Ferill 1078. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1869 — 1078. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2024, sbr. lög nr. 17/2024.
Frá 1. minni hluta fjárlaganefndar.
80 milljarða kr. redding ríkisstjórnarinnar óundirbúin, ófjármögnuð og órædd.
Síðastliðið haust voru kynntar til sögunnar aðhaldsaðgerðir á verðbólgutímum sem námu um 17 milljörðum kr. fyrir árið 2024. Ef frá er talið aðhald á launaliðnum hjá ríkinu námu aðhaldsaðgerðir til að hægja á útgjaldavexti 12 milljörðum kr. Nokkrum vikum eftir samþykkt fjárlaga voru kynntar aðgerðir vegna kjarasamninga sem kosta ríkissjóð 13 milljarða kr. á þessu ári. Þessi kjarasamningsfjárauki tekur á þeim aðgerðum. Um er að ræða aðgerðir sem vinna að fullu upp á móti því aðhaldi sem samþykkt var af stjórnarmeirihlutanum fyrir jól. Ljóst er að umræddar aðgerðir fengu enga þinglega umræðu enda hvergi að finna í fjárlögum ársins og enginn vilji til að ræða möguleika á slíkum aðgerðum fyrir jól.
Vinnulagið við þennan kjarasamningsfjárauka og aðgerðirnar sem hann á að fjármagna varpa ljósi á þá óreiðu sem er við stjórn ríkisfjármálanna.
Í kjarasamningsfjárauka sem hér um ræðir kemur fram að heildartekjur ársins 2024 séu nú áætlaðar 11 milljörðum kr. meiri en gert var ráð fyrir við áætlun fjárlaga. Hvers vegna? Annars vegar vegna endurmats á afskriftum skattkrafna í samræmi við breytta aðferðafræði hjá Fjársýslunni og hins vegar hærri arðgreiðslna frá Landsvirkjun.
Á mannamáli þýðir þetta að ákveðið var að fjármagna aðgerðir vegna kjarasamninga á þessu ári með því að knýja fram hærri arðgreiðslur frá Landsvirkjun sem nemur 10 milljörðum kr. Fyrri tillögu stjórnar Landsvirkjunar um arðgreiðslu var breytt úr 20 milljörðum kr. í 30 milljarða kr. eftir að nýr fjármálaráðherra Framsóknarflokksins tók við. Þá felur endurmatið á afskriftum skattkrafna ekki í sér raunverulegt aðhald enda aðeins um reiknaða stærð í bókhaldi að ræða, líkt og fjármálaráð bendir á.
Tvennt birtist okkur hér: Í fyrsta lagi að enginn vilji er til að grípa til langtímafjármögnunar á langvarandi aukningu í rekstrarkostnaði. Í öðru lagi stefnuleysi þegar kemur að auðlindum þjóðarinnar. Fjárhagsstaða Landsvirkjunar er mjög góð og fyrirtækið ræður við aukaarðgreiðslur. En sama ríkisstjórn og klípur nú 10 milljarða kr. eftir hentisemi úr félaginu lagði fyrir nokkrum vikum fram þingmál um að stofna þjóðarsjóð fyrir arðgreiðslur úr Landsvirkjun sem átti að nýta fyrir áföll, ekki rekstrarkostnað.
Nýr fjármálaráðherra hefur þrætt fyrir að umrædd viðbótararðgreiðsla hafi áhrif á aðhaldsstigið og haldið því fram að greiðslan auki það jafnvel því að nú sé verið að nýta 10 milljarða kr. sem annars hefðu farið í önnur útgjöld. Skýringin stenst enga skoðun. Annaðhvort ætlaði Landsvirkjun að nýta umrædda 10 milljarða kr. í fjárfestingu í mikilvægum innviðum eða láta fjármagnið sitja áfram í bókum félagsins. Ef hið fyrra reynist rétt horfum við upp á enn eitt tilvikið þar sem ríkisstjórnin gengur á fjárfestingargetu hins opinbera og þar með nauðsynlega innviðauppbyggingu til að fjármagna viðbótarrekstrarkostnað. Ef hið síðara reynist rétt og umræddir 10 milljarðar kr. hefðu annars setið óhreyfðir hjá Landsvirkjun og þar með óvirkir í hagkerfinu er ríkisstjórnin í reynd að auka peninga í umferð til að fjármagna kjarasamningsaðgerðir sínar sem er verðbólguvaldandi.
Ákvarðanataka í tengslum við aðkomu ríkisstjórnarinnar að kjarasamningum og fjármögnun þeirra stenst ekki skoðun. Þetta er ekki einvörðungu skoðun 1. minni hluta. Fjármálaráð, sem veitir óháða umsögn um fjármálaáætlun hins opinbera út frá pólitískum áherslum ríkisstjórnar hverju sinni, bendir í viðauka í umsögn sinni á að „ólíkt eldsumbrotunum [á Reykjanesskaga] er aðkoma ríkissjóðs að kjarasamningum með auknum fjárútlátum ekki ófyrirséð eða óvænt útgjöld“. Telur ráðið því að umræddar ákvarðanir fyrir yfirstandandi ár um aukin útgjöld innan fjárlagaársins 2024 rúmist „hvorki innan ákvæða um ráðstöfun varasjóðs né fjáraukalaga“. Með öðrum orðum virðist fjármálaráð telja að ríkisstjórnin fari með þessu gegn lögum um opinber fjármál, enda stóð aldrei til að eyða 13 milljörðum kr. í kjarasamningsaðgerðir á þessu ári.
Það var aldrei nein áætlun til staðar um að fjármagna 80 milljarða kr. pakka ríkisstjórnarinnar eins og sést í þessum fjárauka og í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir næstu ár. Fyrir það líður almenningur í landinu á tímum hárra vaxta og verðbólgu.
Alþingi, 9. júní 2024.
Kristrún Frostadóttir.