Ferill 493. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1841 — 493. mál.
Svar
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Þórunni Sveinbjarnardóttur um hnattræna stöðuúttekt.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hafa stjórnvöld lokið við stöðuúttekt (e. global stocktake) sem þeim er skylt að gera grein fyrir á næstu ráðstefnu aðildarríkja loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (COP28)?
Eitt meginstjórntæki Parísarsamningsins er hnattræn athugun á stöðu (e. global stocktake) til að meta sameiginlega framvindu ríkja við að ná markmiði Parísarsamningsins og langtímamarkmiðum hans. Ekki er fjallað sérstaklega um framvindu í einstökum ríkjum. Stöðuúttektina skal gera á yfirgripsmikinn og styðjandi hátt, að teknu tilliti til minnkunar á losun, aðlögunar og framkvæmdar- og stuðningsmáta og í ljósi sanngirni og bestu fyrirliggjandi vísinda (sbr. 14. gr. samningsins).
Samkvæmt Parísarsamningnum á stöðutakan að fara fram á fimm ára fresti, í fyrsta sinn árið 2023, að undangengnu tveggja ára undirbúningsferli.
Niðurstöðurnar eiga að nýtast við ákvarðanir við uppfærslu á landsákvörðuðum framlögum ríkja, efla aðgerðir og stuðning og að styrkja alþjóðlega samvinnu.
Árið 2018 skilgreindu aðildarríkin frekar hvernig skipulagi og formi stöðuúttektarinnar yrði háttað (Ákvörðun 19/CMA.1). Þar er lagt upp með að taka stöðu á framvindu Parísarsamningsins á þremur sviðum: mildun loftslagsbreytinga (e. mitigation), aðlögun að loftslagsbreytingum (e. adaptation) og framkvæmdarmáta (e. means of implementation).
Ferli stöðuúttektarinnar var sett af stað á 26. aðildarríkjaþingi loftslagssamningsins í Glasgow (COP 26) í árslok 2021. Í ferlinu hefur verið lögð rík áhersla á að taka til greina alla viðeigandi skýrslugjöf frá aðildarríkjum og öðrum viðeigandi aðilum. Á árunum 2022–2023 voru enn fremur haldnar þrjár lotur af tæknilegum umræðum sem fylgt hefur ítarleg skýrslugjöf sem lögð var til grundvallar bókunum og uppskeru-fundum (e. high-level events) á 28. aðildarríkjaþingi loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (COP 28) í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í nóvember–desember 2023.
Aðilar að Parísarsamningnum skulu setja fram landsákvörðuð framlög (e. NDC) þar sem gerð er grein fyrir markmiðum viðkomandi ríkis í loftslagsmálum og hvernig stefnt sé að því að ná þeim markmiðum.
Samkvæmt Parísarsamningnum skulu aðilar uppfæra sín landsákvörðuðu markmið eigi sjaldnar en á 5 ára fresti, en þó er heimilt að uppfæra hvenær sem er með það fyrir augum að hækka metnaðarstig í samræmi við leiðbeiningar þar um.
Í 4. gr. Parísarsamningsins segir að þróuð ríki skuli halda áfram að leiða það verkefni að draga úr losun í öllu hagkerfinu. Þróunarríki eiga á sama tíma að halda áfram að reyna að draga úr losun og eru hvött til þess með tímanum að taka upp markmið sem ná yfir allt hagkerfið í ljósi ólíkra landsaðstæðna.
Ísland tilkynnti um fyrsta landsákvarðaða framlag sitt til loftslagssamningsins í september 2016, þar sem sett voru fram markmið um 40% samdrátt í losun til ársins 2030 m.v. losun árið 1990, í samvinnu með ríkjum Evrópusambandsins og Noregi.
Tilkynnt var um uppfærslu markmiðsins í febrúar 2021, þar sem tilkynnt var um að Ísland setji markmið um 55% heildarsamdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda til ársins 2030, í samvinnu með Evrópusambandinu og Noregi.
Ríki skulu uppfæra sín markmið næst eigi síðar en 2025, og eiga þá m.a. að horfa til niðurstaðna úr hnattrænu stöðutökunni.