Ferill 1078. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1825 — 1078. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2024, sbr. lög nr. 17/2024.
Frá meiri hluta fjárlaganefndar.
Nefndin fjallaði um málið eftir að því var vísað til hennar 7. maí sl. Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kom á fund nefndarinnar ásamt fulltrúum ráðuneytisins. Nefndin kallaði ekki eftir umsögnum um málið en efni þess snýr eingöngu að aðkomu ríkissjóðs að kjarasamningum á almennum markaði sem undirritaðir voru í byrjun marsmánaðar. Þetta er þriðja frumvarp ársins til fjáraukalaga en áður hafa tvö frumvörp til fjáraukalaga verið samþykkt sem bæði tóku til fjárútláta ríkissjóðs í tengslum við eldsumbrotin í og við Grindavíkurbæ og það óvissuástand sem þar hefur skapast.
Í tengslum við gerð kjarasamninga á almennum markaði gáfu ríkisstjórnin og Samband íslenskra sveitarfélaga út yfirlýsingu um aðgerðir til að styðja við markmið samninganna. Á tímabilinu 2025–2029 nema aðgerðirnar samtals um 83,2 ma.kr. og í tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2025–2029 (þskj. 1501, 1035. mál) er gert ráð fyrir þessum fjárhæðum í útgjöldum ríkissjóðs.
Yfirlýsingin er ófjármögnuð vegna ársins 2024 og er frumvarpinu ætlað að bæta úr því.
Efni frumvarpsins.
Gerðar eru tillögur um samtals 12,9 ma.kr. auknar útgjaldaheimildir árið 2024 sem sundurliðast í tíu liðum, sbr. eftirfarandi töflu. Til samanburðar eru birtar fjárhæðir fyrir árin 2025 og 2026 sem gert er ráð fyrir í tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2025–2029.
| Tilefni | 2024 | 2025 | 2026 |
| Sérstakur vaxtastuðningur til heimila með íbúðalán | 6.000 | 0 | 0 |
| Barnabætur | 3.000 | 5.000 | 5.000 |
| Gjaldfrjálsar skólamáltíðir | 1.500 | 3.750 | 3.750 |
| Hækkun húsnæðisbóta | 1.250 | 2.500 | 2.500 |
| Hækkun hámarksgreiðslna Fæðingarorlofssjóðs | 600 | 2.500 | 4.300 |
| Gjaldfærður ríkisstuðningur vegna hlutdeildarlána | 320 | 0 | 0 |
| Aukin stofnframlög til húsnæðismála | 0 | 0 | 3.900 |
| Framlag til vinnustaðanámssjóðs | 150 | 150 | 150 |
| Bætt aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu | 50 | 50 | 50 |
| Hækkun hámarksábyrgðar úr Ábyrgðasjóði launa | 49 | 49 | 43 |
| Samtals | 12.919 | 13.999 | 19.693 |
Fram kemur að vaxtastuðningurinn tekur aðeins til þessa árs en barnabætur hækka árið 2025 þar sem þær taka þá til ársins í heild. Sama á við um hækkun húsnæðisbóta og hækkun hámarksgreiðslna úr Fæðingarorlofssjóði. Aukin stofnframlög til húsnæðismála koma til árin 2026 og 2027.
Til skýringar við veigamestu liðina má nefna að vaxtastuðningurinn tekur mið af vaxtagjöldum ársins 2023 og kemur til viðbótar við almennar vaxtabætur. Ekki er gert ráð fyrir að aðgerðin sé endurtekin á næsta ári þar sem forsendur miðast við að vaxtakostnaður heimila lækki árið 2025. Húsnæðisbætur verða hækkaðar frá 1. júní þar sem miðað er við að hækka þær um 25% til leigjenda og verður aukið tillit tekið til fjölskyldustærðar.
Skólamáltíðir verða gerðar gjaldfrjálsar frá og með næsta skólaári og út árið 2027 í samræmi við gildistíma kjarasamninga á almennum markaði. Barnabætur verða hækkaðar og dregið verður úr tekjuskerðingum sem ætlað er að fjölgi um 10 þúsund þeim foreldrum sem fá stuðning.
Einnig er sótt um gjaldaheimildir til nokkurra annarra verkefna sem fram koma í fyrrgreindri töflu og eru skýrðar frekar í greinargerð með frumvarpinu.
Loks er gerð tillaga um breytingu á 5. gr. fjárlaga sem hækkar heimild til hlutdeildarlána um 1 ma.kr. Verður hún samtals 4 ma.kr. í stað 3 ma.kr. Breytingin er lögð til vegna markmiða um uppbyggingu 1.000 íbúða á árinu með hlutdeildarlánum. Lánsheimildir hlutdeildarlána eru við það að klárast. Til að bregðast við þeirri stöðu og styðja við markmið um íbúðauppbyggingu er lögð til þessi breyting. Heildarlánsheimild til Húsnæðissjóðs stendur þó óbreytt í 20 ma.kr.
Tengsl við önnur frumvörp.
Tillögur frumvarpsins um hækkun gjaldaheimilda tengjast í flestum tilfellum samþykkt annarra frumvarpa. Vaxtastuðningur til heimila og hækkun barnabóta hafa nú þegar verið samþykkt með breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, í 918. máli. Hækkun húsnæðisbóta tengist 1075. máli um breytingu á lögum húsnæðisbætur, nr. 75/2016, og hækkun hámarksgreiðslna úr Fæðingarorlofssjóði er að finna í 910. máli. Einnig er í 1114. máli, frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, kveðið á um gjaldfrjálsar skólamáltíðir.
Endurmat á afkomu ársins.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram endurmat á afkomu ársins. Í frumvarpinu sjálfu er hvorki gert ráð fyrir breytingum á tekjuhlið fjárlaga né endurmati til lækkunar útgjalda og eru því áætluð heildargjöld ekki þau sömu og í fjárlögum að viðbættum fjáraukalögum.
Heildartekjur eru áætlaðar um 11 ma.kr. hærri en í fjárlögum. Munar þar mestu um 10 ma.kr. hærri arðgreiðslu Landsvirkjunar og endurmat á umfangi afskrifta skattkrafna í samræmi við breytta aðferðafræði Fjársýslu ríkisins.
Heildargjöld eru nú áætluð um 10 ma.kr. hærri en í fjárlögum. Tillögur í frumvarpi þessu koma til hækkunar en á móti vegur að sökum lægri verðbólgu er nú gert ráð fyrir að gjaldfærðar verðbætur verði um 3 ma.kr. lægri en í áætlun fjárlaga.
Í heildina hækka því bæði tekjur og gjöld um svipaða fjárhæð og heildarafkoman er því áætluð nær óbreytt frá fjárlögum, eða neikvæð um 50 ma.kr., en frumjöfnuður er áætlaður jákvæður um 21 ma.kr.
Breytingartillaga meiri hlutans.
Gerð er tillaga um að veitt verði 225 m.kr. heimild á málaflokk 29.40 Annar stuðningur við fjölskyldur og börn vegna skólamáltíða til viðbótar við þær 1.500 m.kr. sem eru nú þegar til staðar í frumvarpinu. Breytingin skýrist af endurmati á því hver hlutfallsleg skipting kostnaðar á milli vor- og haustannar er vegna skólamáltíða.
Kostnaður vegna skólamáltíða er áætlaður 3.750 m.kr. á einu skólaári og skiptist þannig að 1.725 m.kr. (46%) falla til á haustönn 2024 og 2.025 m.kr. (54%) á vorönn 2025.
Gert er ráð fyrir að fjárheimildum í 1. og 2. gr. frumvarpsins verði breytt í samræmi við þessa tillögu.
Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
Heildarfjárheimild málaflokksins 29.40 Annar stuðningur við fjölskyldur og börn hækki um 225 m.kr.
Alþingi, 7. júní 2024.
| Stefán Vagn Stefánsson, form., frsm. |
Njáll Trausti Friðbertsson. | Jódís Skúladóttir. |
| Jóhann Friðrik Friðriksson. | Teitur Björn Einarsson. | Vilhjálmur Árnason. |