Ferill 969. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1858 — 969. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur og Birni Leví Gunnarssyni um skrifleg svör ráðherra við fyrirspurnum frá alþingismönnum.
1. Hvert er ferlið í ráðuneytinu þegar fyrirspurn skv. 57. gr. laga um þingsköp Alþingis berst frá alþingismanni sem óskar skriflegs svars? Hvernig er það skráð í skjalavistunarkerfi ráðuneytisins?
Þegar ráðuneytinu berst fyrirspurn þingmanns frá skrifstofu Alþingis er erindið skráð í málaskrá ráðuneytisins en um það sjá skjalastjórar. Erindið fær málsnúmer og sá starfsmaður sem fer með þau málefni sem fyrirspurnin snýr að er skráður ábyrgðarmaður málsins í málaskrá. Starfsmaðurinn, eftir atvikum eftir að aflað hefur verið upplýsinga frá stofnunum ráðuneytisins, gerir drög að svari við fyrirspurninni. Svardrögin eru lesin yfir af skrifstofustjóra og aðstoðarmönnum ráðherra í samráði við ráðherra, áður en ritari ráðherra sendir svarið til skrifstofu Alþingis.
2. Hversu langur tími leið að jafnaði undanfarin þrjú ár frá því að fyrirspurn var útbýtt þar til ráðuneytið sendi forseta Alþingis skriflegt svar? Svar óskast sundurliðað eftir löggjafarþingum og fyrirspyrjendum.
Upplýsinga um fjölda fyrirspurna og hversu marga virka daga tók að svara fyrirspurnum frá því að fyrirspurn var útbýtt á Alþingi var aflað af vef Alþingis.
| 151. þing | 152. þing | 153. þing | |
| Fjöldi fyrirspurna | 51 | 31 | 93 |
| Miðgildi virkra daga* | 30 | 32 | 33 |
| 151. þing | ||
| Þingmaður | Fjöld i | Miðgild i |
| Albertína Friðbjörg Elíasdóttir | 1 | 19 |
| Andrés Ingi Jónsson | 12 | 29 |
| Anna Kolbrún Árnadóttir | 1 | 59 |
| Ásmundur Friðriksson | 1 | 29 |
| Bergþór Ólason | 3 | 48 |
| Birgir Þórarinsson | 3 | 43 |
| Björn Leví Gunnarsson | 7 | 30 |
| Gunnar Bragi Sveinsson | 2 | 48 |
| Helgi Hrafn Gunnarsson | 4 | 21 |
| Helga Vala Helgadóttir | 2 | 67 |
| Inga Sæland | 1 | 15 |
| Jón Þór Ólafsson | 1 | 46 |
| Karl Gauti Hjaltason | 3 | 25 |
| Katla Hólm Þórhildardóttir | 1 | 26 |
| Ólafur Ísleifsson | 1 | 20 |
| Rósa Björk Brynjólfsdóttir | 2 | 29 |
| Sigmundur Davíð Gunnlaugsson | 1 | 57 |
| Silja Dögg Gunnarsdóttir | 1 | 41 |
| Sigurður Páll Jónsson | 1 | 33 |
| Þorsteinn Sæmundsson | 3 | 25 |
| 152. þing | ||
| Þingmaður | Fjöld i | Miðgild i |
| Andrés Ingi Jónsson | 7 | 32 |
| Arndís Anna K. Gunnarsdóttir | 2 | 24 |
| Ásthildur Lóa Þórsdóttir | 3 | 38 |
| Diljá Mist Einarsdóttir | 2 | 48 |
| Eva Sjöfn Helgadóttir | 3 | 31 |
| Gísli Rafn Ólafsson | 1 | 46 |
| Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir | 1 | 45 |
| Hilda Jana Gísladóttir | 1 | 34 |
| Halla Signý Kristjánsdóttir | 1 | 14 |
| Ingibjörg Isaksen | 1 | 45 |
| Jóhann Páll Jóhannsson | 1 | 45 |
| Lenya Rún Taha Karim | 1 | 31 |
| Líneik Anna Sævarsdóttir | 1 | 20 |
| Lilja Rafney Magnúsdóttir | 1 | 17 |
| Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir | 2 | 23 |
| Ólafur Ísleifsson | 1 | 30 |
| Sigmundur Davíð Gunnlaugsson | 1 | 21 |
| Steinunn Þóra Árnadóttir | 1 | 45 |
| 153. þing | ||
| Þingmaður | Fjöld i | Miðgild i |
| Andrés Ingi Jónsson | 12 | 24 |
| Arndís Anna K. Gunnarsdóttir | 11 | 21 |
| Ásthildur Lóa Þórsdóttir | 3 | 14 |
| Ásmundur Friðriksson | 1 | 94 |
| Bryndís Haraldsdóttir | 2 | 24 |
| Björn Leví Gunnarsson | 4 | 38 |
| Daníel E. Arnarsson | 2 | 32 |
| Diljá Mist Einarsdóttir | 4 | 29 |
| Eyjólfur Ármannsson | 2 | 55 |
| Eydís Ásbjörnsdóttir | 1 | 44 |
| Eva Sjöfn Helgadóttir | 1 | 41 |
| Gísli Rafn Ólafsson | 9 | 57 |
| Halldóra Mogensen | 1 | 33 |
| Halldór Auðar Svansson | 2 | 30 |
| Hildur Sverrisdóttir | 1 | 28 |
| Helga Vala Helgadóttir | 2 | 80 |
| Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir | 2 | 24 |
| Indriði Ingi Stefánsson | 15 | 35 |
| Inga Sæland | 1 | 24 |
| Ingibjörg Isaksen | 2 | 51 |
| Jóhann Páll Jóhannsson | 5 | 19 |
| Logi Einarsson | 1 | 70 |
| Magnús Árni Skjöld Magnússon | 1 | 93 |
| Ólafur Ísleifsson | 1 | 15 |
| Viðar Eggertsson | 1 | 49 |
| Vilhjálmur Árnason | 2 | 37 |
| Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir | 4 | 53 |
3. Hvaða aðilar í ráðuneytinu sjá um vinnslu skriflegra svara, frágang þeirra, yfirlestur og sendingu til forseta Alþingis? Hversu langan tíma tók hvert þessara skrefa að jafnaði undanfarin þrjú ár? Svar óskast sundurliðað eftir löggjafarþingum og fyrirspyrjendum.
Vísað er til svars við 1. tölul. fyrirspurnarinnar en þar er tilgreint hver sér um hvern og einn verkþátt þegar svara skal fyrirspurn frá alþingismanni. Fyrirspurnir eru skráðar í málaskrá ráðuneytisins og úthlutað tilteknum starfsmanni sama dag og erindið berst frá skrifstofu Alþingis. Í 57. gr. laga um þingsköp Alþingis kemur fram að fyrirspurn skuli vera skýr, um afmörkuð atriði og mál sem ráðherra ber ábyrgð á og þá skal miða við að ráðherra geti svarað henni í stuttu máli. Fyrirspurnir frá þingmönnum eru hins vegar mismunandi og oft ekki unnt að svara þeim í stuttu máli. Í sumum tilvikum er um mjög umfangsmiklar fyrirspurnir að ræða, afla þarf upplýsinga frá stofnunum ráðuneytisins og jafnvel vinna upplýsingar sem ekki liggja fyrir, hvort sem það er hjá ráðuneytinu eða stofnunum ráðuneytisins. Ekki er haldið sérstaklega utan um þann tíma sem fer í vinnslu svara við fyrirspurnum en sá tími getur verið afar misjafn, allt eftir umfangi fyrirspurnar. Hins vegar er ljóst að sá verkþáttur sem felst í því að útbúa svarið tekur almennt lengstan tíma.