Ferill 917. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1873 — 917. mál.
2. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og lögum um kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða (erlendir aðilar, kílómetragjald, o.fl.).
Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar (TBE, JFF, ÁBG, DME, SÞÁ).
1. Í stað orðanna „vanskráningargjalds, dráttarvaxta og innheimtukostnaðar“ í 5. gr. komi: og vanskráningargjalds ásamt dráttarvöxtum og innheimtukostnaði.
2. Í stað orðsins „fyrirframgreiðsla“ í 6. gr. komi: bráðabirgðagreiðsla.
3. Á eftir 6. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
7. gr. laganna orðast svo:
Innflytjandi bifreiðar, sbr. 4. mgr. 3. gr., sem flytur inn gjaldskylda bifreið skv. 3. tölul. 2. gr. hingað til lands samkvæmt heimild tollyfirvalda skal greiða akstursgjald vegna tímabundinnar notkunar innan lands. Gjaldið skal nema 10.000 kr. vegna bifreiðar sem alfarið er knúin rafmagni eða vetni og 5.000 kr. vegna tengiltvinnbifreiðar.
Farmflytjanda ber skylda til að innheimta akstursgjald skv. 1. mgr. og standa skil á því í ríkissjóð. Gjalddagi akstursgjalds er 30 dögum eftir komu bifreiðar til landsins og eindagi 14 dögum síðar. Ef farmflytjandi hefur ekki greitt á eindaga skal greiða ríkissjóði dráttarvexti skv. 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, af þeirri fjárhæð sem gjaldfallin er frá gjalddaga.
Ef bifreið er lengur en 30 daga hér á landi í hvert sinn skal innflytjandi greiða kílómetragjald út frá skráningu á stöðu akstursmælis bifreiðar við komu til landsins og við brottför frá landinu. Innflytjandi skal gera upp álagt kílómetragjald við brottför bifreiðar frá landinu. Akstursgjald skv. 1. mgr. sem skilað hefur verið í ríkissjóð vegna bifreiðar skal koma til frádráttar álögðu kílómetragjaldi. Kílómetragjald samkvæmt þessari málsgrein skal þó aldrei ákvarðað lægra en sem nemur akstursgjaldi skv. 1. mgr.
Hafi skráning á stöðu akstursmælis við komu bifreiðar til landsins ekki farið fram skal innflytjandi greiða fullt akstursgjald skv. 1. mgr. fyrir hvert hafið 30 daga tímabil sem bifreið er á landinu.
Ríkisskattstjóra er heimilt að setja nánari reglur um framkvæmd og tilhögun innheimtu og skráningu þeirra bifreiða sem falla undir þessa grein.
4. Við 7. gr.
a. Orðið „þó“ í b-lið falli brott.
b. Á eftir b-lið komi nýr stafliður, svohljóðandi: Orðið „þó“ í 3. málsl. 3. mgr. fellur brott.
5. Við 8. gr.
a. Á undan a-lið komi nýr stafliður, svohljóðandi: Í stað orðsins „fyrirframgreiðsla“ í fyrirsögn og sama orðs hvarvetna annars staðar í lögunum kemur, í viðeigandi beygingarmynd: bráðabirgðagreiðsla.
b. Á eftir a-lið komi nýr stafliður, svohljóðandi: Í stað orðanna „fyrir fram“ í 5. mgr. kemur: bráðabirgðagreiðslu.
c. Í stað orðsins „fyrirframgreiðslu“ og „fyrirframgreiðsla“ tvívegis í b-lið komi: bráðabirgðagreiðslu; og: bráðabirgðagreiðsla.
6. Við 11. gr.
a. A-liður falli brott.
b. B-liður orðist svo: Á eftir orðunum „og vanskráningargjald“ í 2. mgr. kemur: ásamt dráttarvöxtum og innheimtukostnaði.
7. 13. gr. falli brott.
8. Á eftir 13. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
Í stað orðanna „fyrir fram“ í 1. málsl. 4. mgr. ákvæðis til bráðabirgða II í lögunum kemur: bráðabirgðagreiðslu.
9. Í stað orðanna „breytingar á umráðamanni“ í a-lið 14. gr. komi: breytta skráningu umráðamanns.
10. Á eftir 14. gr. komi nýr kafli, III. kafli, Breyting á lögum um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991, með einni nýrri grein, 16. gr., svohljóðandi:
Eftirfarandi breytingar verða á 3. tölul. 3. mgr. 14. gr. laganna:
a. Í stað „40“ í a-lið kemur: 45.
b. Í stað „80“ í b-lið kemur: 90.