Ferill 864. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1907  —  864. mál.

2. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

Frá Jóhanni Páli Jóhannssyni, Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur, Guðbrandi Einarssyni, Bergþóri Ólasyni og Guðmundi Inga Kristinssyni.


     1.      2. og 3. málsl. 6. mgr. g-liðar 3. gr. falli brott.
     2.      Við 12. gr.
                  a.      Á eftir orðinu „heimilt“ í 2. málsl. 13. tölul. komi: en ekki skylt.
                  b.      Við 13. tölul. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Óski örorkulífeyrisþegi ekki eftir samþættu sérfræðimati skv. 2. málsl. skal örorkumat sem í gildi var 31. ágúst 2025 gilda ótímabundið.
                  c.      Á eftir orðinu „heimilt“ í 2. málsl. 14. tölul. komi: en ekki skylt.
                  d.      Við 14. tölul. bætist: frá þeim tíma. Óski greiðsluþegi ekki eftir samþættu sérfræðimati skv. 2. málsl. skal örorkumat sem í gildi var 31. ágúst 2025 gilda ótímabundið.
                  e.      Við bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Ráðherra skal eigi síðar en 1. maí 2025 flytja Alþingi skýrslu um undirbúning innleiðingar samþætts sérfræðimats. Skýrslu ráðherra skal vísa til velferðarnefndar til umfjöllunar.
     3.      Í stað „684.000 kr.“ í 1. málsl. b-liðar 16. gr. komi: 756.000 kr.
     4.      Í stað orðanna „tvo mánuði“ í 1. málsl. 1. mgr. c-liðar 23. gr. komi: sex mánuði.

Greinargerð.

    Í fyrsta lagi er lagt til að fallið verði frá því fyrirkomulagi að fjármagnstekjur maka hafi áhrif á útreikning örorkulífeyris. Að mati flutningsmanna er slík tekjutenging forneskjuleg og samræmist illa einstaklingsbundinni framfærsluaðstoð skv. 76. gr. stjórnarskrárinnar.
    Í öðru lagi er lagt til að skýrt verði betur og hnykkt á því í 12. gr. frumvarpsins að þeir sem uppfylla skilyrði fyrir greiðslu örorkulífeyris og örorkustyrks 31. ágúst 2025 hafi val um að fá greitt samkvæmt nýja greiðslukerfinu en í samræmi við fyrra örorkumat um ókominn tíma frá gildistöku laganna. Greiðsluþegum sé heimilt en ekki skylt að óska eftir mati á getu til virkni á vinnumarkaði samkvæmt samþættu sérfræðimati.
    Í þriðja lagi er lagt til að við 12. gr. bætist nýr töluliður þar sem kveðið verði á um að ráðherra skuli eigi síðar en 1. maí 2025 flytja Alþingi skýrslu um undirbúning innleiðingar samþætts sérfræðimats. Skýrslu ráðherra skal vísa til velferðarnefndar til umfjöllunar. Gert er ráð fyrir því að við vinnu sína geti nefndin fengið á sinn fund ráðherra og fulltrúa starfshópsins sem vinnur að útfærslu og innleiðingu samþætts sérfræðimats.
    Í fjórða lagi er lagt til að fjárhæð heimilisuppbótar verði 756.000 kr. á ári frekar en 684.000 kr., þ.e. 6.000 kr. hærri á mánuði en gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Með þessu er komið í veg fyrir að öryrkjar sem eru einir um heimilishald og njóta ekki hagræðis af sambúð með öðrum sitji eftir við breytingarnar og njóti langtum minni ávinnings en aðrir.
    Í fimmta lagi er lagt til að öryrki í atvinnuleit fái aukið svigrúm til að leita sér að því starfi sem hann helst kýs án þess að komið geti til niðurfellingar virknistyrks. Miðað verði við sex mánuði í þessum efnum en ekki tvo. Með þessu er sjálfsákvörðunarréttur fólks með fötlun betur tryggður en í fyrirliggjandi frumvarpi.