Ferill 898. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1793 — 898. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar (þjónustugjöld).
Frá meiri hluta atvinnuveganefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, Samorku, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum iðnaðarins og Landsvirkjun.
Nefndinni bárust fjórar umsagnir um málið sem eru aðgengilegar á síðu málsins á vef Alþingis.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ýmsum lögum með það að markmiði að tryggja heimildir Orkustofnunar til að innheimta gjöld í samræmi við kostnað af leyfisveitingum og eftirliti. Núgildandi gjöld eru ekki í samræmi við kostnað vegna vinnu við eftirlit og afgreiðslu leyfisumsókna hjá Orkustofnun.
Meiri hlutinn telur málið mikilvægt skref í þá átt að veita stjórnvöldum aukið tækifæri til að bæta þjónustu og tryggja að tímafrestir standist. Umsagnir um málið voru að mestu jákvæðar. Meiri hlutinn tekur þó undir þá ábendingu flestra umsagnaraðila að mikilvægt sé að huga að því að innheimt þjónustugjöld endurspegli veitta þjónustu. Beinir meiri hlutinn því til ráðuneytisins að tryggja að svo verði.
Meiri hlutinn leggur til breytingar á frumvarpinu sem eru tæknilegs eðlis og er ekki ætlað að hafa efnisleg áhrif.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi:
BREYTINGU:
a. Orðið „Orkustofnunar“ í 3. mgr. falli brott.
b. Fyrirsögn greinarinnar falli brott.
2. Við efnisgrein 4. gr.
a. Orðið „Orkustofnunar“ í 3. mgr. falli brott.
b. Fyrirsögn greinarinnar falli brott.
Alþingi, 4. júní 2024.
Þórarinn Ingi Pétursson, form. |
Ásmundur Friðriksson, frsm. |
Eva Dögg Davíðsdóttir. | |
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir. | Óli Björn Kárason. |