Ferill 1122. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1843  —  1122. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um skipulagsfulltrúa.


     1.      Hversu mörg sveitarfélög útvista verkefnum skipulagsfulltrúa til einstaklinga sem ekki eru starfsmenn sveitarfélagsins?
    Ráðuneytið óskaði eftir upplýsingum frá Skipulagsstofnun til að svara spurningunni. Samkvæmt upplýsingum frá stofnuninni nýta tólf sveitarfélög þrjá skipulagsfulltrúa:
     *      Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Bláskógabyggð, Hrunamannahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur og Ásahreppur nýta sér þjónustu umhverfis- og skipulagssviðs uppsveita Árnessýslu.
     *      Grýtubakkahreppur, Svalbarðsstrandarhreppur, Eyjafjarðarsveit og Hörgársveit eru með sameiginlegan skipulagsfulltrúa.
     *      Stykkishólmsbær (Stykkishólmur og Helgafellssveit) og Eyja- og Miklaholtshreppur nýta sameiginlegan skipulagsfulltrúa.
    Þá nýta tólf sveitarfélög sér þjónustu verkfræðistofa til að sinna hlutverki skipulagsfulltrúa:
     *      Sveitarfélagið Hornafjörður nýtir sér þjónustu EFLU verkfræðistofu.
     *      Þingeyjarsveit nýtir sér þjónustu EFLU 1. janúar – 31. maí 2024 vegna fæðingarorlofs.
     *      Langanesbyggð nýtir sér þjónustu Teiknistofu Norðurlands um skipulagsráðgjöf.
     *      Dalabyggð, Reykhólahreppur, Strandabyggð, Kaldrananeshreppur og Árneshreppur nýta sér þjónustu VSÓ verkfræðistofu.
     *      Kjósarhreppur, Skaftárhreppur, Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð nýta sér þjónustu Landmótunar.

     2.      Hversu oft hefur ráðherra veitt tímabundna undanþágu frá kröfum um menntun og reynslu skv. 7. gr. skipulagslaga, nr. 123/2010? Svar óskast sundurliðað eftir árum frá gildistöku laganna.
    Innviðaráðuneytið var stofnað 1. janúar 2022 en frá stofnun þess hefur ráðherra veitt eina tímabundna undanþágu frá kröfum um menntun og reynslu skv. 7. gr. skipulagslaga, nr. 123/2010.

     3.      Hvaða hæfisskilyrði þurfa skipulagsfulltrúar sveitarfélaga annars staðar á Norðurlöndum að uppfylla?
    Ráðuneytið óskaði eftir upplýsingum frá Skipulagsstofnun sem aflaði upplýsinga frá viðeigandi ráðuneytum og stofnunum á Norðurlöndunum.
    Samkvæmt upplýsingum frá finnska umhverfisráðuneytinu þarf skipulagsstjóri (ígildi skipulagsfulltrúa á Íslandi) að hafa meistaragráðu sem hæfir starfinu og fullnægjandi starfsreynslu til að gegna starfinu, sbr. tilskipun sem sett er á grundvelli finnskra skipulags- og byggingarlaga. Sveitarfélag með fleiri íbúa en 6.000 þarf að hafa slíkan starfsmann.
    Samkvæmt upplýsingum frá dönsku stofnuninni sem fer með málaflokkinn (Plan- og landdistriktsstyrelsen) eru engin ákvæði um hæfiskröfur skipulagsstjóra (skipulagsfulltrúa) í dönsku skipulagslögunum. Viðkomandi sveitarfélag setur kröfurnar en venjulega er gerð krafa um meistaragráðu á viðeigandi sérfræðisviði og viðeigandi starfsreynslu.
    Samkvæmt upplýsingum frá norska ráðuneytinu sem fer með málaflokkinn (Kommunal- og distriksdepartementet) er ekki að finna ákvæði um hæfiskröfur skipulagsstjóra (skipulagsfulltrúa) í norsku skipulags- og byggingarlögunum. Hins vegar er gerð krafa í reglugerð um að slíkur einstaklingur þurfi að vera sérfræðingur eða hafi sérfræðiþekkingu.
    Samkvæmt sænsku stofnuninni sem fer með málaflokkinn (Boverket) er ekki að finna ákvæði um hæfiskröfur skipulagsstjóra (skipulagsfulltrúa) í sænskum lögum. Það kemur í hlut hvers sveitarfélags, sem hefur slíkan starfsmann, að skilgreina hæfiskröfur. Þeir sem gegna þessu starfi eru flestir arkitektar á sviði skipulags, arkitektar á sviði landslags og arkitektar á sviði húsnæðis.

     4.      Telur ráðherra koma til álita að víkka út þau hæfisskilyrði sem tilgreind eru í 5. mgr. 7. gr. skipulagslaga þannig að einstaklingar með fjölbreyttari menntun og reynslu geti sinnt störfum skipulagsfulltrúa?
    Í einni aðgerðum nýsamþykktrar landsskipulagsstefnu er kveðið á um að unnið verði að heildarendurskoðun á skipulagslögum og skipulagsreglugerð. Fyrirhugað er að sú vinna fari fram á tímabilinu 2026–2027. Ekki hefur verið tekin afstaða til þess hvort til álita komi að víkka út umrædd hæfisskilyrði að svo stöddu.