Ferill 532. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1861 — 532. mál.
Svar
félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um endurskoðun á reglum um búningsaðstöðu og salerni.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvað líður vinnu við endurskoðun á lögum, reglugerðum og reglum í tengslum við búningsaðstöðu og salerni á vinnustöðum, með tilliti til laga um kynrænt sjálfræði, sem boðuð var í svari við fyrirspurn á 150. löggjafarþingi (þskj. 1422, 729. mál) og átti að hefjast strax í upphafi árs 2022 samkvæmt svari við fyrirspurn á 152. löggjafarþingi (þskj. 250, 114. mál)?
Líkt og fram kemur í svari við sambærilegri fyrirspurn á 152. löggjafarþingi (þskj. 250, 114. mál) leggur ráðherra ríka áherslu á að flýta eins og kostur er vinnu við endurskoðun á reglum nr. 581/1995, um húsnæði vinnustaða, en vegna mikilla anna í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu undanfarin misseri hefur dregist að ljúka við endurskoðun á fyrrnefndum reglum. Vinnan er þó þegar hafin innan ráðuneytisins í samvinnu við Vinnueftirlit ríkisins en stofnunin annast eftirlit með framkvæmd reglnanna. Samráð við ýmsa hagaðila, svo sem samtök hinsegin fólks, er einnig að hefjast en samráðsfundir hafa verið boðaðir síðar í þessum mánuði.