Ferill 1146. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1902 — 1146. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til fjáraukalaga IV fyrir árið 2024.
Frá meiri hluta fjárlaganefndar.
Nefndin fjallaði um málið eftir að því var vísað til hennar 10. júní sl. Það var kynnt af starfsmönnum fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Nefndin kallaði ekki eftir umsögnum um málið. Þetta er fjórða frumvarp ársins til fjáraukalaga og lagt fram vegna stuðningsaðgerða við íbúa og atvinnurekendur í Grindavíkurbæ í kjölfar eldsumbrota og jarðhræringa á Reykjanesskaga.
Efni frumvarpsins.
Í frumvarpinu er leitað heimilda til að fjármagna byggingu varnargarða, framlengja stuðningsaðgerðir við íbúa og atvinnurekendur í Grindavíkurbæ, til að greiða kostnað við framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkurbæjar og Afurðasjóð sem er nýtt stuðningsúrræði til að koma til móts við áhættu rekstraraðila við að halda uppi starfsemi í bænum. Í því skyni eru í frumvarpi þessu lagðar til auknar fjárheimildir til viðeigandi málefnasviða og málaflokka vegna fimm tilefna, samtals um 6,3 ma.kr.
Í fyrsta lagi er um að ræða 4,5 ma.kr. fjárheimild vegna framkvæmda við varnargarða til að vernda byggð og mannvirki fyrir hraunflæði. Í öðru lagi er lagt til að framlengja stuðning í formi beinna styrkja til rekstraraðila í Grindavíkurbæ til áramóta og er lagt til að auka fjárheimild um 960 m.kr. vegna þess. Í þriðja lagi er um að ræða kostnað vegna nýstofnaðs Afurðasjóðs Grindavíkur. Sjóðurinn er nýtt stuðningsúrræði fyrir rekstraraðila vegna þeirrar áhættu sem fylgir því að viðhalda starfsemi í Grindavíkurbæ og eru fjárheimildir auknar um 400 m.kr. vegna stofnunar hans. Í fjórða lagi eru fjárheimildir auknar um 250 m.kr. vegna framlengingar sérstaks húsnæðisstuðnings til Grindvíkinga sem þurfa að leigja húsnæði til íbúðar utan Grindavíkurbæjar. Í fimmta lagi er um að ræða 150 m.kr. aukningu fjárheimildar til að greiða kostnað vegna framkvæmdanefndar um málefni Grindavíkurbæjar.
Þá er lögð til breyting á 5. gr. fjárlaga sem heimilar endurlán til Fasteignafélagsins Þórkötlu fyrir allt að 15,5 ma.kr. í stað heimildar upp á 12,5 ma.kr.
Í 4. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á 6. gr. fjárlaga fyrir árið 2024. Annars vegar er leitað heimildar til að auka við hlutafé Fasteignafélagsins Þórkötlu um allt að 37 ma.kr. Kemur hún í stað 25,9 ma.kr. heimildar úr fyrri fjáraukalögum ársins vegna fjármögnunar á kaupum á íbúðarhúsnæði í Grindavík sem félaginu er skylt að kaupa í samræmi við lög nr. 16/2024. Hins vegar er leitað heimildar til að ráðstafa allt að 15 ma.kr. úr Náttúruhamfaratryggingu Íslands til að fjármagna hluta af hlutafjáraukningu til Fasteignafélagsins Þórkötlu í samræmi við 1. mgr. 7. gr. laga nr. 16/2024.
Gjaldatilefni frumvarpsins í samanburði við heildarheimildir fjárlaga.
Í frumvarpinu er lagt til að fjárheimildir málefnasviða og málaflokka verði auknar um 6,3 ma.kr., bæði vegna framlengingar á stuðningsúrræðum sem áður voru til staðar vegna atburðanna á Reykjanesskaga en einnig vegna nýrra stuðningsúrræða. Það svarar til 0,4% aukningar frá áður samþykktum fjárheimildum í fjárlögum yfirstandandi árs.
Í eftirfarandi töflu eru tillögur frumvarpsins með breytingartillögum meiri hlutans settar í samhengi við fjárlög og fyrri fjáraukalög á yfirstandandi ári. Taflan er sett upp með sömu sundurliðun og fram kemur í greinargerð frumvarpsins en heildargjaldaheimildir hækka um samtals 865 m.kr. Skýrist fjárhæðin af þremur tillögum um hækkanir gjalda við tvenn fjáraukalög. Það eru 225 m.kr. vegna skólamáltíða og 350 m.kr. vegna fæðingarorlofs sem hvoru tveggja eru breytingartillögur meiri hlutans við frumvarp til fjáraukalaga á þingskjali 1574, 1078. mál. Að auki er 290 m.kr. hækkun vegna rekstrarstuðnings sem er breytingartillaga við þetta frumvarp.
| Frumvarp til fjáraukalaga – Breytingar á heildargjöldum | Í m.kr. |
|
Fjárlög 2024 (fjáraukalög I og II breyttu ekki heildargjöldum)
|
1.490.902 |
|
Frumvarp til fjáraukalaga III (með breytingartillögum)
|
13.494 |
| Frumvarp til fjáraukalaga IV | |
|
Varnargarðar
|
4.500 |
|
Rekstrarstuðningur (með breytingartillögu)
|
1.250 |
|
Afurðasjóður Grindavíkurbæjar
|
400 |
|
Húsnæðisstuðningur
|
250 |
|
Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ
|
150 |
|
Breytingar á heildargjöldum
|
6.550 |
|
Heildarheimildir 2024
|
1.510.946 |
Endurmat á afkomu ársins 2024.
Í frumvörpum til fjáraukalaga eru aðeins gerðar tillögur um auknar fjárheimildir til málefnasviða og málaflokka. Ekki koma fram tillögur til lækkunar þrátt fyrir að ýmsir útgjaldaliðir séu endurmetnir innan ársins og ekki eru gerðar tillögur um breytingar á tekjuhlið fjárlaga.
Breytingar á heildargjaldaheimildum gefa því ekki heildarmynd af endurmati á afkomu ársins. Í tengslum við undirbúning frumvarpsins hefur fjármála- og efnahagsráðuneytið endurmetið afkomu ársins og þá m.a. tekið tillit til fjárheimilda sem vistaðar eru á málefnasviði um almennan varasjóð fjárlaga.
Niðurstaða ráðuneytisins er að nú er áætlað að tekjur verði um 11 ma.kr. hærri en gert er ráð fyrir í fjárlögum fyrir árið, einkum vegna hærri arðgreiðslu frá Landsvirkjun en miðað var við áður, og að útgjöldin verði um 12 ma.kr. hærri. Þar vega þyngst framlög í tengslum við aðkomu ríkissjóðs að gerð kjarasamninga á almennum markaði.
Gangi þessi áætlun eftir verður frumjöfnuður ríkissjóðs jákvæður um 18 ma.kr. sem er um 0,4% af vergri landsframleiðslu (VLF), og yrði það annað árið í röð þar sem frumjöfnuður er jákvæður. Heildarafkoman yrði neikvæð um 51 ma.kr. eða um 1,1% af VLF og er það óbreytt afkoma frá því sem áætlað var í fjárlögum.
Tengsl við önnur þingmál.
Frumvarpið byggist að miklu leyti á þingmáli nr. 1130, frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna framhalds á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ. Breytingar sem tengjast því frumvarpi hafa áhrif á fjárheimildir sem gerðar eru tillögur um í þessu frumvarpi.
Breytingartillaga.
Gerð er tillaga um 290 m.kr. hækkun á málaflokki 30.10 Vinnumál og atvinnuleysi. Það er í samræmi við kostnaðarmat á breytingartillögu meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar við frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna framhalds á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ. Hún felur í sér breytingu á skilyrðum rekstrarstyrks til fyrirtækja í Grindavík þar sem miðað er við að styrkur geti verið afturvirkur til þess tíma þegar jarðhræringarnar hófust í nóvember sl.
Áætla má að afturvirkni rekstrarstuðningsins fyrir tímabilið nóvember 2023 til júní 2024 geti hækkað gjöld ríkissjóðs um 290 m.kr. samtals, eða um 36 m.kr. á mánuði. Kostnaðarmatið er byggt á upplýsingum frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu um veltu 172 fyrirtækja í Grindavík.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði s amþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
Heildarfjárheimild málaflokksins 30.10 Vinnumál og atvinnuleysi hækki um 290 m.kr.
Alþingi, 21. júní 2024.
| Stefán Vagn Stefánsson, form., frsm. |
Njáll Trausti Friðbertsson. | Jóhann Friðrik Friðriksson. |
| Jódís Skúladóttir. | Vilhjálmur Árnason. | Sigríður Elín Sigurðardóttir. |