Ferill 922. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1855  —  922. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingar á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, nr. 88/2011 (réttindagæslumenn og persónulegir talsmenn).

Frá meiri hluta velferðarnefndar.


    Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti frá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, Persónuvernd, Landssamtökunum Þroskahjálp, Mannréttindaskrifstofu Íslands, Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu og Halldór Gunnarsson.
    Nefndinni bárust sex umsagnir ásamt minnisblaði frá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti og eru gögnin aðgengileg á síðu málsins á vef Alþingis.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum nr. 88/2011, um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, sem miða að því að skýra ákvæði um réttindagæslumenn og persónulega talsmenn hvað varðar hlutverk þeirra og heimildir ásamt því að kveða nánar á um samninga og eftirlit með samningum um persónulega talsmenn. Þá er frumvarpinu m.a. ætlað að styðja við fyrirhugaðan flutning réttindagæslumanna til nýrrar Mannréttindastofnunar Íslands, sbr. þskj. 242, 239. mál.

Umfjöllun nefndarinnar.
Hlutverk réttindagæslumanna.
    Með e-lið 2. gr. frumvarpsins er lagt til að við 6. gr. laganna bætist tvær málsgreinar sem varða hlutverk réttindagæslumanna. Annars vegar um að réttindagæslumenn taki ekki til meðferðar ágreining milli einstaklinga og hins vegar um að réttindagæslumenn endurskoði ekki ákvarðanir stjórnvalda í einstökum málum. Er það til áréttingar á því að hlutverk réttindagæslunnar er að veita fötluðu fólki viðeigandi stuðning við gæslu réttinda sinna gagnvart stjórnvöldum og einkaaðilum. Í umsögnum eru gerðar athugasemdir við þessa breytingu.
    Í fyrsta lagi eru reifuð sjónarmið um að mikilvægt sé að ákvæðin séu ekki þannig orðuð að þau komi í veg fyrir að réttindagæslumenn geti brugðist við misbeitingu gagnvart réttindum fatlaðs einstaklings, til að mynda fjárdrætti. Í minnisblaði ráðuneytisins, dags. 31. maí 2024, kemur fram að með ákvæðinu sé lagt til að réttindagæslumaður taki ekki til meðferðar eða sinni persónulegum ágreiningsmálum milli einstaklinga, svo sem í deilum hins fatlaða einstaklings og fjölskyldumeðlima hans eða annarra einstaklinga. Ekki sé átt við mál þar sem grunur leikur á að brotið hafi verið gegn fötluðum einstaklingi. Þar sem grunur leikur á lögbroti, t.d. fjárdrætti, skal réttindagæslumaður leiðbeina viðkomandi um að leita til lögreglu.
    Í öðru lagi eru reifuð sjónarmið um að ekki sé þörf á að kveða sérstaklega á um að réttindagæslumaður endurskoði ekki ákvarðanir stjórnvalda í einstökum málum. Í fyrrnefndu minnisblaði ráðuneytisins er bent á að markmið ákvæðisins sé að taka sérstaklega fram að réttindagæslumaður endurskoði ekki ákvarðanir stjórnvalda og taka þar með af öll tvímæli um að réttindagæslumaður sé ekki úrskurðaraðili. Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið ráðuneytisins og leggur áherslu á að réttindagæslumenn taka ekki ákvarðanir sem varða réttindi og skyldur einstaklinga heldur er það hlutverk þeirra að hafa eftirlit með réttindum fatlaðs fólks og veita því viðeigandi stuðning eftir því sem við á.

Eftirlit sýslumanns með endurgreiðslu útlagðs kostnaðar (d-liður 3. gr.).
    Með d-lið 3. gr. frumvarpsins er lögð til viðbót við 7. gr. laganna sem kveður á um að útlagður kostnaður skuli að jafnaði greiddur af hinum fatlaða einstaklingi. Sýslumaður geti þó ákveðið að hann skuli greiddur úr ríkissjóði ef eignir hins fatlaða einstaklings eru litlar eða aðrar sérstakar ástæður mæla með því.
    Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er gert ráð fyrir því að um endurgreiðslur fari eftir nánari útfærslu í reglugerð, svo sem viðmiðum um hvað fáist endurgreitt. Er þá gert ráð fyrir að endurgreiðslur fari í gegnum sýslumann, hvort sem þær eru greiddar af hinum fatlaða einstaklingi eða sýslumanni. Meiri hlutinn leggur áherslu á að reglugerðin verði sett sem fyrst en eins og fram kemur í minnisblaði ráðuneytisins hefðu sýslumenn þá viðmið sem farið yrði eftir og gætu þannig gætt jafnræðis og viðhaft eftirlit með endurgreiðslunum.

Breytingartillögur.
Breytingar vegna frumvarps um Mannréttindastofnun Íslands.
    Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að eitt af markmiðum þess sé að styðja við frumvarp til laga um Mannréttindastofnun Íslands, sbr. þskj. 242, 239. mál. Það frumvarp hefur verið til umfjöllunar hjá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis og hefur það tekið nokkrum breytingum við þinglega meðferð. Meðal breytinga sem þar eru lagðar til eru breytingar sem lúta að réttindagæslumönnum fatlaðs fólks. Lagt er til að fleiri verkefni séu færð frá réttindagæslumönnum til sýslumanna svo að leggja megi áherslu á eftirlitshlutverk þeirra. Meðal annars er þar lagt til að fatlaður einstaklingur skuli hafa samráð við sýslumann en ekki réttindagæslumann um val á persónulegum talsmanni og að það verði hlutverk sýslumanns að aðstoða fatlaðan einstakling við að afturkalla umboð persónulegs talsmanns, óski hann eftir því. Með þessum breytingum er lögð áhersla á eftirlitshlutverk réttindagæslumanna en hlutverk þeirra er að vera fötluðu fólki innan handar og veita því leiðbeiningar og aðstoð. Þá leggja frumvörpin í sumum tilvikum til breytingar á sömu ákvæðum laga um réttindagæslu fyrir fatlað fólk. Má þar nefna ákvæði um réttindagæslumenn og um hlutverk sýslumanns gagnvart samkomulagi milli fatlaðs einstaklings og persónulegs talsmanns. Leggur meiri hlutinn því til nokkrar breytingar á frumvarpinu til að tryggja fullt samræmi milli þessara mála.

Leiðbeiningar um kæru- og kvörtunarleiðir (d-liður 2. gr.).
    Í umsögnum er vakin athygli á því að ákvæði d-liðar 2. gr. frumvarpsins, sem breytir 2. mgr. 6. gr. laganna, kunni að vera of þröngt. Í ákvæðinu er kveðið á um að réttindagæslumaður skuli leiðbeina og eftir atvikum aðstoða hinn fatlaða einstakling við að kæra málið til úrskurðarnefndar velferðarmála eða beina kvörtun til Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála. Í umsögnum kemur fram að ekki sé rétt að afmarka leiðbeiningarskyldu réttindagæslumanna við tvo aðila. Meiri hlutinn tekur undir þessa ábendingu og leggur því til að verði ekki orðið við ábendingum réttindagæslumanna skuli réttindagæslumaður eftir atvikum leiðbeina um innlendar og alþjóðlegar kvörtunar- og kæruleiðir og veita hinum fatlaða einstaklingi viðeigandi stuðning eftir þörfum.

Eftirlit með persónulegum talsmönnum og vinnsla persónuupplýsinga.
    Í umsögn Persónuverndar eru gerðar athugasemdir við ákvæði 5. gr. frumvarpsins um að persónulegur talsmaður skuli ár hvert gefa sýslumanni skýrslu um framkvæmd samkomulags skv. 1. mgr. 7. gr. og 9. gr. laganna. Að mati Persónuverndar þurfi upplýsingar um nauðsyn og tilgang vinnslu upplýsinga að vera ítarlegri. Að mati ráðuneytisins, sbr. fyrrnefnt minnisblað þess, uppfyllir ákvæðið þær kröfur sem persónuverndarlöggjöfin kveður á um. Tilgangur vinnslunnar sé skýr í ákvæðinu auk þess sem nánar er fjallað um hann í greinargerð með frumvarpinu. Vinnsla persónuupplýsinga fari eftir því í hverju samkomulag á milli fatlaðs einstaklings og persónulegs talsmanns felst. Í 9. gr. laganna er fjallað um hvers konar aðstoð persónulegur talsmaður getur veitt fötluðum einstaklingi á grundvelli samkomulags en það er ekki tæmandi talið og getur verið mismunandi í hverju tilviki fyrir sig. Er því vart raunhæft að tiltaka nákvæmlega alla þá þjónustu sem persónulegur talsmaður kann að aðstoða einstakling við að fá.
    Meiri hlutinn tekur undir það mat ráðuneytisins að það yrði erfiðleikum háð að tiltaka nákvæmlega alla þá þjónustu sem persónulegur talsmaður kann að aðstoða einstakling við að fá. Tilgangur ákvæðisins er að stuðla að aukinni réttarvernd fatlaðs fólks sem nýtur stuðnings við beitingu löghæfis síns. Í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er gerð krafa um að allar ráðstafanir varðandi nýtingu löghæfis feli í sér viðeigandi og árangursríka vernd til þess að koma í veg fyrir misnotkun í samræmi við alþjóðleg mannréttindalög. Meiri hlutinn leggur hins vegar áherslu á mikilvægi þess að miðlun persónuupplýsinga í tengslum við eftirlit sýslumanns uppfylli þær kröfur sem persónuverndarlöggjöfin gerir til hennar. Í viðbótarumsögn Persónuverndar, dags. 7. júní 2024, er lagt til að með því að bæta við ákvæðið málsgrein þess efnis að þjóðskjalavörður skuli taka ákvörðun um grisjun þeirra gagna sem verða til við eftirlit sýslumanns með persónulegum talsmönnum í samræmi við lög um opinber skjalasöfn sé unnt að tryggja þá hagsmuni sem hafðir voru í huga í fyrri umsögn Persónuverndar. Að höfðu samráði við félags- og vinnumarkaðsráðuneyti leggur meiri hlutinn því til breytingu þess efnis.

Aðstoð við ráðstöfun fjármuna vegna daglegra útgjalda (6. gr.).
    Með a-lið 6. gr. frumvarpsins er lagt til að í stað orðsins „reikningi“ í 2. málsl. 4. tölul. 1. mgr. 9. gr. laganna komi „reikningum“, en ákvæðið mælir fyrir um aðstoð persónulegra talsmanna við ráðstöfun fjármuna vegna daglegra útgjalda. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að breytingin sé lögð til svo að persónulegir talsmenn geti haft aðgang að fleiri en einum sérgreindum reikningi, en gildandi fyrirkomulag hafi sætt gagnrýni. Í umsögn Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu er gerð athugasemd við þessa tillögu frumvarpsins. Þar kemur fram að ákvæðið um ráðstöfun fjármuna vegna daglegra útgjalda sé ekki nægilega skýrt og verði ekki gert skýrara með því að fjölga reikningum sem ráðstafa má af. Í umsögninni segir að á grundvelli núgildandi ákvæðis hafi persónulegur talsmaður ekki verið talinn hafa heimild til þess að fá aðgang að netbanka hins fatlaða og hafi því hvorki sýn á stöðu reikningsins sem hann hefur heimild til að greiða út af né sýn á ógreidda reikninga sem hinn fatlaði þarf að standa skil á og eftir atvikum rafræn skjöl sem eru birt í netbanka. Í dag birtast flestir reikningar eingöngu í netbönkum en eru ekki lengur sendir með bréfpósti á lögheimili skuldara. Það sem hafi valdið töluverðum vanda í framkvæmd er að reikningar sem berast hinum fatlaða einstaklingi í netbanka, t.d. reikningar vegna húsnæðis, áskrifta og félagsgjalda, teljast samkvæmt framangreindu ekki falla undir dagleg útgjöld sem persónulegur talsmaður hefur heimild til að greiða. Þá hefur ákvæðið ekki verið talið ná til þess að heimila persónulegum talsmanni skoðunaraðgang að ógreiddum reikningum og eftir atvikum rafrænum skjölum sem berast hinum fatlaða einstaklingi í netbanka.
    Í samræmi við framangreint leggur meiri hlutinn til, í samráði við félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, breytingu á a-lið 6. gr. frumvarpsins til að koma til móts við þau sjónarmið sem reifuð eru í umsögn Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Með breytingunni verði gert skýrara hvaða heimildir persónulegur talsmaður getur fengið til þess að veita fötluðum einstaklingi aðstoð við daglega umsýslu með fjármálum. Bæði fatlað fólk og einstaklingar sem glíma við afleiðingar viðvarandi sjúkdóms eða slyss eiga tilkall til þess að njóta slíkrar aðstoðar. Markmið aðstoðar við fjárhagslega umsýslu er m.a. að stuðla að því að reikningar séu greiddir á réttum tíma og að persónulegur talsmaður geti hjálpað viðkomandi að hafa yfirsýn yfir dagleg fjármál.
    Meiri hlutinn leggur til að veita megi persónulegum talsmanni skoðunaraðgang og heimild til að greiða af sérgreindum bankareikningi ógreiddar kröfur á nafni þess einstaklings sem talsmaðurinn aðstoðar. Jafnframt megi persónulegur talsmaður stofna til greiðsluþjónustu vegna hins sérgreinda bankareiknings. Stýra megi aðgangi persónulegs talsmanns að heimabanka hins fatlaða einstaklings svo að talsmaður fái eingöngu aðgang að tilteknum upplýsingum um fjármál hins fatlaða einstaklings og heimildir. Þær kröfur sem hér eru til umfjöllunar eru þær sem almennt varða regluleg og tíðkanleg útgjöld. Til þessara útgjalda teljast einkum greiðsla á húsnæðiskostnaði, svo sem leigu, afborgunum lána, rafmagni, hita og fasteignagjöldum, og greiðsla á áskriftum, t.d. ýmis afþreying, áskrift í líkamsrækt og fleira af þeim toga. Auk bankareiknings, sem eftir atvikum er tengdur greiðsluþjónustu, geti heimild persónulegs talsmanns einnig náð til bankareiknings sem tengdur er debetkorti. Greiðslur af þessum reikningi nái til þeirra tilvika sem gildandi lög mæla fyrir um, þ.e. greiðslu aðgangsmiða að tónleikum eða kvikmyndahúsum, veitinga á kaffihúsi o.s.frv. Til þess að auðvelda rekjanleika greiðslna er lagt til að tilvísun til reiðufjár í gildandi lögum verði felld brott. Gert er ráð fyrir að unninn verði staðlaður viðauki sem gerður er við samkomulag skv. 1. mgr. 7. gr. laganna. Með því að viðaukinn er gerður sjálfstætt kemur ekki til þess að deila þurfi upplýsingum um aðra þætti samkomulagsins með fjármálastofnunum. Kemur það betur til móts við sjónarmið um persónuvernd en gildandi fyrirkomulag.

    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      1. gr. falli brott.
     2.      Við 2. gr.
                  a.      C-liður orðist svo: Í stað orðanna „aðstoðar réttindagæslumaður hinn fatlaða einstakling við að leita réttar síns miðað við atvik máls hverju sinni og“ í 6. málsl. 1. mgr. kemur: veitir réttindagæslumaður hinum fatlaða einstaklingi leiðbeiningar og aðstoðar hann eftir þörfum miðað við.
                  b.      D-liður orðist svo: 2. mgr. orðast svo:
                     Réttindagæslumaður getur, telji hann málið þess eðlis, komið ábendingum um úrbætur á framfæri við hlutaðeigandi aðila og gefið honum frest til að verða við ábendingunum. Verði ekki orðið við ábendingum réttindagæslumanns skal hann eftir atvikum leiðbeina hinum fatlaða einstaklingi um innlendar og alþjóðlegar kvörtunar- og kæruleiðir og veita viðeigandi stuðning eftir þörfum.
     3.      A-liður 3. gr. falli brott.
     4.      4. gr. falli brott.
     5.      Við 5. gr.
                  a.      Orðið „starfsmönnum“ í 2. efnismgr. falli brott.
                  b.      Á eftir 4. efnismgr. komi ný málsgrein sem orðist svo:
                     Þjóðskjalavörður tekur ákvörðun um förgun þeirra gagna sem verða til við eftirlit sýslumanns skv. 1.–4. mgr. í samræmi við lög um opinber skjalasöfn.
                  c.      Við 5. efnismgr. bætist: í reglugerð.
     6.      6. gr. orðist svo:
                  4. tölul. 1. mgr. 9. gr. laganna orðast svo: Aðstoð við ráðstöfun fjármuna vegna daglegra útgjalda. Persónulegum talsmanni er heimilt, á grundvelli samkomulags skv. 1. mgr. 7. gr., að sjá um greiðslu daglegra útgjalda fyrir einstakling sem hann aðstoðar enda sé greiðslum ráðstafað af sérgreindum reikningum fyrir þess háttar útgjöld. Með viðauka við samkomulagið má veita persónulegum talsmanni heimild til þess að fá nauðsynlegan skoðunaraðgang að sérgreindum reikningum og greiða tilteknar, reglulegar kröfur í heimabanka þess einstaklings sem nýtur aðstoðar. Heimild til handa persónulegum talsmanni getur einnig tekið til þess að stofna til greiðsluþjónustu fyrir hönd einstaklings hjá viðskiptabanka hans um sömu reikninga. Persónulegum talsmanni er hins vegar óheimilt að stofna til fjárhagsskuldbindinga fyrir hönd þess sem hann aðstoðar nema sá einstaklingur hafi veitt honum skriflegt umboð til þess. Hafi fötluðum einstaklingi verið skipaður ráðsmaður á grundvelli lögræðislaga tekur umboð persónulegs talsmanns ekki til þeirra eigna og fjármuna sem ráðsmaður hefur umsjón með.
     7.      7. gr. orðist svo:
                  Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2025.

    Guðbrandur Einarsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu.


Alþingi, 10. júní 2024.

Steinunn Þóra Árnadóttir,
form., frsm.
Ásmundur Friðriksson. Bryndís Haraldsdóttir.
Jóhann Páll Jóhannsson. Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir. Líneik Anna Sævarsdóttir.
Óli Björn Kárason. Guðmundur Ingi Kristinsson.