Ferill 705. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1777 — 705. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um slit ógjaldfærra opinberra aðila.
Frá 2. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar.
Í október 2022 tilkynnti þáverandi fjármálaráðherra að ríkisstjórnin stæði frammi fyrir miklum vanda vegna stöðu ÍL-sjóðs og að óbreyttu færi hann í þrot að 12 árum liðnum. Það myndi síðan virkja ábyrgð ríkisins gagnvart hluthöfum í sjóðnum. Við þetta tilefni sagði ráðherra þrjá kosti vera í stöðunni. Í fyrsta lagi að ríkið stæði við skuldbindingar sínar. Í öðru lagi að eigendur bréfa í sjóðnum, sem eru að stærstum hluta lífeyrissjóðir á Íslandi, gengju til samninga við ríkið. Í þriðja lagi að sjóðurinn yrði strax settur í þrot með lagasetningu. Með frumvarpi þessu er ljóst að ríkisstjórnin hefur valið síðasta kostinn.
Rót vandans er sú að árið 2004 voru gerðar breytingar á fjármögnunarfyrirkomulagi Íbúðalánasjóðs þar sem hann var fjármagnaður með óuppgreiðanlegum skuldabréfum, verðtryggðum á föstum vöxtum. Þessi ákvörðun fól í sér stór pólitísk mistök þáverandi ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks enda höfðu lánþegar Íbúðalánasjóðs heimild til að greiða upp lán sín hvenær sem er. Ríkið var fast en lánþeginn ekki. Þetta voru skilmálar sem þáverandi ríkisstjórn samdi sjálf. Nú leitast ríkisstjórnin við að leiðrétta þessi mistök og lágmarka tjón ríkissjóðs vegna þeirra en á kostnað eigenda bréfa í sjóðnum sem eru nær eingöngu lífeyrissjóðir fólksins í landinu en einnig aðrir sjóðir á borð við Styrktarsjóð hjartveikra barna.
Vandinn við þessar fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar er bæði að þær fela í sér aðför að eignarréttinum, enda stendur til að skerða eignir sjóðfélaga einhliða, og að þær eru til þess fallnar að skaða trúverðugleika og orðspor íslenska ríkisins þegar kemur að því að standa við fjárhagslegar skuldbindingar sínar. Um leið og Kauphöllin opnaði á ný eftir tilkynningu ráðherra í október 2022 féll virði skuldabréfa og gera má ráð fyrir að a.m.k. 100 milljarðar kr. hafi þurrkast upp á augabragði.
Í nefndaráliti meiri hlutans kemur fram að þótt aðdraganda frumvarpsins megi rekja til fjárhagsstöðu ÍL-sjóðs feli frumvarpið ekki í sér að sjóðnum verði sjálfkrafa slitið. Meiri hlutinn telur að þess í stað feli frumvarpið í sér almenna lagasetningu sem muni gilda í öllum tilvikum þegar reynir á ógjaldfærni opinberra aðila. Þannig feli frumvarpið, að sögn meiri hlutans, í sér að verði ákvæðum laganna beitt þurfi að gæta að reglum stjórnsýslulaga, þ.m.t. rannsóknarreglunni, varðandi áhrif slita ÍL-sjóðs á fjármálamarkaði og fjármálastöðugleika. 2. minni hluti telur skýrt að þótt orðalag frumvarpsins sé almennt þá opni það fyrir möguleikann á slitum ÍL-sjóðs með hætti sem muni valda lífeyrissjóðum landsins gífurlegu fjárhagslegu tjóni og geti rýrt traust í garð skuldbindinga ríkisins. 2. minni hluti telur einnig alls ekki sjálfsagt að í lögum sé yfir höfuð heimild til slita ógjaldfærra opinberra aðila.
Annar minni hluti greiddi atkvæði gegn því að frumvarpið yrði afgreitt úr nefnd í núverandi mynd þar sem ekki hefur verið varpað ljósi á það hvernig beiting frumvarpsins uppfyllir skilyrði 72. gr. stjórnarskrárinnar um almenningsþörf við skerðingu eignarréttar. 2. minni hluti greiddi einnig atkvæði gegn því á grundvelli þess að ekki hafi verið metið að fullu hvaða áhrif beiting frumvarpsins kunni að hafa á fjármálastöðugleika á Íslandi og á orðspor landsins. 2. minni hluti telur ekki tækt að frumvarp sé afgreitt sem heimilar ákvarðanir sem líklegt er að fari á svig við stjórnarskrána. Eyða þarf þeirri óvissu áður en frumvarpið verður að lögum.
Að framangreindu virtu leggur 2. minni hluti til að frumvarpið verði ekki samþykkt.
Alþingi, 3. júní 2024.
Guðbrandur Einarsson.