Ferill 239. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1828 — 239. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um Mannréttindastofnun Íslands.
Frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti frá skrifstofu Alþingis, umboðsmanni Alþingis, forsætisráðuneyti, dómsmálaráðuneyti, félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, Jafnréttisstofu, Persónuvernd, Mannréttindaskrifstofu Íslands, Geðhjálp , Landssamtökunum Þroskahjálp, ÖBÍ réttindasamtökum, Kvenréttindafélagi Íslands, Mannréttindastofnun Háskóla Íslands, Evrópuneti mannréttindastofnana, Amnesty International, og Trausta Fannar Valsson og Hafstein Þór Hauksson.
Nefndinni bárust 19 umsagnir sem eru aðgengilegar á síðu málsins á vef Alþingis auk minnisblaða og upplýsinga frá forsætisráðuneyti.
Umfjöllun nefndarinnar.
Stofnun sem heyrir undir Alþingi (1. gr.).
Með frumvarpinu er lagt til að komið verði á fót sjálfstæðri mannréttindastofnun á vegum Alþingis sem uppfyllir meginreglur um uppbyggingu, hlutverk, stöðu og starfsemi mannréttindastofnana, svokölluð Parísarviðmið, sem eru viðmiðunarreglur Sameinuðu þjóðanna um mannréttindastofnanir. Með hinni nýju stofnun er stefnt að aukinni eflingu og vernd mannréttinda hér á landi auk þess sem komið verður til móts við tilmæli alþjóðlegra aðila og unnt verður að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Fyrir nefndinni komu fram sjónarmið um hvort unnt væri að fela Mannréttindaskrifstofu Íslands eða stofnun á vegum framkvæmdarvaldsins þau verkefni sem Mannréttindastofnun Íslands er ætlað að sinna. Parísarviðmiðin mæla ekki fyrir um að skipulag mannréttindastofnunar sé með ákveðnum hætti heldur kveða þau á um almenn skilyrði sem slíkar stofnanir þurfa að uppfylla. Meðal þessara skilyrða er að mælt sé fyrir um hlutverk mannréttindastofnunar í almennum lögum eða stjórnarskipunarlögum og að bæði fjárhagslegt og stofnanabundið sjálfstæði hennar sé tryggt. Því er ljóst að Mannréttindaskrifstofa Íslands, sem frjáls félagasamtök, uppfyllir að óbreyttu ekki Parísarviðmiðin.
Norðurlöndin hafa farið ýmsar leiðir við stofnsetningu mannréttindastofnana sem ætlað er að uppfylla Parísarviðmiðin. Sem dæmi má nefna að í Danmörku starfar mannréttindastofnunin lögum samkvæmt sem opinber sjálfseignarstofnun, í Finnlandi mynda mannréttindamiðstöðin, mannréttindanefndin og umboðsmaður finnska þingsins hina finnsku mannréttindastofnun og í Svíþjóð er stofnunin stjórnvald sem heyrir undir sænska vinnumarkaðsráðuneytið. Í Noregi, sem frumvarpið sækir fyrirmynd sína til, heyrir mannréttindastofnunin undir Stórþingið.
Mannréttindastofnun Íslands er ætlað að sinna víðtæku eftirlitshlutverki með stöðu mannréttinda hér á landi. Það eftirlit mun í ríkum mæli snúa að verkum framkvæmdarvaldsins. Með eftirlitsstörfum sínum mun stofnunin veita stjórnvöldum mikilsvert aðhald í því skyni að efla og vernda mannréttindi. Þó að stofnunin geti starfað sem sjálfstæð stofnun á vegum framkvæmdarvaldsins er það mat nefndarinnar að betur fari á því að Mannréttindastofnun Íslands standi utan framkvæmdarvaldsins og starfi fremur á vegum Alþingis líkt og embætti umboðsmanns Alþingis og Ríkisendurskoðun. Þá hefur almennt verið talið æskilegt að slík stofnun heyri undir Alþingi, sbr. t.d. skýrslu innanríkisráðherra um mannréttindi sem lögð var fyrir Alþingi á 145. löggjafarþingi.
Hér á landi er rík samstaða um mikilvægi mannréttinda og stendur samfélagið stöðugt frammi fyrir nýjum áskorunum þegar kemur að vernd mannréttinda. Alþingi hefur mikilvægu hlutverki að gegna þegar kemur að vernd mannréttinda og mun því tilkoma Mannréttindastofnunar Íslands sem stofnunar á vegum þingsins skjóta styrkum stoðum undir eftirlit Alþingis með mannréttindum þar sem þingið mun fá með skilvirkum hætti óháðar upplýsingar um stöðu mannréttindamála hér á landi. Nefndin leggur því ríka áherslu á að stofnuninni verði tryggt nægilegt fjármagn til að hún geti sinnt hlutverki sínu með árangursríkum og skilvirkum hætti.
Framkvæmdastjóri (4. gr.).
Nefndin fjallaði um framkvæmdastjóra Mannréttindastofnunar Íslands og þá þekkingu og reynslu sem framkvæmdastjóri skal búa yfir. Eins og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu þá munu stjórnsýslulög, nr. 37/1993, ekki taka til starfsemi Mannréttindastofnunar Íslands þar sem stofnunin mun ekki heyra undir framkvæmdarvaldið. Aftur á móti þykir rétt að sambærilegar reglur gildi um skipun framkvæmdastjóra og skipun embættismanna í stjórnsýslunni. Meðal þeirra reglna sem ber að fara eftir er að ráða skuli hæfasta umsækjandann í starfið á grundvelli málefnalegra sjónarmiða. Í greinargerð með frumvarpinu segir einnig að auk reglna stjórnsýsluréttar þurfi að huga sérstaklega að Parísarviðmiðunum við mat á hæfni umsækjanda og tryggja að sá aðili sem er skipaður sé ekki svo tengdur opinberum aðilum að það stefni sjálfstæði stofnunarinnar í hættu. Með þessu orðalagi er undirstrikað mikilvægi þess að framkvæmdastjóri sinni ekki launuðum eða ólaunuðum verkefnum samhliða starfi sínu sem geta stefnt sjálfstæði stofnunarinnar í hættu. Nefndin áréttar þó að með þessu er ekki verið að útiloka einstaklinga sem hafa áður sinnt störfum eða ábyrgðarhlutverkum hjá hinu opinbera frá því að gegna starfi framkvæmdastjóra Mannréttindastofnunar Íslands. Við mat á því hvaða störf eru samrýmanleg starfi framkvæmdastjóra þarf að horfa til kröfu Parísarviðmiðanna um sjálfstæði. Mikilvægt er að framkvæmdastjóri sé sjálfstæður og óháður öðrum aðilum svo að hann geti sinnt því víðtæka hlutverki sem stofnuninni er ætlað á óhlutdrægan hátt. Stjórn stofnunarinnar metur hvort önnur verkefni séu talin samrýmast starfi framkvæmdastjóra eða ekki.
Í 4. mgr. 4. gr. frumvarpsins er jafnframt kveðið á um skilyrði þess að víkja megi framkvæmdastjóra úr embætti. Tekið er fram að einungis sé heimilt að víkja honum úr embætti ef hann er talinn hafa brotið alvarlega gegn starfsskyldum sínum og þá einungis ef fjórir af fimm fulltrúum í stjórn samþykkja það. Með þessu er leitast við að tryggja sjálfstæði framkvæmdastjóra í starfi. Þó að ekki sé sérstaklega mælt fyrir um það lítur nefndin svo á að fylgja skuli sjónarmiðum um vandaða stjórnsýsluhætti og almennum meginreglum opinbers starfsmannaréttar áður en stjórn tekur ákvarðanir um réttindi og skyldur framkvæmdastjóra.
Upplýsingaöflun og eftirlit (7. gr.).
Fyrir nefndinni voru reifuð sjónarmið um að ákvæði 7. gr. frumvarpsins um upplýsingaöflun Mannréttindastofnunar Íslands væri mjög víðtækt. Ákvæðið skyldar stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök til að veita Mannréttindastofnun Íslands allar þær upplýsingar og skriflegar skýringar sem hún telur nauðsynlegar til þess að geta sinnt hlutverki sínu. Stofnunin geti jafnframt krafist afhendingar á skýrslum, skjölum, bókunum og öllum öðrum gögnum sem varða eftirlit hennar en heimildin tekur einnig til rafrænna gagna.
Verkefni Mannréttindastofnunar Íslands verða víðtæk en hafa verður í huga að stofnunin mun hafa eftirlit með stöðu mannréttinda hér á landi og veita aðhald á því sviði. Í samræmi við þetta mikilvæga hlutverk mæla Parísarviðmiðin fyrir um að mannréttindastofnanir skuli hafa víðtækan rétt til öflunar upplýsinga sem varða mannréttindi. Nefndin vekur þó athygli á að upplýsingarétturinn er ekki án takmarkana. Í ákvæðinu er skýrt tekið fram að upplýsingaréttur Mannréttindastofnunar Íslands sé ávallt háður því skilyrði að upplýsingarnar sem stofnunin fer fram á séu nauðsynlegar til að hún geti sinnt hlutverki sínu. Þá ber stofnuninni, líkt og fram kemur í athugasemdum við ákvæðið, ávallt að gæta meðalhófs við beitingu heimildarinnar.
Nefndin fjallaði jafnframt um þann fyrirvara sem fram kemur í ákvæði 7. gr. frumvarpsins, um að Mannréttindastofnun Íslands geti ekki krafist upplýsinga sem varða öryggi ríkisins eða utanríkismál sem leynt skulu fara nema með leyfi þess ráðherra sem í hlut á. Fyrir nefndinni voru viðraðar áhyggjur af því að þessi fyrirvari kynni að vera túlkaður rúmt í framkvæmd, þá sérstaklega í tilviki upplýsinga sem varða löggæslu. Í minnisblaði frá forsætisráðuneyti, dags. 23. nóvember 2023, kemur fram að ákvæðið byggist að hluta til á 7. gr. laga um umboðsmann Alþingis, nr. 85/1997. Þar er mælt fyrir um víðtækan rétt umboðsmanns Alþingis til upplýsinga en sá réttur nær ekki til upplýsinga sem varða öryggi ríkisins eða utanríkismál sem leynt skulu fara nema með leyfi þess ráðherra sem í hlut á rétt eins og í frumvarpinu. Þá hefur umboðsmaður barna einnig víðtækan rétt til upplýsinga, sbr. 5. gr. laga um það embætti, nr. 83/1994, en sá réttur nær ekki til upplýsinga sem varða öryggi ríkisins eða utanríkismál sem leynt skulu fara nema með leyfi viðkomandi ráðherra. Að mati nefndarinnar má því gera ráð fyrir því að 7. gr. frumvarpsins verði túlkuð með sambærilegum hætti og fyrrnefnd ákvæði og að Mannréttindastofnun Íslands geti almennt óskað eftir upplýsingum sem varða löggæslu.
Eftirlit Mannréttindastofnunar Íslands.
Mannréttindasjónarmiða gætir með einum eða öðrum hætti í flestum verkefnum hins opinbera og fara ýmsar stofnanir með mannréttindaeftirlit hver á sínu sviði. Í umsögn Persónuverndar kemur fram það mat stofnunarinnar að þau verkefni sem Mannréttindastofnun Íslands verði falið að sinna geti í einhverjum tilvikum skarast á við verkefni annarra stofnana. Sem dæmi er það meðal markmiða persónuverndarlöggjafarinnar að stuðla að því að farið sé með persónuupplýsingar í samræmi við grundvallarsjónarmið og reglur um persónuvernd og friðhelgi einkalífs. Þannig falli það undir valdsvið Persónuverndar að fara með eftirlit með ákveðnum grundvallarréttindum einstaklinga. Í umsögninni kemur fram það álit Persónuverndar að með stofnun Mannréttindastofnunar Íslands sé ekki hróflað við þeim lögbundnu verkefnum sem Persónuvernd eru falin.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að þau verkefni sem Mannréttindastofnun Íslands er ætlað að sinna geti í einhverjum tilvikum skarast á við verkefni annarra stofnana og er nefnt sem dæmi embætti umboðsmanns barna. Með frumvarpinu er gert ráð fyrir að það hafi einhver áhrif í för með sér, m.a. í formi samstarfs og samráðs milli þessara stofnana. Benda má á að verkefni þeirra stofnana sem þegar eru starfandi og varða eftirlit með réttindum borgaranna geta einnig skarast í ákveðnum tilvikum. Sem dæmi má nefna að umboðsmaður barna hefur víðtækt hlutverk þegar kemur að réttindum barna og geta því komið upp mál þar sem verkefni hans skarast við verkefni annarra stofnana, svo sem Persónuverndar, umboðsmanns Alþingis eða Jafnréttisstofu. Hefur slíkt almennt ekki skapað vandamál í framkvæmd en í ákveðnum tilvikum kallað á samtal á milli þessara stofnana. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að eitt af hlutverkum Mannréttindastofnunar Íslands sé að stuðla að samhæfingu á milli ólíkra aðila sem vinna á sviði mannréttinda, sem getur t.d. falist í því að hvetja til samstarfs milli viðeigandi opinberra aðila og annarra aðila sem vinna að mannréttindamálum. Nefndin tekur undir þessi sjónarmið en áréttar að frumvarpinu er ekki ætlað að hrófla við þeim verkefnum sem öðrum stofnunum eru falin með lögum. Þá tekur stofnunin, eins og síðar verður fjallað um, ekki ákvarðanir í einstökum málum og tekur því ekki einstaklingsmál til meðferðar.
Breytingartillögur nefndarinnar.
Erindi sem berast stofnuninni (2. gr.).
Nefndin fjallaði um málsmeðferð Mannréttindastofnunar Íslands vegna erinda sem stofnuninni berast. Í 3. mgr. 2. gr. frumvarpsins segir að Mannréttindastofnun Íslands sé ekki úrskurðaraðili á sviði mannréttinda og að ákvarðanir stjórnvalda eða einkaaðila verði ekki kærðar til stofnunarinnar. Í greinargerð með frumvarpinu segir að ekki sé gert ráð fyrir að stofnunin taki til meðferðar kvartanir frá einstaklingum eða öðrum aðilum enda myndi umfang slíks hlutverks að öllum líkindum verða slíkt að stofnunin hefði takmarkaðan tíma til að sinna öðrum verkefnum. Mannréttindastofnun Íslands á hins vegar að leiðbeina einstaklingum um hvert þeir geta leitað ef á þeim er brotið, svo sem um kæru- og kvörtunarleiðir sem standa til boða hjá stjórnvöldum, dómstólum, umboðsmanni Alþingis eða alþjóðlegum stofnunum. Því er ljóst að Mannréttindastofnun á ekki að taka til umfjöllunar mál einstakra aðila. Að mati nefndarinnar er orðalag 3. mgr. 2. gr. frumvarpsins þó ekki nægilega afdráttarlaust um það enda má sem dæmi nefna að umboðsmaður Alþingis er ekki úrskurðaraðili eða aðili sem tekur á móti kærum vegna ákvarðana stjórnvalda. Umboðsmaður Alþingis getur tekið mál til meðferðar eftir kvörtun. Er honum m.a. heimilt að ljúka slíkum málum með áliti sínu eða tilmælum. Nefndin leggur því til orðalagsbreytingu þess efnis að Mannréttindastofnun Íslands taki ekki ákvarðanir í einstökum málum og taki þar með ekki einstaklingsmál til meðferðar, enda er það í höndum þar til bærra stjórnvalda. Hins vegar er mikilvægt að árétta að stofnuninni ber að veita öllum sem til hennar leita ráðgjöf, leiðbeiningar og aðstoð.
Stjórn og framkvæmdastjóri Mannréttindastofnunar Íslands (3. og 4. gr.).
Samkvæmt frumvarpinu mun Alþingi kjósa fimm einstaklinga í stjórn Mannréttindastofnunar Íslands og jafn marga til vara til fjögurra ára í senn, sbr. 1. mgr. 3. gr. Í 3. mgr. sömu greinar segir að þau sem sæti eiga í stjórn skuli hafa sérþekkingu á mismunandi fagsviðum sem tengjast starfsemi stofnunarinnar, þar á meðal a.m.k. einn lögfræðingur með sérþekkingu á mannréttindum. Til að styrkja faglega þekkingu stjórnar leggur nefndin til að í stað eins skuli a.m.k. þrír lögfræðingar með sérþekkingu á mannréttindum sitja í stjórn.
Þá leggur nefndin jafnframt til að mælt verði fyrir um það sérstaklega að framkvæmdastjóri taki ákvarðanir fyrir hönd stofnunarinnar en skuli bera meiri háttar efnislegar eða stefnumótandi ákvarðanir undir stjórn. Gert er ráð fyrir því að stjórn Mannréttindastofnunar setji verklagsreglur um hvaða ákvarðanir geti talist falla undir það að vera meiri háttar efnislegar og stefnumótandi ákvarðanir.
Aðild að ráðgjafarnefnd (6. gr.).
Með 6. gr. frumvarpsins er lagt til að stjórn Mannréttindastofnunar Íslands skipi ráðgjafarnefnd hagsmunaaðila til þriggja ára í senn sem styðji við stofnunina í störfum sínum. Í ráðgjafarnefndina skuli skipa a.m.k. tólf einstaklinga sem endurspegli sem fjölbreyttastan hóp hagsmunaaðila. Ráðgjafarnefndin mun gegna mikilvægu hlutverki við að veita stofnuninni upplýsingar um stöðu mannréttinda og ráðleggja henni á hvaða málefni eða málefnasvið sé rétt að leggja áherslu á hverjum tíma.
Í 2. mgr. ákvæðisins er mælt fyrir um að stjórn Mannréttindastofnunar Íslands auglýsi opinberlega eftir fulltrúum í ráðgjafarnefndina. Þó er gert ráð fyrir að átta hagsmunaaðilar muni ávallt eiga sæti í nefndinni. Í umsögn Geðhjálpar er óskað eftir því að samtökin eigi jafnframt fastan fulltrúa í ráðgjafarnefndinni. Landssamtökin Þroskahjálp og ÖBÍ réttindasamtök tóku undir þá ósk í umsögnum sínum. Fyrir nefndinni kom fram að landssamtökin Geðhjálp væru hagsmunasamtök hóps sem væri mjög berskjaldaður fyrir margs konar mismunun og alvarlegum mannréttindabrotum. Þá byggju samtökin yfir mikilli þekkingu sem myndi gagnast ráðgjafarnefndinni við að rækja hlutverk sitt. Nefndin tekur undir með þessum sjónarmiðum og leggur til breytingu þess efnis.
Nefndin fjallaði jafnframt um hvort umboðsmaður Alþingis ætti að eiga sæti í ráðgjafarnefndinni. Umboðsmaður Alþingis hefur eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga, en á grundvelli þess hefur hann afskipti af ýmsum málum sem varða réttindi borgaranna gagnvart stjórnvöldum. Auk þess sinnir hann eftirliti með aðstæðum frelsissviptra einstaklinga á grundvelli valfrjálsrar bókunar við samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu (OPCAT). Í ljósi þess leggur nefndin til að umboðsmaður Alþingis eigi sæti í ráðgjafarnefndinni. Með því er fyrst og fremst stefnt að því að upplýsingamiðlun milli þessara stofnana Alþingis verði greið auk þess sem seta fulltrúa umboðsmanns í nefndinni er til þess fallin að styrkja samtal um verkefni stofnananna. Er það einnig í samræmi við nýlegar breytingar sem gerðar voru á lögum um norsku mannréttindastofnunina sem fólu m.a. í sér að umboði þingsins (n. Sivilombudet) var tryggt fast sæti í ráðgjafarnefnd stofnunarinnar. Eðli máls samkvæmt takmarkast aðkoma embættis umboðsmanns Alþingis að störfum ráðgjafarnefndarinnar við hlutverk embættisins.
Réttindagæslumenn fatlaðs fólks (1. tölul. 12. gr.).
Með frumvarpinu eru gerðar nokkrar breytingar varðandi réttindagæslumenn fatlaðs fólks. Lagt er til að réttindagæslumenn fatlaðs fólks heyri undir Mannréttindastofnun Íslands en um réttindagæslu fyrir fatlað fólk gilda samnefnd lög nr. 88/2011. Þá er einnig lögð til sú breyting að í stað réttindagæslumanna verði það hlutverk sýslumanns að staðfesta val á persónulegum talsmönnum, halda skrá um þá og hafa eftirlit með störfum þeirra. Með frumvarpinu eru þó ekki lagðar til breytingar á því hlutverki réttindagæslumanna að aðstoða fatlaða einstaklinga við að afturkalla umboð persónulegra talsmanna sé óskað eftir því, auk þess sem fatlaðir einstaklingar geta haft samráð við réttindagæslumann um val á persónulegum talsmanni.
Við umfjöllun málsins fjallaði nefndin um þá tillögu að færa réttindagæslumenn fatlaðs fólks undir stofnun á vegum Alþingis. Réttindagæslumenn taka ekki ákvarðanir sem varða réttindi og skyldur einstaklinga heldur er það hlutverk þeirra að hafa eftirlit með réttindum fatlaðs fólks. Réttindagæslumenn sinna þannig almennt ekki hefðbundnum verkefnum framkvæmdarvaldsins eða verkefnum sem fela í sér ábyrgð á framkvæmd réttinda, heldur ber þeim að vera fötluðu fólki innan handar og veita leiðbeiningar og aðstoð. Þeir fara auk þess með mannréttindaeftirlit og eiga að bregðast við ef þeir telja brotið á réttindum fatlaðs fólks. Að mati nefndarinnar fellur þetta hlutverk réttindagæslumanna fatlaðs fólks að verkefnum Mannréttindastofnunar Íslands, sem mun m.a. hafa það hlutverk að veita einstaklingum sem til hennar leita leiðbeiningar, ráðgjöf og aðstoð á sviði mannréttinda. Mikilvægt er þó að hafa í huga að í slíkri aðstoð felst ekki að ganga erinda eða aðstoða við rekstur mála. Þá getur þekking og reynsla réttindagæslumanna verið mikilvægur þáttur í eftirliti stofnunarinnar með framkvæmd samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Að mati nefndarinnar eru þó nokkur verkefni réttindagæslumanna sem færi betur á að væru á hendi framkvæmdarvaldsins fremur en stofnunar á vegum Alþingis. Til að skilgreina betur hlutverk réttindagæslumanna og til að leggja áherslu á eftirlitshlutverk þeirra leggur nefndin til nokkrar breytingar á verkefnum réttindagæslumanna. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að sýslumanni verði falið það hlutverk að staðfesta val á persónulegum talsmönnum og hafa eftirlit með þeim. Í ljósi þess leggur nefndin m.a. til þá breytingu að fatlaður einstaklingur skuli hafa samráð við sýslumann en ekki réttindagæslumann um val á persónulegum talsmanni og að það verði hlutverk sýslumanns að aðstoða fatlaðan einstakling við að afturkalla umboð persónulegs talsmanns, óski hann eftir því. Framangreind hlutverk falla betur að hlutverki sýslumanns en réttindagæslumanna þar sem sýslumaður mun sinna eftirliti með persónulegum talsmönnum að öðru leyti, auk þess sem sýslumaður er yfirlögráðandi sem hefur eftirlit með lögráðamönnum og ráðsmönnum samkvæmt lögræðislögum, nr. 71/1997. Þá eru lagðar til nokkrar breytingar til að samræma efni frumvarpsins við frumvarp til laga um breytingar á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, sbr. þskj. 1367 við 922. mál, en því frumvarpi er m.a. ætlað að styðja við stofnun Mannréttindastofnunar Íslands.
Í frumvarpinu er sem fyrr segir lagt til að öll starfsemi réttindagæslu fyrir fatlað fólk færist frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu til Mannréttindastofnunar Íslands annars vegar og sýslumanns hins vegar. Líkt og að framan greinir er það mat nefndarinnar að fleiri verkefni en lagt er til í frumvarpinu falli betur að starfsemi sýslumanns en stofnunar á vegum Alþingis og því eru lagðar til tilteknar breytingar á hlutverki réttindagæslumanna ásamt því sem lögð er aukin áhersla á eftirlitshlutverk réttindagæslumanna. Þá verður jafnframt að hafa í huga að með frumvarpinu færist starfsemi frá framkvæmdarvaldinu til stofnunar á vegum löggjafarvaldsins. Framangreindar breytingar leiða til þess að endurskipuleggja þarf starfsemi réttindagæslu fyrir fatlað fólk að fullu. Nefndin leggur því til að störf réttindagæslumanna og annars starfsfólks réttindagæslu fyrir fatlað fólk sem er með ráðningarsamband við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið verði lögð niður frá 1. janúar 2025. Stefnt verði þó að því að auglýsa störf hjá nýrri stofnun og sýslumanni fyrir þann tíma, sbr. umfjöllun um nýtt ákvæði til bráðabirgða.
Gildistaka og undirbúningur að stofnun Mannréttindastofnunar Íslands.
Með frumvarpinu var lagt til að lögin myndu öðlast gildi 1. janúar 2024. Þar sem þinglegri meðferð málsins var ekki lokið á þeim tíma leggur nefndin til að lögin öðlist gildi 1. janúar 2025. Einnig er ljóst að tilkoma nýrrar stofnunar á vegum Alþingis kallar á mikinn og vandaðan undirbúning. Leggur nefndin því til að bætt verði við nýju ákvæði til bráðabirgða þess efnis að hefja skuli undirbúning að stofnun Mannréttindastofnunar Íslands við samþykkt laganna. Verður þá hægt að undirbúa og ganga til kosningar nýrrar stjórnar. Þá er gert ráð fyrir að stjórn hefji undirbúning að skipun framkvæmdastjóra og að því að finna stofnuninni hentugt húsnæði. Þá þarf að undirbúa ráðningar starfsfólks en stefnt skal að því að auglýsa störf hjá nýrri stofnun og sýslumanni fyrir gildistöku laganna.
Að framangreindu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem lagðar eru til á sérstöku þingskjali.
Ágúst Bjarni Garðarsson, Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en rita undir álitið með heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Alþingi, 7. júní 2024.
| Þórunn Sveinbjarnardóttir, form. | Eva Dögg Davíðsdóttir, frsm. | Sigmar Guðmundsson. |
| Ágúst Bjarni Garðarsson. | Berglind Ósk Guðmundsdóttir. | Elín Íris Fanndal. |
| Halla Signý Kristjánsdóttir. | Hildur Sverrisdóttir. | Þórhildur Sunna Ævarsdóttir. |