Ferill 205. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1909  —  205. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjarskipti, lögum um íslensk landshöfuðlén og lögum um Fjarskiptastofu (fjarskiptanet, skráning o.fl.).

Frá 1. minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar.


    Fyrsti minni hluti tekur undir þá tillögu meiri hlutans að fella brott 2. og 4. gr. í ljósi þess að von er á þeim efnisreglum sem hluta af mögulegri innleiðingu nýrrar netöryggistilskipunar Evrópusambandsins. Það er hins vegar rétt að halda til haga ákveðnum þáttum í meðferð málsins á yfirstandandi þingi og á 153. löggjafarþingi (947. mál) þar sem þeir vekja 1. minni hluta áhyggjur af því hvernig búið er um málefni fjarskipta innan háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis. Frumvarpið er á köflum vanreifað og einkennist af miklum skorti á samráði við lykilaðila og sérfræðinga. Slíkur umbúnaður ber ekki með sér að þessum mikilvæga málaflokki hafi verið forgangsraðað jafn framarlega í störfum ráðuneytisins og eðlilegt væri, í kjölfarið á illa rökstuddri uppstokkun ráðuneyta við upphaf kjörtímabils.
    Brottfall 2. og 4. gr. úr frumvarpinu er annað tilvikið þar sem háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra er gerð afturreka með lagabreytingu sem felur í sér innleiðingu á ókláruðu samevrópsku regluverki, þar sem ýmist liggur ekki fyrir endanleg niðurstaða innan Evrópusambandsins eða afstaða EES-ríkjanna og þar með mögulegar aðlaganir sem Ísland sækist eftir. Fyrir fulltrúa flokks sem uppnefnir metnaðarfullar innleiðingar „gullhúðun“ orkar tvímælis að vera ítrekað staðinn að því að seilast svo langt í innleiðingarátt.

Fallið frá tillögu að allsherjarskimun fjarskipta.
    Í fyrri útgáfu frumvarps þessa (947. mál á 153. löggjafarþingi) var m.a. lagt til að leyfa skimun allra fjarskipta með sjálfvirkum tæknibúnaði. Slík allsherjarskimun felur eðli máls samkvæmt í sér undanþágu frá strangri reglu fjarskiptalaga um fjarskiptaleynd. Í málflutningi ráðuneytisins og stofnana þess var lögð áhersla á að um væri að ræða tímabundna undanþágu, en ákvæðinu var ætlað að innleiða reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/1232, sem er með afmarkaðan gildistíma frá 2. ágúst 2021 til 3. ágúst 2024.
    Fulltrúar Pírata bentu á það í 1. umræðu og við umfjöllun nefndarinnar að með ákvæðinu væri gengið gríðarlega langt gegn friðhelgi einkalífs og fjarskiptaleynd, sem teljist til grundvallarmannréttinda. Alls óvíst væri að framkvæmdin stæðist kröfu um meðalhóf þar sem fátt benti til að almenn skimun persónulegra skilaboða skilaði mælanlegum árangri í yfirlýstu markmiði tillögunnar um að berjast gegn efni á netinu sem inniheldur kynferðisofbeldi gegn börnum. Einstaklingar með ríkan brotavilja myndu finna sér leiðir fram hjá skimuninni.
    Eftir stæðu stórir hópar fólks — allt frá foreldrum sem senda hvort öðru mynd af barni í baði til para á unglingsaldri sem deila einkamyndum hvort með öðru — sem myndu lenda í síum fjarskiptafyrirtækja. Af frumvarpinu var með öllu óljóst hvað því myndi fylgja, hvort afleiðingarnar yrðu sjálfkrafa skerðing á netaðgengi, hvort starfsfólki fjarskiptafyrirtækja yrði falið að greina á milli saklauss efnis og þess sem kallar á íhlutun lögreglu, eða hvort lögreglu myndi berast aragrúi tilkynninga um fólk sem ekkert hefur sér til saka unnið annað en að eiga persónuleg samskipti sem sjálfvirkur búnaður metur að séu af kynferðislegum toga.
    Við umfjöllun nefndarinnar var bent á að innan Evrópusambandsins væri unnið að nýrri reglugerð til að taka við af þeirri sem frumvarpinu var ætlað að innleiða. Benti fulltrúi Pírata á að betur færi á því að bíða einfaldlega eftir niðurstöðu úr þeirri vinnu, sem myndi m.a. byggja á ítarlegri úttekt á því hvernig til hefði tekist með fyrri reglugerðina. Frumvarpið var eitt af þeim sem meiri hlutinn kaus að ljúka ekki á 153. löggjafarþingi, en í greinargerð þess frumvarps sem hér er til umfjöllunar kemur fram að fallið hafi verið frá þeirri innleiðingu þar til reglugerðin verði tekin upp í EES-samninginn.
    Fyrsti minni hluti fagnar því að ábendingar Pírata hafi hjálpað ráðuneytinu að komast að þessari niðurstöðu, sérstaklega í ljósi þess að umræða um málaflokkinn hefur þróast talsvert á vettvangi Evrópusambandsins síðastliðið ár. Þegar til kastanna kom reyndust sum aðildarríki vilja hemja það gríðarlega eftirlit sem felst í þessari undanþágu frá almennri fjarskiptaleynd og því má búast við því að niðurstaðan gangi ekki jafn langt gegn friðhelgi einkalífsins og gert hefði verið með frumvarpi ráðherra.

Ótímabær og illa útfærð innleiðing.
    Fjarskiptin eru grunnstoð í þeirri stafrænu umbyltingu sem er að eiga sér stað á alþjóðavísu og því nauðsynlegt að lagaumhverfið sé uppfært á vel ígrundaðan hátt, byggt á faglegum grunni. Ekki skal gleyma því að Ísland er smáríki og innlendi fjarskiptamarkaðurinn lítill. Margar af þeim reglugerðum og tilskipunum sem innleiða þarf samkvæmt EES-samningnum eru hannaðar fyrir talsvert stærri ríki og markaði. Því þarf að vanda til verka með því að nýta þann mannauð sem samfélagið býr við og líta til þróunar og árangurs annarra ríkja. Í netöryggisúttekt Alþjóðafjarskiptasambandsins árið 2023 sat Ísland í 65. sæti með einkunnina 78,64. Sambandið safnar nú gögnum frá árinu 2023 og hefur því ekki gefið út nýrri skýrslu, en allar horfur eru á því að niðurstaða Íslands verði afturför í netöryggi. Stjórnvöld mega aldrei sætta sig við afturför í málaflokknum heldur verða þau að nýta hvert tækifæri til þess að gera betur frekar en að eyða tíma í óvandaðar og illa útfærðar útfærslur á lagaumhverfinu.
    Vinnubrögð ráðuneytisins bera þess merki að þar skorti nauðsynlega þekkingu á málaflokknum og því er miður að ekki var haft samráð við fremstu sérfræðinga og hagsmunaaðila við gerð frumvarpsins. Þetta má sjá af umsögnum ISNIC og 1984. Þar er annars vegar um að ræða fyrirtæki sem heldur utan um þá stafrænu grunninnviði sem eru grunnurinn að íslenskum hluta internetsins og hins vegar fyrirtæki sem hýsir stóran hluta þess. Í umsögnum þeirra kemur fram skýr gagnrýni á efnislegt innihald frumvarpsins og bent er á að forsendur þess byggi í grunninn á vanþekkingu á þeirri tækni sem frumvarpið fjallar um, sem sýni hversu mikilvægt sé að eiga samráð við sérfræðinga. 1. minni hluti tekur undir þessa gagnrýni.
    Við umfjöllun nefndarinnar lagði Fjarskiptastofa til að breytingar yrðu gerðar á 2. og 4. gr. frumvarpsins varðandi þær kröfur sem gerðar væru til grunnskráningar ISNIC á upplýsingum í tengslum við lénaskráningu, undir þeim formerkjum að það myndi auðvelda vinnu í þágu netöryggis. Með minnisblaði dags. 8. desember 2023 tók ráðuneytið undir tillögu Fjarskiptastofu og beindi því til nefndarinnar að gera tilsvarandi breytingar á frumvarpinu. Um var að ræða tvær viðamiklar efnisbreytingar á kafla frumvarpsins um lög um íslensk landshöfuðlén. Önnur varðar það sem kallað er „skráning raunverulegs stjórnanda“ léns, hin varðar ýmsar kröfur til heitis léns, svo sem að það skuli samrýmast alþjóðlegum skuldbindingum Íslands, ekki tengjast refsiverðri háttsemi o.fl. Í framhaldsumsögn ISNIC geldur fyrirtækið varhuga við tillögunum og bendir nefndinni á að sé tilgangurinn að auka netöryggi væri nær að bíða þess að Evrópusambandið ljúki vinnu við nýja netöryggistilskipun (NIS2) sem í framhaldinu megi reikna með að verði innleidd í íslensk lög, enda sé tekið á sömu efnisþáttum í henni. Í grunninn sé ótímabært að lögfesta ákvæði sem til standi að innleiða með vandaðri og heildstæðari hætti innan skamms.
    Fyrsti minni hluti hefur frá upphafi eindregið tekið undir þessar ábendingar. Það er því ánægjulegt að sjá að meiri hlutinn hafi hlustað á áhyggjur fyrrgreindra umsagnaraðila, leggi til að fella á brott 2. og 4. gr. og sýni þannig ákveðna viðleitni til að ástunda vandaðri vinnubrögð. Þó hefði farið betur á því að ráðuneytið hefði átt í samráði við þessa lykilaðila á íslenska internetinu frekar en að eyða tíma þingsins með þessum hætti. Að mati 1. minni hlutans ætti að gera þær breytingar á fjarskiptalögunum er varða NIS2-tilskipunina í einni lotu og þá í nánu samráði við sérfræðinga í netöryggi. Hvetur 1. minni hluti ráðuneytið til að hefja undirbúningsvinnu hið fyrsta, svo innleiðing geti gengið hraðar fyrir sig þegar þar að kemur. Enn fremur telur 1. minni hluti framangreind dæmi sýna fram á mikla þörf fyrir eflingu sérfræðiþekkingar ráðuneytisins á sviði fjarskipta.

Alþingi, 13. júní 2024.

Andrés Ingi Jónsson, frsm.