Ferill 917. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1872  —  917. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og lögum um kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða (erlendir aðilar, kílómetragjald o.fl.).

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, Skattinum, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum verslunar og þjónustu, Bílgreinasambandinu, Félagi íslenskra bifreiðaeigenda, Deloitte ehf. og BBA Fjeldco ehf.
    Nefndinni bárust tíu umsagnir og þrjú minnisblöð frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, dags. 27., 29. og 31. maí 2024, sem eru aðgengileg á síðu málsins á vef Alþingis.
    Með frumvarpinu eru annars vegar lagðar til breytingar á ákvæðum laga um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, að því er varðar sölu á þjónustu til aðila, atvinnufyrirtækja sem og annarra aðila sem eiga hvorki heimilisfesti hér á landi, lögheimili né stunda hér atvinnustarfsemi frá fastri starfsstöð. Hins vegar eru með frumvarpinu lagðar til breytingar á ákvæðum laga um kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða, nr. 101/2023, er varða skráningu á stöðu akstursmælis, fyrirframgreiðslu kílómetragjalds, refsikennd viðurlög o.fl.

Umfjöllun.
Almennt.
    Í umsögnum sem nefndinni bárust fögnuðu umsagnaraðilar 1. gr. frumvarpsins um breytingar á lögum um virðisaukaskatt varðandi sölu á þjónustu til atvinnufyrirtækja sem hafa hvorki heimilisfesti né fasta starfsstöð hér á landi. Töldu umsagnaraðilar að breytingarnar myndu leiða til þess að skattframkvæmdin yrði skýrari, gagnsærri og fyrirsjáanlegri.
    Þá hvöttu umsagnaraðilar til þess að lög um virðisaukaskatt yrðu tekin til heildarendurskoðunar þannig að þau endurspegluðu betur núverandi aðstæður í atvinnulífinu. Hvatt var til breytinga á fyrirkomulagi sem gildir um kaup NATO á vörum og þjónustu hér á landi á þann veg að í staðinn fyrir að NATO fengi endurgreiddan virðisaukaskatt af aðkeyptri vöru og þjónustu yrði sala á vörum og þjónustu til NATO talin undanþegin skattskyldri veltu og þar með yrði enginn virðisaukaskattur innheimtur. Loks var bent á að óvissa ríkti um skyldu viðskiptavina gagnavera til að skrá sig á virðisaukaskattsskrá og að í lögunum væri ekki að finna nein ákvæði um starfsemi markaðstorga.
    Meiri hlutinn vísar til minnisblaðs ráðuneytisins, dags. 27. maí, þar sem fram kemur að virðisaukaskattskerfið hafi síðast verið tekið til endurskoðunar á árinu 1999 og að frá þeim tíma hafi orðið miklar breytingar í viðskipta- og tækniumhverfi. Þá er bent á að nú þegar hafi ráðuneytið stigið fyrstu skrefin í endurskoðun á löggjöfinni með þeim breytingum sem frumvarpið felur í sér. Jafnframt að unnið verði markvisst að því á næstu misserum að gera nauðsynlegar breytingar á lögunum til að stuðla að jafnræði milli skyldra atvinnugreina og tryggja samkeppnishæfni.

Umboðsmenn sem eru í fyrirsvari fyrir erlenda aðila sem reka hér á landi skattskyld viðskipti.
    Í umsögnum frá Deloitte og BBA Fjeldco var sérstaklega tiltekið að gera þyrfti erlendum aðilum, sem reka hér á landi skattskyld viðskipti, kleift að skrá sig í grunnskrá virðisaukaskatts. Samkvæmt núverandi fyrirkomulagi eru umboðsmenn erlendra aðila skráðir í grunnskrá. Kom m.a. fram að mikið óhagræði og kostnaður fylgdi því að skráning á virðisaukaskattsskrá færi í gegnum umboðsmann og slíkt gæti haft hamlandi áhrif á milliríkjaviðskipti. Þá séu töluverðar líkur á því að umboðsmaðurinn hafi ekki fjárhagslega burði til að standa skil á virðisaukaskattinum, enda sé hann ekki milliliður í sjálfum viðskiptunum heldur sjái hann eingöngu um skil á virðisaukaskattinum í ríkissjóð. Litið væri þannig á umboðsmanninn sem skattaðilann, sem ekki sé raunin. Jafnframt var vísað til breytinga sem gerðar voru í Noregi eftir að Eftirlitsstofnun EFTA komst að því að sambærilegt fyrirkomulag í norskri löggjöf væri í andstöðu við 11. og 36. gr. EES-samningsins um frjálst flæði vara og þjónustu.
    Með vísan til þessara umsagna beinir meiri hlutinn því til stjórnvalda að taka framangreint til skoðunar. Sér í lagi væri vert að kanna hvort stuðla megi að því að íslenskt regluverk verði sambærilegra við regluverk á Evrópska efnahagssvæðinu sem geti þannig liðkað fyrir frekari erlendum viðskiptum.

Breytingartillögur.
A-liður 11. gr.
    Í a-lið 11. gr. frumvarpsins er lagt til að 3. málsl. 1. mgr. 21. gr. laga nr. 101/2023 falli brott, en þar segir að lögveð falli niður við eigendaskipti hafi hinn nýi eigandi hvorki vitað né mátt vita um lögveðið. Umræddur málsliður laganna á rætur að rekja til breytingartillögu meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar við meðferð frumvarps þess er varð að lögum nr. 101/2023. Í áliti meiri hlutans (þskj. 799) kom fram að ekki væri óeðlilegt að kílómetragjald og vanskráningargjald væri tryggt með lögveði á hlutaðeigandi bifreið. Hins vegar tók meiri hlutinn undir athugasemdir í umsögnum sem nefndinni bárust um að erfitt gæti orðið í framkvæmd fyrir nýjan eiganda ökutækis að vita hvort lögveð hvíldi á bifreiðinni.
    Í athugasemdum við a-lið 11. gr. frumvarpsins segir að það sem einkenni lögveð sé að veðréttindi eru óháð því hver er skráður eigandi viðkomandi bifreiðar hverju sinni. Jafnframt er talið að málsliðurinn, sem setur það skilyrði fyrir fullnustu kröfu á grundvelli lögveðs að skráður eigandi bifreiðar hafi verið grandsamur um kröfuna, fari gegn meginreglum veðréttar. Í umsögnum sem nefndinni bárust er a-lið 11. gr. frumvarpsins mótmælt og áréttað að nýju að tilvist lögveðs í bifreiðum geti hæglega haft mjög alvarleg og ósanngjörn áhrif. Þá sé eðlilegt að eigandi bifreiðar standi skil á þeim gjöldum sem honum ber að greiða og ekkert við það að athuga að unnt sé að grípa til aðgerða gegn bifreiðaeigendum sem ekki standi sig. Aftur á móti geti sú staða hæglega komið upp að sá endi með að greiða hina vangoldnu kröfu sem ekki hefur borið ábyrgð á greiðslu gjaldanna, sem skaðað getur öryggi í bifreiðaviðskiptum.
    Meiri hlutinn tekur undir með umsagnaraðilum og víkur ekki frá fyrrgreindu áliti meiri hluta nefndarinnar. Að þessu gættu leggur meiri hlutinn til að a-liður 11. gr. falli brott.

Bráðabirgðagreiðsla í stað fyrirframgreiðslu.
    Í 9. gr. laga nr. 101/2023 er fjallað um áætlun á meðalakstri og fyrirframgreiðslu kílómetragjalds. Í 5. mgr. ákvæðisins segir að gjaldskyldum aðila skuli gert að greiða fyrir fram upp í álagningu kílómetragjalds skv. 10. gr., miðað við áætlun um akstur. Fyrirframgreiðsla kílómetragjalds skuli innheimt mánaðarlega fram að álagningu þess, sbr. 6. mgr., og er gjalddagi fyrsti dagur næsta mánaðar, sbr. 7. mgr. Samkvæmt framansögðu er til að mynda 1. febrúar gjalddagi fyrirframgreiðslu vegna janúarmánaðar. Í umsögn Skattsins kom fram að orðið fyrirframgreiðsla í lögunum hafi vafist fyrir skattaðilum þar sem gjalddagi fyrirframgreiðslu vegna einstakra gjaldtímabila er eftir lok þess gjaldtímabils. Til að fyrirbyggja misskilning lagði Skatturinn til að í stað orðsins „fyrirframgreiðsla“ kæmi orðið „bráðabirgðagreiðsla“ hvarvetna sem hugtakið kemur fyrir í lögunum. Jafnframt að orðið „bráðabirgðagreiðslu“ komi í stað orðanna „fyrir fram“ í 5. mgr. 9. gr. laganna og 1. málsl. 4. mgr. ákvæðis til bráðabirgða II. Í minnisblaði ráðuneytisins, dags. 27. maí, er fallist á umræddar tillögur Skattsins og gerir meiri hlutinn því viðeigandi breytingar.

Fast akstursgjald bifreiða sem skráðar eru erlendis.
    Í 7. gr. laga nr. 101/2023 er fjallað um bifreiðar skráðar erlendis sem eru í tímabundinni notkun hér á landi. Samkvæmt ákvæðinu er meginreglan sú að innflytjandi bifreiðar sem skráð er erlendis skuli greiða daggjald vegna tímabundinnar notkunar hér á landi. Gjaldið er 600 kr. vegna bifreiðar sem er alfarið knúin rafmagni eða vetni og 200 kr. vegna tengiltvinnbifreiðar. Farmflytjandi annast innheimtu og skil á daggjaldi. Innflytjandi getur jafnframt óskað eftir að greiða kílómetragjald út frá stöðu akstursmælis bifreiðar samkvæmt álestri og fjárhæðum sem gilda um greiðslu kílómetragjalds innan lands. Í minnisblaði ráðuneytisins, dags. 27. maí, segir að samkvæmt Skattinum hafi komið í ljós að mikil vinna og fyrirhöfn felist í því, bæði fyrir Skattinn og farmflytjendur, að halda utan um skráningu, leiðréttingar og eftirlit á þeim bifreiðum sem hingað koma til landsins fyrir tímabundna notkun. Sér í lagi sé fyrirhöfnin mikil fyrir bifreiðar aðila sem velja að greiða gjaldið samkvæmt skráningu akstursmælis frá fyrsta degi. Þetta hafi til að mynda kallað á aukinn mannskap hjá tollyfirvöldum. Í ljósi framangreinds leggur ráðuneytið til, í samráði við Skattinn, upptöku á föstu gjaldi í formi akstursgjalds. Það myndi leiða til fækkunar á þeim sem kjósa kílómetragjald út frá álestri, sem erfiðast er í framkvæmd. Upptaka fasts gjalds myndi jafnframt einfalda framkvæmdina fyrir farmflytjanda. Áformað er samkvæmt minnisblaði ráðuneytisins, dags. 29. maí, að skráning á kílómetrastöðu þessara bifreiða verði á ábyrgð innflytjanda. Mun skráning fara fram með rafrænum hætti á stafrænu eyðublaðinu hjá Skattinum.
    Því er lagt til í minnisblaðinu, dags. 27. maí, að fram komi í 1. mgr. 7. gr. laganna að fast akstursgjald af bifreiðum sem alfarið eru knúnar rafmagni eða vetni verði 10.000 kr. og 5.000 kr. fyrir tengiltvinnbifreiðar. Upphæð gjaldsins tekur mið af meðalakstri erlendra gesta. Þeir aðilar sem dvelja hér á landi með bifreiðar sínar í 30 daga eða skemur munu eingöngu greiða umrætt fast gjald vegna tímabundinnar notkunar hér á landi. Aftur á móti segir í 3. mgr. ákvæðisins að ef bifreið er hér á landi lengur en í 30 daga í hvert sinn skuli aðilar greiða kílómetragjald samkvæmt álestri á kílómetrastöðu á komu- og brottfarardegi. Innflytjandi skal gera upp álagt kílómetragjald við brottför bifreiðar frá landinu. Akstursgjald samkvæmt 1. mgr. sem skilað hefur verið til ríkissjóðs vegna bifreiðar skal koma til frádráttar álögðu kílómetragjaldi. Í minnisblaði ráðuneytisins, dags. 29. maí, var jafnframt lagt til að kílómetragjald samkvæmt málsgreininni skyldi þó aldrei ákvarðað lægra en sem nemur akstursgjaldi skv. 1. mgr. Umræddri viðbót væri ætlað að vera til einföldunar á skattframkvæmd þar sem ekki verði þörf á að leiðrétta kílómetragjald í þeim markatilvikum þegar það er lægra samkvæmt álestri en akstursgjaldið skv. 1. mgr. Þá sagði í minnisblaði ráðuneytisins, dags. 29. maí, að hafi skráning á stöðu akstursmælis við komu bifreiðar til landsins ekki farið fram skuli innflytjandi greiða fullt akstursgjald skv. 1. mgr. fyrir hvert hafið 30 daga tímabil sem bifreið er á landinu. Með þessu er tryggt að þeir aðilar sem ekki gefa upp kílómetrastöðu bifreiðar við komu til landsins greiði akstursgjald fyrir hvert hafið tímabil innan lands ef fyrir liggur eða í ljós kemur að bifreið verði lengur en 30 daga hér á landi.
    Meiri hlutinn tekur undir þessa tillögu og gerir hana að sinni. Meiri hlutinn bendir á að gert er ráð fyrir að greiðsla, innheimta og eftirlit með kílómetragjaldi vegna bifreiða sem skráðar eru erlendis og fluttar tímabundið til landsins verði einfaldara, skilvirkara og gagnsærra. Það er til hagsbóta fyrir innflytjendur, farmflytjendur og Skattinn. Að öðru leyti vísar meiri hlutinn til ítarlegri umfjöllunar í minnisblöðum ráðuneytisins, dags. 27. og 29. maí.

Brottfall 13. gr.
    Í 13. gr. frumvarpsins er lagt til að 1. mgr. 22. gr. laga nr. 101/2023 falli brott. Í ákvæðinu segir að kílómetragjald sem innheimt er samkvæmt lögunum skuli ekki mynda gjaldstofn til virðisaukaskatts. Í athugasemdum við 13. gr. frumvarpsins segir að tilvist málsgreinarinnar í lögum kunni að leiða til þess misskilnings hjá aðilum sem eru í virðisaukaskattsskyldri starfsemi og velja að innheimta kílómetragjald hjá viðskiptavinum sínum, til að mynda bílaleigum, að heimilt sé að halda gjaldinu fyrir utan skattverð skv. 1. tölul. 2. mgr. 7. gr. laga um virðisaukaskatt. Það hafi ekki staðið til og því er nauðsynlegt að 1. mgr. 22. gr. laga nr. 101/2023 falli brott.
    Í minnisblaði ráðuneytisins, dags. 31. maí, kom fram að ábendingar hefðu borist um að álagning virðisaukaskatts á kílómetragjald gæti skapað misræmi milli þeirra sem eiga bíl og þeirra sem leigja bíl. Bent var á að ef leigusali ákveður að innheimta kílómetragjald af sínum viðskiptavinum vegna aksturs og virðisaukaskattur leggst ofan á gjaldið greiði leigjendur rafmagns- og tengiltvinnbíla meira fyrir hvern kílómetra en eigendur sömu bifreiða sem greiða kílómetragjald. Þessu væri hins vegar öfugt farið ef bíll sem gengur fyrir jarðefnaeldsneyti er leigður út þar sem bæði eigandi og leigjandi bíls greiða í þeim tilvikum sömu eldsneytisgjöld fyrir afnot af vegakerfinu. Jafnframt hefur verið bent á að misræmi gæti skapast milli umráðamanna bifreiða samkvæmt samningi við handhafa leyfis til að stunda kaupleigu og fjármögnunarleigu og þeirra aðila sem ákveða að leigja bílaleigubíl í langtímaleigu. Í fyrra tilvikinu er ekki innheimtur virðisaukaskattur þar sem umráðamaður er hinn gjaldskyldi aðili. Í síðara tilvikinu bæri leigutaka að greiða virðisaukaskatt af því kílómetragjaldi sem bílaleigan ákveður að rukka leigutaka sérstaklega um vegna aksturs, enda sé gjaldskyldur aðili kílómetragjalds leigusali en ekki leigutaki. Jafnframt bárust nefndinni umsagnir frá Samtökum ferðaþjónustunnar, Samtökum verslunar og þjónustu og Bílgreinasambandinu þar sem 13. gr. frumvarpsins var mótmælt.
    Að þessu gættu leggur meiri hlutinn til í samráði við ráðuneytið að 13. gr. frumvarpsins falli brott. Meiri hlutinn áréttar þó að 1. mgr. 22. gr. laganna nær aðeins til fjárhæðar kílómetragjaldsins sjálfs en ekki til hugsanlegs kostnaðar sem kann að falla til vegna umsýslu kílómetragjalds, t.d. tölvu- og kerfiskostnaðar, og vinnu við álestur og skráningu. Sá þáttur við sölu þjónustu leigusala bifreiða myndar eftir sem áður gjaldstofn til virðisaukaskatts. Meiri hlutinn vísar jafnframt til þeirrar vinnu sem nú stendur yfir hjá ráðuneytinu vegna þeirra áforma sem stjórnvöld hafa kynnt um að kílómetragjald verði lagt á alla bíla á árinu 2025. Meiri hlutinn fellst á með ráðuneytinu að í þeirri vinnu verði samspil kílómetragjalds og virðisaukaskatts tekið til nánari skoðunar. Meiri hlutinn hvetur stjórnvöld jafnframt til frekari vinnu við útfærslu á heildarlausn fyrir greiðslu bílaleigna á kílómetragjaldi. Mikilvægt er að hagsmunaaðilar hafi aðkomu að því. Þá telur meiri hlutinn að huga megi að því hvort kílómetragjald í formi daggjalds yrði heppilegra fyrir bílaleigur.

Lög um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991.
    Í minnisblaði ráðuneytisins, dags. 27. maí, kemur fram að beiðni hafi borist frá utanríkisráðuneytinu um að lagðar verði til breytingar á lögum um aukatekjur ríkissjóðs í frumvarpinu vegna gjalds fyrir umsókn um vegabréfsáritanir erlendis. Gjald fyrir umsókn um vegabréfsáritun erlendis er innheimt í evrum samkvæmt skuldbindingum Íslands skv. 16. gr. reglugerðar (ESB) nr. 810/2009, um samræmda útgáfu áritana, sem innleidd var með lögum um útlendinga, nr. 80/2016, og reglugerð um vegabréfsáritanir, nr. 795/2022. Ísland er því skuldbundið að lögum að fylgja fjárhæðarviðmiðum Evrópusambandsins um vegabréfsáritanir erlendis. Fjárhæðarviðmið Evrópusambandsins vegna vegabréfsáritunar 6–12 ára og 13 ára og eldri munu frá og með 11. júní næstkomandi hækka annars vegar úr 40 evrum í 45 evrur og hins vegar úr 80 evrum í 90 evrur og tekur breytingartillagan mið af því.
    Meiri hlutinn bendir á að frumvarp þetta felur í sér tillögur sem hafa áhrif á tekjuöflun ríkissjóðs. Sama á við um fyrrgreinda breytingartillögu sem hér er lögð til. Að því gættu telur meiri hlutinn að sú tillaga rúmist innan efnis frumvarpsins og gerir hana að sinni.
    Loks leggur meiri hlutinn til orðalagsbreytingar sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif.
    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem lagðar eru til í sérstöku þingskjali.

Alþingi, 11. júní 2024.

Teitur Björn Einarsson,
form.
Jóhann Friðrik Friðriksson, frsm. Ágúst Bjarni Garðarsson.
Diljá Mist Einarsdóttir. Steinunn Þóra Árnadóttir.