Ferill 996. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1809 — 996. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um Norður-Atlantshafssjávarspendýraráðið.
1. Hver hefur hlutdeild Íslands verið í rekstrarkostnaði Norður-Atlantshafssjávarspendýraráðsins (NAMMCO), hversu mikill hefur kostnaður við þátttöku fulltrúa Íslands í fundum ráðsins verið og hvaða annar kostnaður hefur fallið til vegna aðildar Íslands að ráðinu frá árinu 2002? Svarið óskast sundurliðað eftir ári á verðlagi yfirstandandi árs.
Á stofnfundi Norður-Atlantshafssjávarspendýraráðsins (NAMMCO) í september 1992 var ákveðið að fjárframlög aðildarríkjanna skyldu skiptast á milli þeirra á þann hátt að Noregur greiddi 50%, Ísland 25% og Færeyjar og Grænland 12,5% hvort um sig. Er það hlutfall af samþykktri rekstraráætlun NAMMCO hverju sinni. Framlagið er í norskum krónum og því háð nokkrum gengissveiflum. Var hlutdeild Íslands rúmlega 18 milljónir íslenskra króna fyrir rekstrarárið 2023.
Aðildargjöld Íslands frá 2002 eru sett fram í eftirfarandi töflu í norskum krónum og umreiknað í íslenskar krónur fyrir hvert ár. Við útreikning á aðildargjöldum áranna 2002–2007 er notað skráð viðmiðunargengi Seðlabanka Íslands í norskum krónum þann dag sem beiðni um gjaldeyrisyfirfærslu er send. Að auki er framlagið sundurliðað eftir ári á verðlagi hvers árs með verðlagsreiknivél Hagstofunnar.
Eins og sjá má hefur framlagið haldist nokkuð stöðugt síðustu tuttugu ár og ekki fylgt verðlagsþróun. Hefur því framlag Íslands farið minnkandi ef miðað er við fast gengi og verðlag frá byrjun þess tímabils sem óskað var eftir.
| Aðildargjöld í norskum krónum | Gengi | Aðildargjöld í íslenskum krónum | Á verðlagi yfirstandandi árs | |
| 2023 | 1.256.661 | 14,38 | 18.067.015 | 19.269.989 |
| 2022 | 1.232.021 | 14,13 | 17.412.153 | 20.418.044 |
| 2021 | 1.207.864 | 15,15 | 18.300.347 | 22.679.366 |
| 2020 | 1.184.180 | 14,00 | 16.576.033 | 21.425.604 |
| 2019 | 1.160.960 | 13,93 | 16.174.379 | 21.261.494 |
| 2018 | 1.138.196 | 12,92 | 14.706.858 | 19.986.659 |
| 2017 | 1.119.600 | 13,22 | 14.806.083 | 20.599.059 |
| 2016 | 1.095.000 | 14,97 | 16.388.175 | 23.237.438 |
| 2015 | 1.073.100 | 17,43 | 18.707.672 | 27.096.258 |
| 2014 | 1.052.059 | 18,59 | 19.560.960 | 28.563.811 |
| 2013 | 1.052.059 | 22,19 | 23.344.059 | 35.148.574 |
| 2012 | 901.338 | 20,68 | 18.639.277 | 29.239.538 |
| 2011 | 901.338 | 20,72 | 18.674.429 | 31.204.618 |
| 2010 | 901.338 | 21,83 | 19.679.151 | 33.490.100 |
| 2009 | 901.338 | 19,53 | 17.601.296 | 31.929.028 |
| 2008 | 857.437 | 15,15 | 12.992.342 | 27.943.928 |
| 2007 | 806.958 | 10,52 | 8.489.198 | 19.316.906 |
| 2006 | 779.875 | 12,07 | 9.414.651 | 22.896.491 |
| 2005 | 760.936 | 9,759 | 7.425.974 | 18.854.186 |
| 2004 | 779.875 | 9,914 | 7.731.681 | 20.405.817 |
| 2003 | 757.050 | 10,78 | 8.160.999 | 22.059.027 |
| 2002 | 735.000 | 11,353 | 8.344.455 | 22.875.221 |
| 331.197.187 | 539.901.156 |
Aðildargjöld Íslands, kostnaður við þátttöku fulltrúa Íslands auk annars kostnaðar er settur fram í eftirfarandi töflu. Upplýsingar um kostnað sem mögulega hefur fallið á Fiskistofu og Hafrannsóknastofnun vegna aðildar að NAMMCO eru ekki inni í þessum tölum. Ferðakostnaður fyrir árin 2002–2007 liggur ekki fyrir.
| Aðildargjöld | Ferðakostnaður | Annar kostn. | Heildargjöld | |
| 2023 | 18.067.015 | 971.145 | 19.038.160 | |
| 2022 | 17.412.153 | 681.505 | 18.093.658 | |
| 2021 | 18.300.347 | 18.300.347 | ||
| 2020 | 16.576.033 | 16.576.033 | ||
| 2019 | 16.174.379 | 616.175 | 16.790.554 | |
| 2018 | 14.706.858 | 368.719 | 15.075.577 | |
| 2017 | 14.806.083 | 581.201 | 204.453 | 15.591.737 |
| 2016 | 16.388.175 | 862.369 | 17.250.544 | |
| 2015 | 18.707.672 | 375.053 | 336.800 | 19.419.525 |
| 2014 | 19.560.960 | 405.102 | 19.966.062 | |
| 2013 | 23.344.059 | 198.429 | 23.542.488 | |
| 2012 | 18.639.277 | 1.840.968 | 281.667 | 20.761.912 |
| 2011 | 18.674.429 | 603.541 | 30.747 | 19.308.717 |
| 2010 | 19.679.151 | 774.716 | 11.033 | 20.464.900 |
| 2009 | 17.601.296 | 1.080.455 | 60.950 | 18.742.701 |
| 2008 | 12.992.342 | 1.861.553 | 103.603 | 14.957.498 |
| 2007 | 8.489.198 | 8.489.198 | ||
| 2006 | 9.414.651 | 9.414.651 | ||
| 2005 | 7.425.974 | 7.425.974 | ||
| 2004 | 7.731.681 | 7.731.681 | ||
| 2003 | 8.160.999 | 8.160.999 | ||
| 2002 | 8.344.455 | 8.344.455 | ||
| 331.197.187 | 11.220.931 | 1.029.253 | 343.447.371 |
2. Hvaða verkefnum sinnir NAMMCO sem ekki mætti finna farveg í alþjóðasamstarfi með breiðari skírskotun, eins og innan Alþjóðahvalveiðiráðsins eða á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar?
3. Telur ráðherra koma til álita að draga Ísland úr NAMMCO eða að beita sér fyrir niðurlagningu ráðsins svo að beina megi fjármunum í farveg sem skili meiri árangri í þágu samvinnu um málefni sjávarspendýra?
Norður-Atlantshafssjávarspendýraráðið eru svæðisbundin samtök um verndun og stjórnun nýtingar á hvala- og selastofnum sem má finna í Norður-Atlantshafi. Ráðið var stofnað árið 1992 af Íslandi, Noregi, Færeyjum og Grænlandi.
Markmið NAMMCO er m.a. að styðja aðildarríkin í að uppfylla skyldur sínar skv. 65. gr. hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna um að eiga samstarf á vettvangi viðeigandi alþjóðastofnana um verndun, stjórnun veiða og rannsóknir á þeim. Stofnsáttmáli ráðsins leggur þannig áherslu á að treysta og efla vísindalega þekkingu á sjávarspendýrum til að skilja betur hlutverk þeirra og samspil í vistkerfi hafsins í Norður-Atlantshafi og er vísindasamstarf grundvöllur þess samstarfs sem á sér stað á vettvangi ráðsins. Að auki á sér þar stað mikilvægt samstarf um veiðiaðferðir og eftirlit með veiðum.
Fulltrúar aðildarríkjanna hittast árlega og ræða nýtingu, veiðiaðferðir aðildarríkjanna og frekari rannsóknir á sjávarspendýrum Norður-Atlantshafsins. Var 31. ársfundur aðildarríkja haldinn dagana 19.–21. mars sl. í Reykjavík undir formennsku Íslands. Auk aðildarríkjanna sóttu fundinn áheyrnarfulltrúar frá Danmörku, Bandaríkjunum og Japan, auk fulltrúa frumbyggja og fulltrúa ýmissa alþjóðastofnana eins og t.d. Alþjóðahvalveiðiráðsins. Alls voru á fundinum samþykktar 22 tillögur um verndun og stjórnun á svæðinu og 44 tillögur um rannsóknir, byggt á starfi vísindanefndar ráðsins og annarra undirnefnda þess.
Mikilvægt vísindasamstarf og svæðisbundin samvinna á sér stað innan NAMMCO sem ekki á sér vettvang annars staðar. Er ekki að sjá á þessari stundu að hægt væri að tryggja þeirri vinnu farveg á öðrum vettvangi og því er aðild Íslands að NAMMCO, sem og stofnunin sjálf, nauðsynleg til að tryggja samvinnu um málefni sjávarspendýra á Norður-Atlantshafi.
Alls fóru 20 vinnustundir í að taka svarið saman.