Ferill 1058. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1827 — 1058. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Indriða Inga Stefánssyni um ávinning sjálfvirknivæðingar og gervigreindar.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hefur farið fram vinna í ráðuneytinu til að tryggja að eðlilegur hluti þess ávinnings sem verður af fyrirséðu hagræði vegna gervigreindar annars vegar og sjálfvirknivæðingar hins vegar skili sér til almennings? Ef svo er ekki, stendur það til?
Í ráðuneytinu hefur ekki farið fram formleg vinna við að greina ávinning af fyrirséðu hagræði vegna gervigreindar og á hvaða hátt slíkur ávinningur skili sér til almennings. Þó er rétt að nefna að hluti stofnana ráðuneytisins nýtir sér gervigreind í einhverjum mæli. Ráðuneytið hefur jafnframt til skoðunar að fara í slíka vinnu enda er ljóst að tækifæri til hagnýtingar gervigreindar eru ótvíræð. Rétt er að nefna að stjórnvöld hafa mótað stefnu varðandi hagnýtingu gervigreindar auk leiðbeininga um notkun gervigreindar hjá hinu opinbera. Leiðbeiningunum er ætlað að stuðla að því að opinberir aðilar nýti tækifæri gervigreindar til að bæta opinbera þjónustu og skilvirkni í störfum með ábyrgum, gagnsæjum og áreiðanlegum hætti.
Ráðuneytið hefur ásamt undirstofnunum lagt áherslu á að auka sjálfvirkni í ferlum og störfum stofnana og nýta upplýsingatækni til að veita samfélaginu framúrskarandi þjónustu. Farin hefur verið sú leið að nýta gervigreind og sjálfvirknivæðingu m.a. með persónulegum þjónustusíðum, sjálfsafgreiðslu, stafrænum mælaborðum og snjallmennum þar sem handvirkir ferlar og þjónustuleiðir, eins og skil á gögnum og svörun einfaldra fyrirspurna, hafa verið þróuð í rafrænt og sjálfvirkt ferli. Allt hefur þetta verið gert með það að markmiði að greiða götu almennings enn frekar, miðla upplýsingum með skýrum hætti og veita aðgengilegri þjónustu. Ráðuneytið hefur jafnframt í skoðun að fara af stað með tilraunaverkefni sem lýtur að því að nýta gervigreind til úrlausnar tiltekinna verkefna.