eru í fyrrnefndum rammasamningi NTÍ við verkfræðistofurnar Eflu, Verkís VSÓ og Cowi um matsstörf ákvæði um hæfni, menntun og reynslu matsmanna af matsstörfum. Matsmenn í hæfisflokki A skulu hafa B.Sc.-gráðu í verkfræði, tæknifræði, byggingarfræði, próf í iðnfræði eða sambærilegt og reynslu af tjónamati, þ.m.t. ritun a.m.k. 15 matsgerða. Matsmenn í hæfisflokki B skulu hafa sambærilega menntun og matsmenn í hæfisflokki A ásamt því að hafa fagþekkingu sem nýtist við tjónamat eða hafa iðnmenntun, fagþekkingu og reynslu af tjónamati.
    NTÍ gerir ávallt þá kröfu að a.m.k. annar af tveimur matsmönnum sem taka að sér tjónamat á húseignum sé í hæfisflokki A. Vegna tjónamats í Grindavík var auk þess gerð krafa um að a.m.k. annar matsmanna hefði sérþekkingu á burðarþoli. Þá óskaði NTÍ einnig eftir því við matsaðila að tryggt yrði að matsmenn hefðu á hverjum tíma aðgang að mjög reyndum matsmönnum sem leiðbeint gætu varðandi flókin úrlausnarefni, t.d. á sviði burðarþols og jarðtækni.
    NTÍ hefur staðið fyrir sérstökum námskeiðum (matsmannadegi) þar sem sérfróðir aðilar og reyndir matsmenn fara yfir aðferðafræði við tjónamat á húseignum vegna náttúruhamfara. Þar hefur verið fjallað um tjónaskoðanir, hvernig bætur ákvarðast út frá lögum og reglum sem um stofnunina gilda, gerð kostnaðaráætlana, ritun matsgerða, samskipti við tjónþola o.fl.     
    Þegar tjónsatburðir eiga sér stað heldur NTÍ jafnan undirbúningsfund með matsmönnum áður en þeir fara á vettvang þar sem farið er yfir mikilvægustu atriði tjónaskoðunar sem eiga við í þeim aðstæðum sem eru á vettvangi hverju sinni.

     3.      Samkvæmt þeim verkferlum sem skilgreindir eru, hvaða upplýsingar eiga að koma fram í ástandsskýrslum?
    Samkvæmt upplýsingum frá NTÍ hefur stofnunin yfir að ráða kerfi sem heldur utan um feril hvers tjónamáls, svokallaða tjónaskrá. Þar eru öll gögn máls vistuð, svo sem samskipti við tjónþola, gögn úr tjónaskoðunum, kostnaðarmöt og skriflegar matsgerðir. Matsmenn hafa aðgang að tjónaskrá þar sem þeir vista gögn og ljósmyndir eftir tjónaskoðun, skrifa byggingarlýsingu og tjónslýsingu ásamt því að gera kostnaðaráætlanir. Þegar matsmenn hafa lokið úrvinnslu máls er búin til matsgerð upp úr þeim upplýsingum sem skráðar hafa verið. Matsgerð ásamt kynningarbréfi er svo birt í rafrænu pósthólfi tjónþola á island.is.
    Í 8. kafla Handbókar tjónamats er fjallað um matsgerðir, sjá fylgiskjal II. Auk þess inniheldur verklagsregla VLR-0508 í gæðakerfi NTÍ þær kröfur sem gerðar eru til matsgerða sem unnar eru fyrir stofnunina, sjá fylgiskjal III. Samkvæmt verklagsreglunni er gerð krafa um að matsgerðir innihaldi t.d. upplýsingar um grundvöll matsgerðar, lýsingu á eign og aðstæðum og umfjöllun um sjónarmið tjónþola og um alla metna liði óháð því hvort á þeim hefur orðið tjón eða ekki. Þá skal koma fram rökstudd niðurstaða tjónamats, sundurliðað kostnaðarmat og forsendur þess og svo samantekt bótafjárhæða, sjá nánar í fylgiskjali III.
    Samkvæmt upplýsingum frá NTÍ óskaði stofnunin við upphaf tjónamats í Grindavík eftir því við matsaðila að innihald allra matsgerða vegna tjóns á húseignum yrði rýnt sérstaklega af a.m.k. einum reyndum matsmanni til að tryggja skýrleika, samræmi og jafnræði við ákvörðun bóta. Í kjölfar athugasemda sem stofnuninni bárust frá tjónþola um að tjónaskoðanir væru ekki nægjanlega umfangsmiklar og að matsgerðir skorti ítarlegri upplýsingar gerði stofnunin sérstaka innri úttekt á innihaldi matsgerða, óháð þeirri rýni sem að framan greinir. Við þá úttekt komu í ljós nokkur atriði sem betur hefðu mátt fara að mati stofnunarinnar. Í kjölfarið var farið yfir málið með tengiliðum matsaðila og lagður var fram sérstakur gátlisti af hálfu NTÍ, sem óskað var eftir að hafður væri til hliðsjónar við ritun matsgerða, sjá fylgiskjal I. Samkvæmt upplýsingum frá NTÍ gerir stofnunin kröfur um gæði, ítarleika og almenn efnistök matsgerða en leggur þó áherslu á að matsmenn séu sjálfstæðir og óvilhallir í störfum sínum, sbr. 10. gr. reglugerðar um Náttúruhamfaratryggingu Íslands. NTÍ hefur því enga aðkomu eða áhrif á efnislega niðurstöðu matsgerða.

     4.      Samkvæmt þeim verkferlum sem skilgreindir eru, hversu margir tjónamatsmenn gera ástandsskoðun á hverri húseign?
    Samkvæmt upplýsingum frá NTÍ miðast almennt verklag við tjónamat, þ.m.t. í Grindavík, við að tveir matsmenn skoði og meti tjón á húseignum og að a.m.k. annar þeirra uppfylli þau skilyrði sem sett eru fyrir hæfisflokk A, sbr. svar við 2. tölul. fyrirspurnarinnar. Í undantekningartilvikum er tjónamat falið einum matsmanni, en aðeins ef um er að ræða mjög reyndan matsmann og ekki gert ráð fyrir að um sé að ræða flókið eða umfangsmikið tjónamál. Auk þess eru sérhæfðir matsmenn sem annast tjónaskoðun (myndun) á fráveitulögnum, veitukerfum o.fl. sem fara einir á vettvang til að sinna sérstökum úttektum.
    Þegar athugasemdir berast við tjónamat er samkvæmt stofnuninni lagt mat á það hvort rétt sé að óska eftir því að þeim matsmönnum sem áður hafa metið viðkomandi tjón verði falið að endurmeta tjónið eða hvort nýir matsmenn séu fengnir að málinu. Því geta fleiri en tveir matsmenn komið að hverju máli áður en endanleg niðurstaða liggur fyrir í því.

     5.      Samkvæmt þeim verkferlum sem skilgreindir eru, hvernig er kostnaður vegna skemmda metinn?
    Kveðið er á um ákvörðun bóta í 11. gr. reglugerðar um Náttúruhamfaratryggingu Íslands, en ákvörðun bóta vegna beins tjóns af völdum náttúruhamfara fer eftir meginreglum vátryggingaréttar. Vátryggingin bætir hvorki afleitt tjón, svo sem rekstrartap, né tjón sem hlýst af því að eign varð ekki notuð á þeim tíma eða með þeim hætti sem ráðgert hafði verið, auk annars óbeins tjóns. Vátryggingarfjárhæð húseigna miðast við brunabótamat á hverjum tíma og er það hámark þeirrar ábyrgðar sem miða skal við þegar bætur eru ákveðnar. Sú fjárhæð veitir þó ekki sönnun fyrir verðmæti eignar. Við ákvörðun bóta þegar vátryggð eign eyðileggst algerlega skal meta hvort vátryggingarfjárhæð á tjónsdegi sé í samræmi við vátryggingarverðmæti eignar, enda takmarkast bætur við vátryggingarverðmæti ef það reynist jafnt eða lægra en vátryggingarfjárhæð, sbr. 2. tölul. 11. gr. reglugerðarinnar. Kostnaður vegna niðurrifs og förgunar á húseign sem orðið hefur fyrir altjóni er innifalinn í brunabótamati. Þegar um tjón að hluta er að ræða ákvarðast bætur eftir því hvað kostar að gera við hið skemmda svo að það verði eins eða sem næst því eins og fyrir vátryggingaratburðinn. Bætur sem þannig eru ákvarðaðar geta aldrei orðið hærri en mismunur á verðmæti fyrir og eftir vátryggingaratburð, hvort sem er fyrir verðmæti einstakra hluta eða eignar í heild, sbr. 3. tölul. 11. gr. reglugerðarinnar.
    Samkvæmt upplýsingum frá NTÍ er matsmönnum falið að meta kostnað sem felst í því að gera við skemmdir þannig að eignin verði eins eða því sem næst eins og hún var fyrir vátryggingaratburðinn. Gert er kostnaðarmat sem felur í sér allt byggingarefni, vinnu iðnaðar- og verkamanna auk véla og tækja sem þarf til verksins. Kostnaðarmatið er sundurliðað niður í einstaka verkþætti. Niðurrif og hreinsun er innifalið í tjónskostnaði og eftir atvikum kostnaður við tæknilega ráðgjöf vegna viðgerða. Matsmenn þurfa að taka tillit til ástands eignar fyrir vátryggingaratburð þannig að tjónþoli sé jafn vel settur fyrir og eftir atburðinn. Kostnaðaráætlun matsmanna er ekki bein verklýsing heldur aðferð til að meta kostnað vegna beins tjóns á eigninni. Umfjöllun um kostnaðarmat er í 8. kafla Handbókar tjónamats, sjá fylgiskjal II.
    Þegar tjón veldur eingöngu útlitsgalla en rýrir ekki verðmæti eða notagildi hins vátryggða, greiðast ekki bætur, sbr. 3. málsl. 1. tölul. 11. gr. reglugerðarinnar. Dæmi um slíkar skemmdir eru minni háttar rispur á gólfefnum og innréttingum og fíngerðar málningarsprungur í kverkum veggja og lofta. Slíkar skemmdir eru algengar í húseignum um allt land óháð náttúruhamförum.

     6.      Samkvæmt þeim verkferlum sem skilgreindir eru, eru hæðar- og hallamælingar gerðar í öllum herbergjum húsa eða einungis í hluta þeirra?
    Samkvæmt upplýsingum frá NTÍ leynir sér ekki ef mikill halli er á húseign í kjölfar jarðhræringa. NTÍ hefur óskað eftir því við matsmenn að allar húseignir í Grindavík sem koma til skoðunar séu hallamældar, hvort sem grunur leikur á að þær halli eða ekki, sjá gátlista á fylgiskjali I. Hafi húseign sigið í heild, þá vilja hurðir ýmist opnast eða lokast af sjálfu sér og fastar innréttingar og veggir halla. Þetta er auðvelt og fljótlegt að mæla hvort sem það er gert með laserhæðarmæli eða hallamáli. Hafi húseign tekið að halla í heild og hallinn hefur áhrif á verðmæti og notagildi húseignar, þarf að mæla gólffleti á nægjanlega mörgum stöðum þannig að heildarmynd af tjóninu komi fram. Fjöldi mælipunkta og staðsetning þeirra í tilteknum rýmum hússins fer eftir aðstæðum í hverju tilviki. Ef um er að ræða staðbundið sig og búið er að ganga úr skugga um að húseign halli ekki í heild, þarf áhersla mælinga að vera á þann hluta húseignarinnar sem siginn er. Staðbundnu sigi fylgja nær undantekningarlaust greinileg ummerki, t.d. stórar sprungur í veggjum eða gólfum, bil milli gólflista og gólfefnis og brotnar flísar.
    Ef tjónþoli telur að sig sé á húseign í heild eða að hluta og hæðarmæling hefur ekki farið fram eða hún verið ófullnægjandi að hans mati, getur hann tilkynnt það til NTÍ. Stofnunin óskar þá eftir því við matsmenn að eignin verði skoðuð aftur eins og þegar um er að ræða aðrar athugasemdir við niðurstöðu matsmanna.
    Samkvæmt stofnuninni skal haft í huga við mat og mælingu á halla að frávik frá láréttu og lóðréttu plani eru í öllum húseignum óháð náttúruhamförum, með öðrum orðum ekkert hús er fullkomlega lárétt og lóðrétt. Þessi frávik verða við byggingu húseigna (smíðaskekkjur) vegna langtímasigs og formbreytinga á líftíma bygginga, t.d. í berandi steyptum plötum, vegna langtímasigs á fyllingu undir sökklum og botnplötum o.fl. Hlutverk matsmanna er að greina hvort og þá að hve miklu marki húseign hefur sigið umfram þessi fyrrgreindu frávik og hvort og að hve miklu marki verðmæti og notagildi hennar hefur minnkað.

     7.      Samkvæmt þeim verkferlum sem skilgreindir eru, hvernig er sig á botnplötum metið?
    Ef grunur er um sig á botnplötu skulu matsmenn, samkvæmt upplýsingum frá NTÍ, framkvæma hæðarmælingu, sbr. kafla 6.4 í Handbók tjónamats, sjá fylgiskjal II, og eftir atvikum framkvæma sérstakar rannsóknir, sbr. kafla 6.5 í handbókinni. Ef sig eða aðrar skemmdir á botnplötu eru af matsmönnum taldar varða öryggi eða hollustuhætti húseignar virkjast ákvæði 1. mgr. 15. gr. laga um Náttúruhamfaratryggingu Íslands. Við mat á skemmdum vegna sigs á gólfplötum eru samkvæmt stofnuninni fyrirliggjandi verklýsingar sem gerðar hafa verið af þeim matsaðilum (verkfræðistofum) sem vinna tjónamat fyrir NTÍ. Þær verklýsingar, ásamt öðrum, voru yfirfarnar og kynntar sérstaklega fyrir matsmönnum í upphafi tjónamats í Grindavík að ósk NTÍ.
    Samkvæmt upplýsingum frá NTÍ geta orsakir sigs á botnplötum verið af ýmsum toga. Algengt er að botnplötur sigi á löngum tíma vegna þess að frágangur og þjöppun fyllingar er ófullnægjandi. Ef ekki hefur verið grafið niður á fasta klöpp undir botnplötu og allur lífrænn jarðvegur fjarlægður má búast við því að fylling sigi. Sig fyllingar af þessum orsökum er ekki af völdum jarðskjálfta. Við þessar aðstæður, einkum þar sem langt er á milli sökkulveggja eða járnbending er lítil, getur botnplata sigið með fyllingunni. Sé nægur burður í botnplötunni myndast bil á milli fyllingar og plötu. Við þessar aðstæður getur gólfplata verið viðkvæm fyrir jarðskjálftaálagi. Skyndilegt lóðrétt álag vegna jarðskjálfta getur þá valdið því að platan sígur eða sig hennar eykst frá því sem fyrir var.
    Örfá dæmi er að finna í Grindavík, önnur en í altjónshúsum, um að gólfplötur hafi sigið af völdum jarðhræringanna. Til að gera við signa gólfplötu þarf að fjarlægja gólfefni af því svæði (rými) þar sem sigið er. Næst þarf að koma fyrir efni sem styður undir plötuna. Það er hægt með því að gera göt í gegnum plötuna og dæla þar niður sementsefju (þunnblandað múrefni) eða tveggja þátta polyurethane-efni. Bæði þessi efni voru notuð til viðgerða á sambærilegu tjóni af völdum jarðskjálftanna á Suðurlandi árið 2000 og 2008 með góðum árangri. Gólfplötur sem síga voru í flestum tilvikum byggðar áður en gerðar voru kröfur um einangrun undir botnplötur. Næsti verkliður er að leggja múrflot á plötuna til að jafna yfirborð hennar og loks að leggja nýtt sambærilegt gólfefni. Ákvörðun bóta við þessar aðstæður felst í því að meta umfang og kostnað við viðgerðina með gerð kostnaðarmats eins og lýst er í svari við 5. tölul. fyrirspurnarinnar.

     8.      Samkvæmt þeim verkferlum sem skilgreindir eru, hvernig eru skemmdir á burðarvirki metnar?
    Í 7. kafla Handbókar tjónamats er að finna leiðbeiningar um helstu tegundir skemmda á burðarvirki og hvaða tilvik virkja ákvæði 1. mgr. 15. gr. laga um Náttúruhamfaratryggingu Íslands þar sem kveðið er á um að ef tjón hefur áhrif á öryggi húseignar eða hollustuhætti skuli NTÍ tryggja að vátryggingarbótum sé réttilega varið áður en þær eru greiddar tjónþola, sjá umfjöllun í kafla 7.5. í handbókinni, sjá fylgiskjal II.
    Samkvæmt upplýsingum frá NTÍ hefur stofnunin gert kröfu um að a.m.k. annar matsmanna í hverju tjónamáli í Grindavík hafi sérþekkingu á burðarþoli. Samkvæmt stofnuninni er algengast að burðarvirkið sé skoðað með sjónskoðun með sama hætti og tjón á öðrum byggingarhlutum auk þess sem gerðar eru hæðar- og hallamælingar til að kanna hvort það hafi aflagast. Ef grunur leikur á að burðarvirki sé skemmt, t.d. á bak við klæðningu, gerir verklag NTÍ ráð fyrir að gerðar séu sérstakar ráðstafanir, sbr. umfjöllun um sérstakar rannsóknir og viðbótarskoðanir í kafla 6 í Handbók tjónamats, sjá fylgiskjal II.
    Samkvæmt upplýsingum frá NTÍ þarf, þegar lagt er mat á hvaða viðgerðir þurfi að fara fram til að skemmt burðarvirki verði eins eða því sem næst eins og það var fyrir tjónsatburð, að meta sérstaklega hvort burðargeta hafi skerst. Meta þarf hvaða kraftar verka á burðarkerfið eða einstakar einingar þess og með hvaða hætti hægt er að ná fyrri styrk. Eftir atvikum getur þurft að skipta um hluta burðarkerfis eða einstakar einingar þess, t.d. burðarsúlu eða burðarbita. Í öðrum tilvikum getur fullnægjandi fyrri styrkur fengist með viðgerð, t.d. með því að spengja sprungna veggi með stálplötum. Þá er algengt að gert sé við sprungur í steyptum veggjum með því að dæla í þær tveggja þátta epoxy-efni. Sé sprunguvídd innan tiltekinna marka og viðgerð framkvæmd með réttum hætti nær veggurinn fullnægjandi og fyrri styrk. Samkvæmt stofnuninni á slík viðgerð ekki við þegar burðarveggir hafa aflagast eða stórar misgengnar sprungur hafa myndast. Þá er rétt að benda á að sprungur í burðarkerfum úr steinsteypu eru mjög algengar (óháð jarðskjálftum) og það fer allt eftir aðstæðum hverju sinni hvort og þá að hve miklu marki slíkar sprungur hafa áhrif á burðargetu. Í tengslum við tjónamat í Grindavík hafa borist nokkrar athugasemdir við að í matsgerðum sé gert ráð fyrir notkun á ployurethane- og epoxy-efnum til viðgerða. Stofnunin kveður mikla reynslu hafa skapast í notkun þessara efna bæði á Íslandi og erlendis. Gerðar hafi verið sérstakar rannsóknir sem staðfesta að epoxy-efni virkar vel til að ná fram fyrri styrk þegar um er að ræða skemmdir af völdum jarðskjálfta.
    Þegar kemur að ákvörðun bóta vegna skemmda á burðarvirki gilda því sömu meginreglur og um annað tjón, þ.e. hvað kostar að gera við hið skemmda svo það verði eins, eða því sem næst eins og fyrir vátryggingaratburð. Það sem við bætist er sérstakt mat á því hvort burðarþol hafi skerst og með hvaða hætti það verður endurheimt.



Fylgiskjal I.


Gátlisti fyrir matsmenn við gerð matsgerða á húseignum í Grindavík.


www.althingi.is/altext/pdf/154/fylgiskjol/s1774-f_I.pdf




Fylgiskjal II.


Handbók tjónamats. Leiðbeiningar – LBN-0515.


www.althingi.is/altext/pdf/154/fylgiskjol/s1774-f_II.pdf




Fylgiskjal III.


Innihald matsgerða. Verklagsregla – VLR-0508.

www.althingi.is/altext/pdf/154/fylgiskjol/s1774-f_III.pdf