Ferill 400. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1896 — 400. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum, nr. 77/2019 (EES-reglur).
Frá meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá innviðaráðuneyti, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Ferðafélaginu Melrökkum, Samtökum iðnaðarins og SVÞ – Samtökum verslunar og þjónustu f.h. Samtaka ökuskóla.
Nefndinni bárust fjórar umsagnir sem eru aðgengilegar undir málinu á vef Alþingis, auk minnisblaða frá innviðaráðuneyti.
Málið var hluti frumvarps sem lagt var fram á 153. löggjafarþingi (589. mál, þskj. 864) en náði ekki fram að ganga. Þá bárust nefndinni tólf umsagnir auk minnisblaða frá innviðaráðuneyti og Samgöngustofu. Við meðferð þessa máls hafði nefndin hliðsjón af því.
Um efni frumvarpsins, að öðru leyti en fjallað er um sérstaklega í álitinu, vísast til greinargerðar með því.
Umfjöllun nefndarinnar.
Fjarnám og endurmenntun (2. gr.).
Í 58. gr. umferðarlaga er m.a. mælt fyrir um skyldu ökumanna sem stjórna ökutækjum til að undirgangast endurmenntun. Ráðherra kveður á um nánari tilhögun endurmenntunar í reglugerð, sbr. 10. mgr. ákvæðisins, en fram kemur í lokamálslið þess að heimilt sé að ljúka endurmenntun með fjarnámi. Með 2. gr. frumvarpsins er lögð til sú breyting að aðeins verði heimilt að ljúka endurmenntun að hluta með fjarnámi en ekki að fullu líkt og nú er heimilt. Breytingin er gerð til samræmis við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/645 sem mælir m.a. fyrir um fjarnám og umfang þess. Vegna innleiðingar tilskipunarinnar verður hluti endurmenntunar að felast í verklegri þjálfun og verði frumvarpið að lögum óbreytt verður ekki unnt að ljúka endurmenntun að öllu leyti í fjarnámi. Aukinni fræðslu og þjálfun ökumanna er ætlað að leiða til vistvænni og öruggari aksturs en með tilskipuninni er stefnt að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda og fækkun umferðarslysa. Ákveðnir námsþættir eru taldir krefjast verklegrar þjálfunar þar sem ekki sé hægt að kenna þá með fullnægjandi hætti í fjarnámi. Er af þeim sökum mælt fyrir um í tilskipuninni að ekki skuli kenna meira en 12 kennslustundir af 35 í fjarnámi. Í ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 155/2022, sem fól í sér upptöku tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/645, kemur fram aðlögunartexti þess efnis að það megi kenna fleiri en 12 kennslustundir í fjarnámi, en gerð krafa um að kennslan samanstandi bæði af fræðilegri og verklegri kennslu.
Í umsögn Samtaka iðnaðarins eru gerðar athugasemdir við fyrirhugaða breytingu. Huga þurfi að því að námskrá endurmenntunar atvinnubílstjóra geri ráð fyrir bæði bóklegri og verklegri kennslu, en í dag geti nemendur sinnt endurmenntunarskyldu sinni alfarið bóklega ef þeir kjósi svo. Þá sé ákvæði 3. málsl. 10. mgr. 58. gr. umferðarlaga í fullu samræmi við ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar og þarfnist ekki breytinga. Samtökin gera einnig athugasemdir við að það standi til að ganga lengra en nauðsynlegt þykir við innleiðingu.
Í minnisblaði innviðaráðuneytisins, dags. 19. febrúar sl., segir að þrátt fyrir þá aðlögun sem Ísland fékk varðandi fjölda þeirra kennslustunda sem kenna má í fjarnámi sé gerð sú krafa að hluti endurmenntunar verði að vera verklegur, þar sem hann geti ekki farið fram í fjarnámi. Hluti endurmenntunar verði að vera í staðnámi þó að tímafjöldatakmarkanir eigi ekki við og því sé nauðsynlegt að kveða á um breytingar á 3. málsl. 10. mgr. 58. gr. laganna.
Í umsögn SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu, f.h. Samtaka ökuskóla, er lagt til að sú breyting verði gerð á 2. gr. frumvarpsins að ákvæðið kveði beinlínis á um hámark endurmenntunar sem lokið er í fjarnámi, þ.e. 12 klst. Rafrænar menntunaraðferðir geti verið hagkvæmar frá efnahagslegu sjónarmiði en hætt sé við því að aukið umfang slíkra aðferða komi niður á gæðum menntunar.
Í minnisblaði innviðaráðuneytisins, dags. 19. febrúar sl., kemur fram að óskað hafi verið aðlögunar við framangreinda tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/645 þess efnis að takmörkun á umfangi við endurmenntun atvinnubílstjóra ætti ekki við um Ísland. Eftir standi að kenna verði einhvern hluta endurmenntunar í staðnámi þó að takmarkanir á tímafjölda í fjarnámi eigi að öðru leyti ekki við. Því sé nauðsynlegt að breyta ákvæði 3. málsl. 10. mgr. 58. gr. umferðarlaga til samræmis en leitast sé við að íþyngja atvinnubílstjórum ekki umfram það sem leiðir af alþjóðlegum skuldbindingum Íslands.
Meiri hlutinn telur brýnt að vinnu við uppfærslu námskrárinnar sé haldið áfram með það í huga að auka sveigjanleika við endurmenntun, en bæði námskeiðshaldarar og atvinnubílstjórar hafa kallað eftir því. Þá telur meiri hlutinn mikilvægt að undirstrika að áfram verður heimilt að kenna fleiri en 12 kennslustundir í fjarnámi. Þrátt fyrir framangreint telur meiri hlutinn ekki forsendur til að leggja til breytingar á 2. gr. frumvarpsins.
Markaðseftirlit (b-liður 4. gr.).
Með 2. mgr. b-liðar 4. gr. frumvarpsins er lagt til að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun verði falið það hlutverk að vera markaðseftirlitsstjórnvald fyrir vélknúin ökutæki og annað þeim tengt, samkvæmt nánari ákvörðun ráðherra. Þá er mælt fyrir um að Samgöngustofa annist gerðarviðurkenningar. Skal ráðherra í reglugerð m.a. kveða á um framkvæmd starfa markaðseftirlits- og viðurkenningarstjórnvalda, rétt til upplýsinga og gagna, miðlunar þeirra, aðgang að athafnasvæði markaðsaðila, sýnatöku o.s.frv.
Í umsögn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar segir að sá kostnaður sem mun fylgja slíku eftirliti sé vanáætlaður í greinargerð með frumvarpinu. Að mati stofnunarinnar yrði kostnaður vegna kaupa og prófana á ökutækjum ekki undir 60 millj. kr. á ári ef gert verður ráð fyrir að minnsta kosti fimm prófunum á ári. Auk þess hafi ekki verið horft til aukins kostnaðar vegna stöðugilda hjá stofnuninni til þess að sinna þeim verkefnum sem frumvarpið kveður á um.
Í minnisblaði innviðaráðuneytisins, dags. 19. febrúar sl., kemur fram að fyrirliggjandi kostnaðarmat nemi 20 millj. kr. á ári sem miðar við verðlag og launakostnað í júní 2022. Matið sé byggt á reynslu erlendis frá og þeirri forsendu að markaðseftirlitsstjórnvald hér á landi gangi til samninga við viðurkennda tækniþjónustu erlendis. Hafi kostnaðarmatinu ekki verið hnekkt en eftir standi að tryggja fjármögnun verkefnisins til framtíðar. Telur meiri hlutinn af framangreindum ástæðum ekki tilefni til breytinga á frumvarpinu að þessu leyti. Þó telur meiri hlutinn mikilvægt að ráðuneytið hugi að fjármögnun þessa verkefnis til framtíðar.
Þá fjallaði nefndin um hlutverk Samgöngustofu og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, en Samgöngustofa fer með hlutverk viðurkenningarstjórnvalds hér á landi. Samkvæmt reglugerð (ESB) 2018/858 ber aðildarríkjum að tryggja algera aðgreiningu hlutverka viðurkenningarstjórnvalds og markaðseftirlitsstjórnvalds en þau verða að starfa óháð hvert öðru. Ef Samgöngustofu yrði falið að vera jafnframt markaðseftirlitsstjórnvald yrði að ráðast í verulegar breytingar á skipulagi stofnunarinnar. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sinnir nú þegar hlutverki markaðseftirlitsstjórnvalds á tilteknum sviðum. Að mati nefndarinnar fellur það því að hlutverki Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar að sinna markaðseftirliti með vélknúnum ökutækjum.
Skráningarskylda torfærutækja og aukin heimild til aksturs á vegum.
Í umsögn Ferðafélagsins Melrakka eru lagðar til breytingar á 47. gr. umferðarlaga, sem kveður á um akstur torfærutækja. Annars vegar er lagt til að heimilt verði að aka torfærutækjum á landsvegum í stað einkavega. Hins vegar leggur félagið til viðbót við ákvæðið sem fæli í sér að heimilt verði að færa torfærutæki til viðurkenndrar skoðunarstöðvar þar sem ljósabúnaður, skermun hjóla og annar viðeigandi öryggisbúnaður er skoðaður, og að þeirri skoðun uppfylltri teljist ökutækið viðurkennt og fullnægjandi til notkunar í almennri umferð.
Meiri hlutinn hefur skilning á þessum sjónarmiðum en telur að við útfærslu slíkra breytinga sé mikilvægt að horfa til umferðaröryggis og að ekki sé gengið lengra en þörf krefur. Frumvarp þetta snýr að innleiðingu tiltekinna EES-gerða og telur meiri hlutinn ekki forsendur til þess að gera þær breytingar á frumvarpinu sem lagðar eru til af hálfu Ferðafélagsins Melrakka.
Á undanförnum misserum hefur notkun torfærutækja farið vaxandi, svo sem við útivist og við störf sem tengjast innviðum og almannavörnum og notkun þeirra komið í stað stærri og meira mengandi ökutækja. Meiri hlutinn telur mikilvægt að löggjöf haldi í við þá þróun. Að því sögðu telur meiri hlutinn rétt að beina því til ráðherra að taka til skoðunar mögulegar breytingar á umferðarlögum og reglugerðum sem settar hafa verið á grundvelli þeirra, með það fyrir augum að rýmka möguleika til götuskráningar torfærutækja auk heimilda þeirra til aksturs á öðrum vegum en einkavegum.
Breytingartillögur.
Hugtakanotkun (1. gr.).
Með d-lið 1. gr. frumvarpsins er lagt til að við 54. gr. umferðarlaga bætist nýr stafliður, sem mæli fyrir um skyldu flutningsaðila til að greiða kostnað vegna gistingar ökumanns utan ökutækis sem er að störfum fyrir flytjanda. Er breytingin lögð til vegna ákvæða reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1054. Í frumvarpinu er annars vegar notað hugtakið flutningsaðili og hins vegar flytjandi. Þar sem í þessu samhengi er átt við sama aðila, þ.e. vinnuveitanda, leggur meiri hlutinn til breytingu þess efnis að aðeins verði notast við hugtakið flutningsaðili til þess að samræma hugtakanotkun í ákvæðinu.
Innleiðing Evrópugerða.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á umferðarlögum vegna fyrirhugaðrar innleiðingar tiltekinna Evrópugerða í íslenskan rétt. Svo unnt sé að innleiða gerðirnar verður að tryggja þeim fullnægjandi lagastoð. Verði frumvarpið samþykkt óbreytt mun innleiðingarákvæðið einungis koma fram í þeim breytingalögum en ekki verða fellt inn í meginmál umferðarlaganna sjálfra. Meiri hlutinn telur mikilvægt að innleiðingarákvæðin verði færð í stofnlögin og leggur til breytingu þess efnis. Þessu tengt vill meiri hlutinn árétta að frumvörp, sem innleiða eiga reglur sem byggjast á EES-gerðum, skulu að meginstefnu ekki fela í sér önnur ákvæði en þau sem leiðir af gerðinni, skv. 3. málsl. 1. mgr. 37. gr. þingskapa.
Með vísan til framangreinds leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. Í stað orðanna „sem er að störfum fyrir flytjanda“ í d-lið 1. gr. komi: þegar hann er að störfum.
2. 5. gr. orðist svo:
Á eftir 114. gr. laganna kemur ný grein, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Innleiðing.
a. Reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/956 frá 28. júní 2018 um vöktun og skýrslugjöf vegna koltvísýringslosunar og eldsneytisnotkunar nýrra þungra ökutækja, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 396/2021 frá 10. desember 2021.
b. Reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1242 frá 20. júní 2019 um að setja staðla um frammistöðu vegna losunar koltvísýrings fyrir ný, þung ökutæki og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 595/2009 og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/956 og tilskipun ráðsins 96/53/EB, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 398/2021 frá 10. desember 2021.
c. Reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/858 frá 30. maí 2018 um viðurkenningu á og markaðseftirlit með vélknúnum ökutækjum og eftirvögnum þeirra og á kerfum, íhlutum og aðskildum tæknieiningum sem ætlaðar eru í slík ökutæki, um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 715/2007 og (EB) nr. 595/2009 og niðurfellingu tilskipunar 2007/46/EB, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 49/2022 frá 18. mars 2022.
d. Reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1054 frá 15. júlí 2020 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 561/2006 að því er varðar lágmarkskröfur um daglegan og vikulegan hámarksaksturstíma, lágmarksvinnuhlé og daglegan og vikulegan hvíldartíma og reglugerð (ESB) nr. 165/2014 að því er varðar staðarákvörðun með aðstoð ökurita, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 78/2022 frá 18. mars 2022.
e. Tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/645 frá 18. apríl 2018 um breytingu á tilskipun 2003/59/EB um grunnþjálfun og reglubundna þjálfun ökumanna tiltekinna ökutækja til vöru- eða farþegaflutninga og á tilskipun ráðsins 2006/126/EB um ökuskírteini, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 155/2022 frá 29. apríl 2022.
f. Reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/1280 frá 18. júlí 2022 um sértækar og tímabundnar ráðstafanir, í ljósi innrásar Rússlands í Úkraínu, varðandi skjöl fyrir ökumenn sem gefin eru út í Úkraínu í samræmi við löggjöf landsins, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 113/2023 frá 28. apríl 2023.
Þórunn Sveinbjarnardóttir gerir fyrirvara um mat á kostnaði Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar vegna markaðseftirlits með ökutækjum, sem færist nú til stofnunarinnar.
Alþingi, 12. júní 2024.
| Bjarni Jónsson, form. |
Ingibjörg Isaksen, frsm. |
Vilhjálmur Árnason. |
| Halla Signý Kristjánsdóttir. | Njáll Trausti Friðbertsson. | Orri Páll Jóhannsson. |
| Þórunn Sveinbjarnardóttir, með fyrirvara. |