Ferill 684. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1850 — 684. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Birgi Þórarinssyni um starfsemi Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands.
1. Hver voru fjárframlög ríkisins til Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands sl. fimm ár?
| Heyrnar- og talmeinastöð | 2019 | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 |
| Rekstrargjöld | -628 | -576 | -591 | -541 | -586 |
| Fjárlög | 178 | 182 | 180 | 188 | 208 |
| Fjárheimild | 186 | 187 | 306 | 148 | 315 |
| Aðrar tekjur | 400 | 311 | 401 | 324 | 314 |
| Fjármagnstekjur og gjöld | 0 | -6 | 5 | -2 | |
| Afkoma ársins | -42 | -84 | 121 | -71 | 43 |
Heimild: Ríkisreikningur (samandreginn rekstur ríkisaðila) og drög að ársreikningi 2023.
Fjárframlög hvers árs koma fram í fyrrgreindri töflu undir liðnum Fjárheimild. Hærri framlög árin 2021 og 2023 skýrast að mestu af einskiptisframlögum í fjáraukalögum sem eru tilkomin vegna rekstrarvanda stofnunarinnar. Framlög á fjáraukalögum ársins 2021 námu 113 millj. kr. og 100 millj.kr. árið 2023.
2. Hverjar voru árlegar sértekjur Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands sl. fimm ár og hvaðan komu þær?
Sértekjur koma fram í fyrrgreindri töflu undir liðnum Aðrar tekjur. Fyrst og fremst er um að ræða sölutekjur. Að frádregnum vörukaupum og beinum kostnaði skila aðrar tekjur um 1/ 3– 1/ 2 af þeirri fjárhæð í hreinar tekjur til stofnunarinnar. Sala heyrnartækja og annarra hjálpartækja vegna heyrnarskerðingar myndar meginhluta sértekna stofnunarinnar.
3. Hversu hátt var árlegt hlutfall sértekna stofnunarinnar sl. fimm ár af heildarrekstrarkostnaði?
Miðað við tölur ríkisreiknings sem fram koma í fyrrgreindri töflu eru aðrar sértekjur á bilinu 54–68% af heildarrekstrarkostnaði sem kemur fram undir liðnum Rekstrargjöld.
4. Hversu margir eru á biðlistum eftir þjónustu frá stofnuninni?
Alls eru 2.028 einstaklingar skráðir á biðlista eftir heyrnarþjónustu.
5. Hversu lengi þurfa þeir sem eru á biðlistum að bíða að meðaltali?
Þjónustu Heyrnar- og talmeinastöðvar er forgangsraðað. Samkvæmt upplýsingum frá Heyrnar- og talmeinastöð í mars sl. voru 2.028 einstaklingar skráðir á biðlista eftir heyrnarþjónustu. Biðtíminn er þó mismunandi eftir tegundum þjónustu. Móttöku á talmeinasviði var hætt haustið 2022.
Upplýsingar um biðlista og biðtíma frá 15. mars 2024 koma fram í eftirfarandi töflu:
| Þjónusta | Fjöldi á biðlista | Biðtími í mánuðum |
| Barnamælingar (0–3 ára) | 134 | 3 |
| Börn (eldri en 4 ára) | 75 | 3 |
| Fyrstu komu mælingar, fullorðnir | 380 | 7 |
| Mæling og heyrnartæki, fullorðnir | 1.155 | 24 |
| Aðstoð vegna heyrnartækja | 177 | 1–2 |
| Val á tæki (mælingu og ráðgjöf lokið) | 107 | 4 |
| Heyrnarsvið alls | 2.028 |
6. Til hvaða aðgerða hyggst ráðherra grípa til að stofnuninni verði gert kleift að vinna á löngum biðlistum eftir þjónustu fyrir heyrnarskert fólk um land allt?
Farið var í átak í barnamælingum fyrir 0–3 ára og með því styttist biðlistinn úr fimm mánuðum í þrjá mánuði frá nóvember sl. fram í miðjan mars á þessu ári og á sama tíma fór biðtími eftir vali á tækjum úr fimm mánuðum í um fjóra mánuði.
Hvað mönnun varðar hefur ráðuneytið skoðað ýmsa möguleika og m.a. beitt sér fyrir auknu framboði menntunar í heyrnartengdum fræðum. Í febrúar sl. var undirritaður tímamótasamningur milli Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands, Háskólans í Örebro í Svíþjóð og Háskólans á Akureyri sem gerir háskólanám í heyrnarfræði nú mögulegt hér á landi í fyrsta sinn. Mun hluti námsins fara fram hér á landi og mun Heyrnar- og talmeinastöð sinna allri verklegri þjálfun nemenda. Ráðuneytið vinnur einnig að því að koma af stað námi í heyrnartækni í samstarfi við Fjölbrautarskólann í Ármúla, Heyrnar- og talmeinastöð og Syddansk Erhvervsskole í Óðinsvéum í Danmörku, en ein forsenda námsins er að Heyrnar- og talmeinastöðin sinni verklegri kennslu. Landsráð um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu hefur einnig skoðað möguleikann á því að koma á fót námi í heyrnarfræði hér á landi og vinnur ráðuneytið að skýrslu um skort á heyrnarfræðingum á Íslandi.
Hvað varðar fjármögnun stofnunarinnar var á árunum 2017–2021 uppsafnaður halli af rekstrinum um 150 millj. kr. Í fjáraukalögum árin 2021 og 2023 voru millifærð alls 213 millj. kr. einskiptisframlög til stofnunarinnar sem leystu vanda hennar að hluta. Framlög á fjáraukalögum ársins 2021 námu 113 millj. kr. og 100 millj. kr. árið 2023. Ráðuneytið hefur því eins og sjá má styrkt stofnunina árlega af safnliðum og úr varasjóðum. Árin 2020–2024 hefur stofnunin fengið aðhaldskröfur sem nema alls um 14 millj. kr. Möguleikar til frekari hagræðingar og skýrari afmörkunar starfseminnar eru jafnframt til skoðunar. Ráðuneytið hefur haft til skoðunar ýmsar hugmyndir um breytingar á rekstri stofnunarinnar undanfarin tvö ár, þ.m.t. sameiningu við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Þá hefur Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) leitað að nýju húsnæði fyrir stofnunina frá árinu 2019, bæði í eignasafni Ríkiseigna og á almennum markaði. Skoðað hefur verið að koma stofnuninni fyrir innan einnar af þremur heilsugæslum sem stefnt er að því að leita að nýju húsnæði fyrir á höfuðborgarsvæðinu og að í millitíðinni verði stofnunin tímabundið hýst í húsnæði í eignasafni ríkisins. Það sama má segja um starfsstöð stofnunarinnar á Akureyri sem hefur verið í húsnæði með heilsugæslustöð HSN. Eftir flutning heilsugæsluþjónustu HSN í nýtt húsnæði er unnið að því að leysa húsnæðismál heyrnarþjónustu þar, m.a. með það að sjónarmiði að hún rúmist með heilsugæsluþjónustu til framtíðar.
7. Hefur ráðherra í hyggju að leggja til breytingar á lögum og reglum um stofnunina og opinbera heyrnarþjónustu til að vinna á löngum biðlistum? Ef svo er, hvernig?
Já. Innan ráðuneytisins er til skoðunar hvort tilefni sé til að breyta lögum um stofnunina þannig að hlutverk hennar sé afmarkað með skýrari hætti og möguleikar á öflun sértekna auknir, en hlutverk stofnunarinnar er skilgreint með víðum hætti í lögum um Heyrnar- og talmeinastöð, nr. 42/2007.