Ferill 239. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1829  —  239. mál.

2. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til laga um Mannréttindastofnun Íslands.

Frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.


     1.      Við 2. gr.
                  a.      Í stað orðanna „stjórnvalda og löggjafans“ í c-lið 2. mgr. komi: Alþingis og stjórnvalda.
                  b.      3. mgr. orðist svo:
                     Mannréttindastofnun Íslands tekur ekki ákvarðanir í einstökum málum.
     2.      Í stað orðanna „einn lögfræðingur“ í 3. mgr. 3. gr. komi: þrír lögfræðingar.
     3.      Við 2. mgr. 4. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Framkvæmdastjóri tekur ákvarðanir fyrir hönd stofnunarinnar en skal bera meiri háttar efnislegar eða stefnumótandi ákvarðanir undir stjórn.
     4.      2. mgr. 6. gr. orðist svo:
                  Stjórn Mannréttindastofnunar Íslands skal auglýsa opinberlega eftir fulltrúum í ráðgjafarnefndina. Fulltrúar eftirfarandi aðila skulu þó ávallt eiga sæti í nefndinni:
                  a.      Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands.
                  b.      Rauða krossins á Íslandi.
                  c.      Íslandsdeildar Amnesty International.
                  d.      Barnaheilla – Save the Children á Íslandi.
                  e.      Kvenréttindafélags Íslands.
                  f.      Landssamtakanna Þroskahjálpar.
                  g.      Samtakanna ´78.
                  h.      ÖBÍ réttindasamtaka.
                  i.      Geðhjálpar.
                  j.      Umboðsmanns Alþingis.
     5.      Orðin „þar á meðal sem þjónustuaðili á viðkomandi þjónustusvæði“ í 2. mgr. 9. gr. falli brott.
     6.      11. gr. orðist svo:
                  Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2025. Ákvæði til bráðabirgða I og III öðlast þó þegar gildi.
     7.      Við 12. gr.
                  a.      1. tölul. orðist svo: Lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, nr. 88/2011:
                      a.      2. gr. laganna orðast svo:
                             Ráðherra skal hafa yfirstjórn með réttindum fatlaðs fólks.
                      b.      Orðin „skal hafa yfirumsjón með réttindum fatlaðs fólks og“ í 1. mgr. 3. gr. laganna falla brott.
                      c.      A-liður 2. mgr. 3. gr. laganna fellur brott.
                      d.      1. mgr. 4. gr. laganna orðast svo:
                             Réttindagæslumenn fatlaðs fólks starfa innan Mannréttindastofnunar Íslands. Um ráðningu og hæfisskilyrði þeirra fer eftir lögum um Mannréttindastofnun Íslands.
                      e.      2.–4. mgr. 4. gr. laganna falla brott.
                      f.      1. mgr. 5. gr. laganna orðast svo:
                             Réttindagæslumenn skulu fylgjast með mannréttindum fatlaðs fólks og veita því viðeigandi stuðning við réttindagæslu hvers konar hvort sem það er varðandi þjónustu sem það á rétt á eða varðandi önnur réttindi.
                      g.      Í stað orðanna „Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála“ í 3. mgr. 6. gr. laganna kemur: viðeigandi aðila.
                      h.      4. mgr. 6. gr. laganna fellur brott.
                      i.      1. mgr. 7. gr. laganna orðast svo:
                             Fatlaður einstaklingur sem á vegna fötlunar sinnar erfitt með að gæta hagsmuna sinna skal eiga rétt á persónulegum talsmanni. Fatlaður einstaklingur velur sér talsmann í samráði við sýslumann. Eftir atvikum skal hafa samráð við nánustu aðstandendur, svo sem ættingja, vini eða þjónustuveitendur, leiki vafi á vilja hins fatlaða einstaklings í þeim efnum. Hinn fatlaði einstaklingur og persónulegur talsmaður hans skulu undirrita samkomulag um aðstoðina sem mælir fyrir um heimildir talsmanns skv. 1. mgr. 9. gr. Samkomulagið skal ekki fara gegn lögum og/eða góðu siðferði. Geti hinn fatlaði einstaklingur ekki undirritað samkomulagið er heimilt að víkja frá skilyrði um undirritun en þá skal samkomulag gert að sýslumanni viðstöddum og eftir reglum sem nánar skal kveðið á um í reglugerð. Samkomulagið skal borið undir sýslumann til staðfestingar á vali á talsmanni og efni samkomulagsins. Sýslumaður skal varðveita samkomulagið.
                      j.      1. mgr. 8. gr. laganna orðast svo:
                             Sýslumaður skal hafa eftirlit með framkvæmd samkomulags milli fatlaðs einstaklings og persónulegs talsmanns og halda skrá um persónulega talsmenn.
                      k.      2. mgr. 8. gr. laganna orðast svo:
                             Hinn fatlaði einstaklingur getur hvenær sem er afturkallað umboð persónulegs talsmanns og skal sýslumaður aðstoða hann við það óski hann eftir því. Sýslumaður skal afturkalla umboð persónulegs talsmanns komi fram ósk þess efnis frá öðrum hvorum eða báðum aðilum samkomulagsins. Jafnframt getur sýslumaður afturkallað slíkt umboð ef beiðni berst þar um frá lögráðamanni. Sýslumaður getur einnig afturkallað umboð persónulegs talsmanns telji hann viðkomandi ekki gegna skyldum sínum gagnvart hinum fatlaða einstaklingi eða uppfylli hann ekki lengur skilyrði skv. 2. mgr. 7. gr.
                      l.      Við 2. mgr. 9. gr. laganna bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Ráðherra skal í reglugerð kveða á um skrá sem sýslumanni ber að halda um persónulega talsmenn og framkvæmd sýslumanns við staðfestingu samkomulags og eftirlit með samkomulaginu. Ráðherra er í reglugerð heimilt, að höfðu samráði við þann ráðherra sem fer með málefni sýslumanna, að ákveða að þau verkefni sem sýslumönnum eru falin í lögum þessum verði á hendi eins sýslumanns.
                      m.      Í stað orðsins „réttindagæslumanni“ í 1. mgr. 16. gr. laganna kemur: þjónustuaðila.
                      n.      Orðin „réttindagæslumanni á viðkomandi svæði og“ í 1. mgr. 18. gr. laganna falla brott.
                      o.      20. gr. laganna orðast svo:
                             Á persónulegum talsmönnum fatlaðs fólks hvílir þagnarskylda skv. X. kafla stjórnsýslulaga. Um þagnarskyldu réttindagæslumanna fatlaðs fólks gildir 10. gr. laga um Mannréttindastofnun Íslands.
                  b.      Í stað orðanna „Mannréttindastofnun Íslands“ í b-lið 2. tölul. komi: stjórn eða framkvæmdastjóri Mannréttindastofnunar Íslands.
     8.      Í stað tilvísunarinnar „2. mgr. 4. gr.“ í ákvæði til bráðabirgða I komi: 3. mgr. 3. gr.
     9.      Ákvæði til bráðabirgða II orðist svo:
                  Störf réttindagæslumanna og annars starfsfólks réttindagæslu fyrir fatlað fólk sem eru með ráðningarsamband við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið eru lögð niður frá 1. janúar 2025. Um réttindi og skyldur starfsfólks fer samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.
     10.      Við bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
                  Við samþykkt laga þessara skal hefja undirbúning að stofnun Mannréttindastofnunar Íslands, þar á meðal með kosningu fimm einstaklinga í stjórn.